Fréttablaðið - 20.09.2007, Síða 28
Jóna Björg Jónsdóttir hannar undir nafninu jbj
design og hefur síðustu misseri vakið athygli fyrir
frumlega og þjóðlega hönnun. Hún tók þátt í tísku-
sýningu í Rostock í Þýskalandi fyrr í mánuðinum
og vakti þar mikla lukku.
Tískusýningin var haldin í kirkju
heilags Nikulásar sem byggð var
árið 1350. Í dag er kirkjan aðallega
notuð til sýninga- og tónleikahalds.
Þessi tískusýning á vegum
KwAgentur var haldin í áttunda sinn
og voru um 500 manns viðstaddir
sýninguna. En hvernig kom það til að
Jóna Björg fór að sýna hönnun sína í
Rostock?
„Skipuleggjendur sýningarinnar
óskuðu sérstaklega eftir íslenskri
hönnun eftir að hafa séð íslensku fata- og vöruhönnun-
arsýninguna sem haldin var í Berlín í mars síðastliðn-
um. Mér var boðið að koma og sýna tíu fatasett úr ull og
silki fyrir konur á öllum aldri og þáði ég boðið og hélt til
Rostock fyrir rúmri viku,“ útskýrir Jóna Björg.
Þetta var í fyrsta sinn í sögu sýningarinnar sem
íslensk fatahönnun var til sýnis og er skemmst frá því
að segja að fatnaður Jónu Bjargar vakti mikla athygli
og ánægju.
„Það var ævintýri líkast að sjá eigin framleiðslu á
sviði í Norður-Þýskalandi. Umgjörðin var sérstaklega
skemmtileg í þessari gömlu kirkju. Kynnir sýningar-
innar var þekkt þýsk leikkona og hún lýsti því hvernig
fatnaðurinn bæri liti og áferð íslenskrar náttúru og
væri að mörgu leyti eins og landslagsmálverk,“ segir
Jóna Björg stolt.
Jbj design framleiðir dömulínu fyrir konur á öllum
aldri og eru vörurnar framleiddar úr ull og silki. Efnið
er útbúið um leið og flíkin og minnir ferlið því svolítið á
skúlptúragerð eða leirvinnslu. Hver flík er einstök og
engar tvær eins. Við framleiðslu er notað vatn, hiti,
núningur og hrein íslensk jurtasápa sem inniheldur ein-
göngu náttúruleg efni sem brotna auðveldlega niður.
Engir mengandi þættir koma við sögu og
er þetta því afar umhverfisvæn fram-
leiðsla. Auk þessa er allt silkið fengið
með sanngjörnum viðskiptum eða „fair
trade“ þar sem allir sem koma að fram-
leiðslunni fá borgað fyrir vinnu sína.
Jóna Björg hefur ýmislegt á prjónun-
um og sagði hún okkur frá því helsta.
„Núna á laugardaginn verður opnuð
sýning í Gerðubergi, „Handverkshefð
í hönnun,“ og mun ég taka þátt í henni.
Síðan tek ég þátt í Ráðhúsmarkaðnum í
annað sinn,“ segir Jóna Björg. Hægt er
að skoða vörur jbj design betur á
heimasíðunni www.jbj.is og heimsækja
gallerí og verslun í Skólagerði 5.
Íslensk hönnun í Rostock
COMB &CARE
Fæst í apótekum um land allt.
Sjampó og næring til varnar flóka
• Mild formúla sem svíður ekki undan.
• Sterkt flókavarnarefni fyrir sítt hár.
• Hárið verður hreint, mjúkt
og viðráðanlegt.
• Endingargóður ilmur.
Flókasprey
og flókahárkrem
• Verndar raka hársins
með B5 vítamíni.
• Fjarlægir flóka, auðveldar greiðslu
og verndar hreinlæti hársins.
• Endingargóður ilmur.
Auðvelt í notkun – frábær árangur
(Lúsaforvörn) Lúsin helst síður í vel hirtu hári. Inniheldur rósmarín sem fælir lúsina frá.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Flottir
leðurjakkar
á góðu verði
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
NÝTT
Fáðu fæturna mjúka og fína
á 2 vikum með Flextiol
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum,
Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur.