Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 63
Rapparinn Kanye West stóð uppi
sem sigurvegari í kapphlaupi sínu
við 50 Cent um hvor seldi meira af
plötu sinni fyrstu vikuna. Plata West,
Graduation, seldist í 957 þúsund ein-
tökum en 50 Cent seldi 691 þúsund
eintök af plötunni Curtis. Salan á
Graduation er sú mesta síðan síðasta
plata 50 Cent, The Massacre, seldist í
1,1 milljón eintaka árið 2005.
„Til að vera meistari þarftu að
sigra meistara,“ sagði West. „Þetta
er alveg stórkostlegt. Það eru allir
að segja mér hversu stoltir þeir séu
af mér,“ sagði West, sem bætti því
við að það hefði verið sín hugmynd
að fara í einvígi við 50 Cent. „Ég var
ekki talinn sigurstranglegur vegna
þess að ég hafði selt minna á ferlin-
um þannig að ég hefði aldrei getað
tapað á þessu. Þótt ég hefði selt
minna hefðu allir verið ánægðir
með að ég hefði þorað að etja kappi
við hann.“
50 Cent vildi ekkert tjá sig um það
hvort hann ætlaði að gefa sólóferil
sinn upp á bátinn eins og hann hafði
lofað ef hann myndi tapa. „Ég er
mjög ánægður með að hafa tekið
þátt í einni af stærstu plötuútgáfu
síðustu tveggja ára. Saman höfum
við selt hundruð þúsunda platna á
okkar fyrstu viku á lista. Þetta er
frábær stund fyrir hiphop-tónlistina
sem verður án efa skráð í sögubæk-
urnar.“
West seldi tæp milljón eintök
Hafdís Huld, rokksveitin Jan
Mayen og danssveitin Motion Boys
koma fram á Iceland Airwaves-
kvöldi sem verður haldið á tón-
leikastaðnum The Luminaire í
London miðvikudaginn 26. sept-
ember.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röð sem fyrirtækið Two Little Dogs
stendur fyrir á tveggja mánaða
fresti undir heitinu Reykjavik
Nights in London. Fyrsta kvöldið
var haldið 17. júní síðastliðinn og
vakti það mikla lukku. Var farið um
það fögrum orðum í breskum fjöl-
miðlum. Í forsvari fyrir Reykjavik
Nights in London er Kolbrún Karls-
dóttir sem á og rekur Two Little
Dogs sem starfrækt er jöfnum
höndum hér heima og í Bretlandi.
Airwaves í London