Fréttablaðið - 29.09.2007, Síða 1
Laugardagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
34%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
37%
71%
Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra boðar í samtali við
Fréttablaðið í dag margþættar
breytingar á framkvæmd fjárlaga
vegna ársins 2009.
Róttækasta breytingin verður
breyting á hlutverki fjáraukalaga.
Þau verða eingöngu notuð til að
koma inn fjárheimildum fyrir
ýmsar ófyrirsjáanlegar reiknaðar
stærðir, ekki til þess að bæta við
fjárheimildum fyrir stofnanir,
eins og verið hefur, segir Árni.
Framúrkeyrsla stjórnenda
ákveðinna stofnana hefur verið
gagnrýnd, og Ríkisendurskoðun
meðal annars hvatt til þess að
stjórnendur sem ekki fari að fjár-
lögum verði áminntir og sagt upp
ef þeir standi sig ekki. Árni telur
lausnina ekki endilega liggja þar.
„Leiðin til þess að stjórnendur
axli aukna ábyrgð í samræmi við
það frjálsræði sem þeir hafa á
ekki að þurfa að vera í gegnum
einhver svoleiðis tæki. Það á fyrst
og fremst að vera í gegnum
metnað,“ segir Árni.
Til að skapa metnað þurfi rekst-
ur ríkisstofnana að vera í auknum
mæli samanburðarhæfur, bæði á
milli mismunandi stofnana og á
milli ríkisstofnana og einkaaðila.
Árni nefnir tvær leiðir sem
gætu stuðlað að þessu markmiði.
Fyrri leiðin er að heimila stofnun-
um að sækjast eftir láni úr ríkis-
sjóði til að mæta sveiflum í rekstri.
Stofnanirnar þyrftu að skýra þörf
sína fyrir lánið, hvernig það yrði
greitt til baka, og greiða vexti.
Síðari breytingin er að reikna
virði húsnæðis stofnana inn í
rekstrarreikning þeirra. Ríkis-
stofnanir eru ýmist hýstar í eigin
húsnæði, í húsnæði í eigu Fast-
eigna ríkisins eða í leiguhúsnæði á
almennum markaði.
Vill leyfa stofnunum
að taka lán hjá ríki
Ríkisstofnanir geta tekið lán hjá ríkissjóði og fært sig í hagkvæmara húsnæði
verði hugmyndir fjármálaráðherra að veruleika. Vinna er hafin við gerð ramma-
fjárhagsáætlunar fyrir allt kjörtímabilið og hlutverki fjáraukalaga verður breytt.
Hrafn Gunnlaugsson tjáir sig um myndir,
menn og málefni
Opið í dag Laugardag
Smiðjuvegi 76
200 Kópavogur
Baldursnes 6
603 Akureyri www.tengi.is
Laugardaga
10.00-15.00
Gylfi Þór Orrason
dæmdi í gær sinn síðasta leik á
ferlinum þegar Leiknir R. og
Víkingur Ó. mættust í lokaumferð
1. deildar karla.
Gylfi hætti að dæma í efstu
deild eftir sumarið 2005 en hann
dæmdi alls 176 leiki á 17 tímabil-
um sínum í efstu deild og var auk
þess FIFA-dómari frá 1992 til
janúar 2005, þegar hann varð að
hætta vegna aldurs.
Gylfi var þrisvar sinnum
kosinn dómari ársins af leik-
mönnum í efstu deild karla, árin
1993, 1995 og 1997.
Dæmdi síðasta
leikinn sinn
Fjögur almenn
bifreiðaverkstæði hafa fengið
starfsemi sína gæðavottaða frá
Bílgreinasambandinu en þau
uppfylla svokallaðan BGS-staðal
um vandaða starfsemi og góða
þjónustu.
Vottuninni felst meðal annars
að viðskiptavinir fá fast tilboð í
kostnaðarmat á viðgerð, þjónust-
an er vel skilgreind og áætlaður
tími viðgerða stenst.
Fast tilboð í
kostnaðarmat
Björgólfur Thor
Björgólfsson seldi í gær eignar-
hlut sinn í búlgarska bankanum
EIBank fyrir um 195 milljónir
evra samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Novator, fjárfest-
ingarfélag Björgólfs Thors, keypti
fyrst í bankanum árið 2005 og átti
fyrir söluna í gær um 48 prósent.
Kaupverð þess hlutar var
samtals um sextíu milljónir evra.
Hagnaður Björgólfs af þessum
viðskiptum nemur því um tólf
milljörðum króna miðað við gengi
krónunnar í gær.
Belgíska fjármálafyrirtækið
KBC keypti hlut Novator í EIBank
(Economic and Investment Bank).
Samkvæmt búlgörskum fjölmiðl-
um höfðu tvö fyrirtæki keppst um
að kaupa bankann.
Ekki náðist í Björgólf Thor í
gær en í fréttatilkynningu sem
KBC sendi út sagðist hann vera
ánægður með árangur EIBank.
Hann hefði fjárfest fyrst í Búlgar-
íu árið 1999 og myndi halda því
áfram.
Í byrjun maí á þessu ári seldi
Björgólfur Thor hlut sinn í
búlgarska símafyrirtækinu BTC
og innleysti um sextíu milljarða
króna hagnað. Á þessum tveimur
fjárfestingum í Búlgaríu hefur
hann því hagnast um 72 milljarða
króna.
Hagnast um tólf milljarða
Reykjavík Energy
Invest, REI, hefur skuldbundið
sig til þess að fjárfesta fyrir um
níu milljarða króna að lágmarki á
næstu fimm árum í verkefnum
tengdum nýtingu á jarðvarma í
Afríku. Yfirlýsing þess efnis var
kynnt á lokaathöfn á árlegum
fundi Clinton Global Initiative
sem Bill Clinton, fyrrverandi
Bandríkjaforseti, er í forsvari
fyrir.
Í yfirlýsingu frá REI segir að
forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hafi verið hvatamaður
að samkomulaginu. Haft er eftir
Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra
REI, í tilkynningunni að mikil
tækifæri séu fyrir REI í Austur-
Afríku.
Níu milljarðar
í virkjanir