Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 6
Á að taka upp tvítyngda stjórn-
sýslu hér á landi?
Hefur þú þurft að greiða FIT-
kostnað?
Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði,
sakar forvera sinn, Orra Hlöð-
versson, um að hafa veitt heimild
til að veðsetja svokallaða Tívolí-
lóð fyrir 400 milljónir króna án
samþykktar bæjarráðs.
Bærinn seldi byggingarréttinn
á Tívolílóðinni á Austurmörk 24
fyrir 50 milljónir króna í lok
október 2005 til Ármanna ehf. Það
er félag feðganna Guðmundar
Sigurðssonar og Sigurðar Fannars
Guðmundssonar á Selfossi.
Aðeins tveimur mánuðum síðar,
eða 3. janúar 2006, færðu feðg-
arnir lóðina yfir í nýtt félag,
Hraunprýði ehf. Það félag var
síðan selt ásamt lóðinni og tveim-
ur aðliggjandi lóðum sem einn
byggingarreitur, samtals 1,8 hekt-
arar til Johns Snorra Sigurjóns-
sonar og Kristjáns Sverrissonar
fyrir 462,5 milljónir. Þá bað
Hraunprýði bæjarráð að veita
heimild til að lóðin yrði veðsett
fyrir 400 milljónir króna sameigin-
lega með hinum lóðunum tveimur.
Málið var rætt á bæjarráðsfundi
2. febrúar 2006.
„Bæjarstjóranum var falið á
fundinum að ræða við forsvars-
menn Hraunprýðis í samráði við
lögmann og daginn eftir þá bara
kvittar hann undir án þess að
leggja þetta aftur fyrir. Það var
engin heimild veitt,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir um framgöngu
forvera síns.
Meirhluti sjálfstæðismanna tók
málið upp á síðasta bæjarráðs-
fundi. Segja þeir Orra Hlöðvers-
son, sem þáverandi bæjarstjóra,
hafa undirritað veðskuldabréf
upp á 400 milljónir króna án þess
að bærinn hafi áður fengið sínar
50 milljónir. Sú upphæð var þó að
fullu greidd nokkrum mánuðum
síðar. Segja sjálfstæðismenn að
Orri hafi þar með „sloppið fyrir
horn“ og að ekki yrði frekar
aðhafst.
„Mitt hlutverk á þessum tíma
var að tryggja að bærinn fengi
umsamdar greiðslur og það fékk
hann,“ er það eina sem Orri segir
um málið.
Athygli vekur að lóðin, sem er
1,1 hektari og stendur gegnt
Eden, skuli hafa margfaldast í
verði á svo stuttum tíma. Alger
samstaða var í bæjarstjórninni
um söluna haustið 2005. Aðeins
eitt tilboð barst:
„Við vorum alsæl með þessa
sölu fyrir 50 milljónir. Svo trúði
maður ekki sínum eigin augum
þegar allt í einu var komið á þetta
veð fyrir 400 milljónir,“ segir
Aldís sem bendir þó á að miklir
möguleikar séu á lóðinni: „Stað-
setningin er gríðarlega flott og
þarna má byggja yfir 200 íbúðir.“
Austurmörk 24 er nú á
nauðungaruppboði að kröfu
Guðmundar Sigurðssonar enda
stóðu kaupendur Hraunprýðis
ehf. ekki í skilum.
Sakaður um að skrifa
upp á skuldir án leyfis
Fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis er sagður hafa skrifað í heimildarleysi upp
á 400 milljóna króna veðskuldabréf á svokallaðri Tívolílóð. Hann segist hafa
tryggt hagsmuni bæjarins. Lóðin margfaldaðist í verði á tveimur mánuðum.
Starfsmenn bíla- og
vélaverkstæðisins BHS á Árskógs-
trönd við Dalvík sluppu með
skrekkinn þegar nýr sex metra
plastbátur sem verið var að stand-
setja inni á verkstæðinu sprakk í
loft upp.
„Um leið og ég kveikti á tækinu
og fór að sjóða sprakk allt í loft
upp,“ segir Haukur Sigfússon,
sem var að vinna við að logsjóða á
þili bátsins þegar sprengingin
varð. Við sprenginguna þeyttist
hann upp í loftið en lenti aftur
ofan á bátnum.
„Ég er nú ennþá uppistandandi,
ég er marinn og bæklaður, en
óbrotinn,“ segir Haukur. Aðra
starfsmenn sakaði ekki.
Sprengingin var afar öflug,
dekk bátsins losnaði af í heilu lagi,
og krani sem var á dekkinu þeytt-
ist upp í loft verkstæðisins og
gerði gat á það.
Þegar Haukur náði áttum eftir
sprenginguna sá hann að eldur
logaði í bátnum. Samstarfsmenn
hans réttu honum slökkvitæki
ofan í bátinn og honum tókst að
ráða niðurlögum eldsins.
Eigandi bátsins var á leiðinni
þegar Fréttablaðið náði tali af
Hauki. Haukur segist ekki hafa
náð í eigandann í síma, en skilið
eftir skilaboð hjá honum um að
báturinn hafi sprungið í loft upp.
„Ég held að hann hafi varla trúað
því þegar hann sá skilaboðin,“
segir Haukur.
Starfsmaður þeyttist í loft upp
Fangi á Litla-Hrauni
hefur verið sakfelldur í héraðs-
dómi fyrir að hafa reynt að
smygla amfetamíni og anabólísk-
um sterum inn í fangelsið. Honum
var ekki gerð sérstök refsing, þar
sem um hegningarauka er að
ræða. Í nóvember í fyrra flúði
maðurinn frá fangavörslumönn-
um við héraðsdóm. Hann gaf sig
svo fram við fangelsismálayfir-
völd á Litla-Hrauni tveimur
dögum síðar. Við röntgenskoðun
kom í ljós að hann hafði komið
pakkningum fyrir í endaþarmi
sínum. Þær höfðu að geyma um
180 töflur af sterum og nærri 40
grömm af amfetamíni.
Var með stera
og amfetamín
„Menn verða bara að hafa þrek til að
fara í þetta og komast að einhverri niðurstöðu,“
segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusam-
bandsins, spurður um afstöðu ASÍ til umræðu um
upptöku evrunnar.
„Við teljum mjög mikilvægt að það verði enn
frekari og afdráttarlausari umræða um evruna, hér
og nú,“ segir hann.
Grétar tekur þar með undir með fjölmörgum sem
hafa tjáð sig um evrumál síðustu daga, til að mynda
Pétri Blöndal formanni efnahagsnefndar Alþing-
is, og Sambandi ungra sjálfstæðismanna, sem hafa
hvatt til umræðu um stöðu krónunnar.
ASÍ hefur ekki markað sér afdráttarlausa afstöðu
til upptöku evru eða aðildar að Evrópusamband-
inu, en innan félagsins hefur þó mikið verið rætt
um þessi mál. „Það verður ekkert flanað að svona
afdrifaríkri ákvörðun,“ segir Grétar.
Í Morgunkorni Glitnis í gær kom fram að íslensk
heimili skuldi æ meira í erlendum myntum. „Þau
velja þannig fremur að taka þá áhættu sem teng-
ist gengissveiflum en að þola háa íslenska vexti,“
segir þar.
Vill fá niðurstöðu um evruna
Nokkuð hefðbundið ríkisrekið
kínverskt kaffihús hefur verið
opnað þar sem áður var Starbucks-
kaffihús í Forboðnu borginni í
hjarta Peking. Frá þessu var skýrt
á vefsíðum BBC-fréttastofunnar.
Bandaríska Starbucks-kaffi-
húsinu var lokað í júlí síðastliðnum
vegna harðra mótmæla, sem
stanslaust bárust alveg frá því það
var opnað árið 2000. Mótmælin
héldu áfram að berast þótt hinu
dæmigerða bandaríska útliti
Starbucks hafi fyrir tveimur árum
verið fórnað fyrir látlausara
yfirbragð.
Ríkiskaffi kom í stað Starbucks
Við teljum mjög
mikilvægt að
það verði enn frekari og
afdráttarlausari umræða
um evruna, hér og nú.