Fréttablaðið - 29.09.2007, Side 10
Skemmtileg
verkefni!
Nánari upplýsingar um starfið má finna á vefsíðu sviðsins,
Skipulagsverkefni hjá Reykjavíkurborg
www.skipbygg.is.
Ef þú hefur menntun og reynslu á sviði skipulags og vilt vinna að fjölbreyttum, skemmtilegum og
ögrandi verkefnum sem gefa tækifæri til þess að læra og bæta við starfshæfnina þá erum við hjá
skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar að leita að frjóum og skemmtilegum starfsfélaga sem hefur
gaman af að vinna í góðum hópi fagmanna.
Bíll valt á Laugarnesvegi við
Sæbraut á hádegi í gær. Ökumaður
og farþegi meiddust lítillega á
höndum en bíllinn skemmdist tölu-
vert.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni varð slysið þegar bílnum,
gömlum Suzuki-jeppa, var ekið upp
á vegkant við götuna. Ökumaðurinn
steig óvart á bensíngjöf í stað
bremsu, sem varð til þess að bíllinn
endaði á hvolfi á nálægri umferðar-
eyju. Bíllinn var fluttur í burtu með
kranabíl.
Steig óvart á
bensíngjöfina
Umhverfisráðherra
hefur í fyrsta skipti úthlutað heim-
ildum til losunar gróðurhúsaloft-
tegunda til stóriðju í landinu.
Fimm fyrirtæki fengu heimild
til að losa alls 8.633.105 tonn af
gróðurhúsalofttegundum. Haldið
var eftir 1,9 milljónum tonna, en
Ísland hefur heimildir til að losa
alls 10,5 milljón tonn.
Þessi fimm fyrirtæki eru því
með tæp 82 prósent alls mengun-
arkvótans.
„En það er mat mitt að það séu
ekki forsendur til að úthluta til
þeirra umsækjenda sem ekki hafa
hafið störf,“ sagði Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra
þegar hún kynnti ákvörðunina í
gær. Þórunn vísar þar með til
þeirra fjögurra fyrirtækja sem
ekki fengu úthlutað heimildum.
„Það er nokkur óvissa um stöðu
þeirra verkefna,“ sagði ráðherra
en ítrekaði að þeim hefði ekki
beinlínis verið hafnað, heldur
umsóknin sett í biðstöðu. Ekki var
heldur úthlutað með hliðsjón af
hugsanlegum stækkunum starf-
andi fyrirtækja, en úthlutanirnar
verða endurskoðaðar árlega.
Sementsverksmiðjan á Akra-
nesi fékk heimild til að losa 666.875
tonn af gróðurhúsalofttegundum,
Járnblendifélagið 1,9 milljón tonn,
Alcan Straumsvík 1,3 milljón tonn,
Norðurál 2,1 milljón tonn og Alcoa
Reyðarfirði 2,5 milljón tonn.
Fyrirhuguð stóriðja, sem sótti
um en ekki fékk úthlutað heimild-
um, var Alcoa á Bakka við Húsa-
vík, Norðurál í Helguvík, Alcan
Þorlákshöfn og kísilverksmiðja
Tomahawk í Þorlákshöfn.
Öllum fyrirtækjum, sem menga
meira en sem nemur 30.000
tonnum, er nú skylt að sækja um
þessar heimildir og greiða
umsýslugjald fyrir, um 250.000
krónur. Að öðru leyti eru
heimildirnar gjaldfrjálsar.
Ráðherra er þeirrar skoðunar
að taka skuli gjald fyrir þessar
heimildir í framtíðinni, enda séu
þær afar verðmætar.
Stóriðja má
losa rúm 8,6
milljón tonn
Umhverfisráðherra hefur úthlutað losunarheimild-
um gróðurhúsalofttegunda, samkvæmt Kyoto-bókun-
inni. Fimm fyrirtæki fengu 82 prósent mengunar-
kvótans og greiða fyrir 250.000 krónur hvert.
Hæstiréttur í
Pakistan úrskurðaði í gær að
Pervez Musharraf, forseti lands-
ins og yfirmaður hersins, mætti
sækjast eftir öðru kjörtímabili í
komandi forsetakosningum.
Andstæðingar Musharrafs
höfðu sagt hann óhæfan til að
bjóða sig fram meðan hann væri
einnig yfirmaður hersins og
óskað eftir úrskurði hæstaréttar.
Musharraf komst til valda árið
1999 en síðustu mánuði hefur
andstaða við hann farið vaxandi
eftir að hann reyndi að koma hátt-
settum dómara úr embætti.
Musharraf má
bjóða sig fram