Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 11
[Hlutabréf]
Ivan Gašparovic, forseti
Slóvakíu, og Ján Kubiš, utanrík-
isráðherra landsins, áttu
óopinberan fund með stjórnend-
um Marel Food Systems í Bláa
lóninu er þeir áttu stutta viðdvöl
hér á landi á laugardag.
Marel Food Systems
starfrækir matvælavinnsluvéla-
framleiðslu í Slóvakíu og vinna
um 100 manns hjá fyrirtækinu
þar í landi. Mikil stækkun
stendur þar nú fyrir dyrum en
Marel Food Systems vinnur að
því að reisa þar nýja verksmiðju
sem verður þrisvar sinnum
stærri. Áætlað er að opna
verksmiðjuna í byrjun næsta
árs og verða starfsmenn 300
talsins.
Óvæntur fund-
ur í Bláa lóninu
.
Vöruskiptahalli í ágúst nam 12
milljörðum króna samkvæmt
nýbirtum tölum Hagstofunnar.
Fluttar voru út vörur fyrir 17,8
milljarða og inn fyrir 28,9
milljarða. Í ágúst í fyrra voru
vöruskiptin óhagstæð um 14
milljarða.
Vöruskiptahalli fyrstu átta
mánuði ársins er hins vegar um
þriðjungi minni en á sama tíma í
fyrra, reiknað á föstu gengi.
Hallinn nú er 66,5 milljarðar, en
var áður 103,8 milljarðar.
Greiningardeild Glitnis bendir
á að útflutningur hafi aukist um
ríflega 11 prósent milli ára á
föstu gengi, en dragist nú hins
vegar saman milli mánaða.
Samdrátturinn er rakinn til minni
útflutnings sjávarafurða í ágúst
en í júlí. „Ein skýring þessa kann
að vera sú að ýmsir útgerðar-
menn kusu að færa hluta þorsk-
kvóta á milli ára til að mýkja
áhrifin af kvótaskerðingu á
nýhöfnu fiskveiðiári,“ segja þeir
hjá Glitni.
Vöruskiptahalli
minni en í fyrra
Fjármálaeftirlitið (FME) athuga-
semdir við óbeint eignarhald
Nasdaq Stock Market á OMX
Nordic Exchange á Íslandi og
Verðbréfaskráningu Íslands.
Í frétt FME kemur fram að á
grundvelli laga um starfsemi
kauphalla og skipulegra tilboðs-
markaða hafi Nasdaq látið vita af
kaupum þess á virkum eignarhlut
í OMX AB en OMX Nordic
Exchange er í fullri eigu OMX
AB.
FME gerði Nasdaq grein fyrir
niðurstöðu sinni í gær, sama dag
og sænska fjármálaeftirlitið
tilkynnti að það teldi Nasdaq
hæfan aðila til þess að fara með
virkan eignarhlut í OMX AB.
Engar athuga-
semdir frá FME
Atorka hefur eignast um 20
prósenta hlut í Shanghai
Century Acquisition Corp
(SHA) sem skráð er á
AMEX-markaðnum í New
York í Bandaríkjunum.
Heildarverð kaupanna er
um tveir milljarðar króna
og hafa kaupin átt sér stað á
undanförnum vikum, að því
er fram kemur í tilkynningu
Atorku til Kauphallar í gær.
Kaupin fjármagnar
félagið með handbæru fé.
SHA er sagt félag sem stofn-
að er sérstaklega í þeim til-
gangi að sameinast öðru
félagi (svokallað SPAC-
félag) og hefur það samið
um kaup á kínverska lyfja-
fyrirtækinu Sichu-
an Kelun Pharma-
ceutical (Kelun)
með fyrirvara um
samþykki sam-
keppnisyfirvalda í
Kína. Atorka segir
það ferli í hefð-
bundnum farvegi.
Kelun er sagt leið-
andi fyrirtæki í
framleiðslu og
dreifingu á vökva í
æð í Kína. „Fyrir-
tækið rekur 13
verksmiðjur í Kína, starf-
rækir þar 53 söluskrifstof-
ur og er með um 6.800
starfsmenn. Kelun fram-
leiðir um 90 tegundir af
vökva og er heildar-
framleiðslugeta
félagsins um 1,4
milljarðar skammta
á ári. Félagið er
einnig í framleiðslu
á stungulyfjum og
lausasölulyfjum
(OTC),“ segir í til-
kynningunni og
bætt er við að fyrir-
séður sé mikill
vöxtur í heilbrigðis-
geiranum í Kína á
næstu árum. Þá
segist Atorka á undanförn-
um mánuðum hafa keypt
kauprétti Kelun sem nýtan-
legir séu þegar kaupin eru
gengin í gegn.
Keyptu fyrir tvo milljarða
Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050
Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is
Munið vinsælu
gjafabréfin okkar
Öll kasthjól – 40% afsláttur
Kaststangir 20-50% afsláttur
Fluguhjól 15-50% afsláttur
Flugustangir 15-50% afsláttur
Öndunarvöðlur frá 9.995
Veiðivesti frá 1.995
10 stk. spúnar aðeins 1.990
Lítið notaðar leiguvöðlur aðeins 5.000
Sjókayakar 15-30% afsláttur
Þurrbúningar og vesti 15-50% afsláttur
Valdar haglabyssur 20-30% afsláttur
Felufatnaður 15-50% afsláttur
Útsalan hefst í dag og lýkur 7. október
Vinsælustu vörurnar seljast alltaf upp fyrst
Sjókayakar, fatnaður og búnaður aðeins í Sportbúðinni Krókhálsi 5. Skotvopn og felugallar aðeins í
Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Leiguvöðlur aðeins í Veiðihorninu Síðumúla)
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
BARA Í FÁEINA DAGA