Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 12

Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 12
H2 CO2 O2 Eins og sjá mátti á nýaf- staðinni bílasýningunni í Frankfurt keppast bíla- framleiðendur heims nú við að sýna að þeir séu að gera sitt bezta til að draga úr umhverfisáhrifum bíla. Tvinntæknin virðist fara sigurgöngu. Hún getur brúað bilið til rafbíla fram- tíðarinnar. Þriðja grein af fjórum. Eins og að framan er rakið í þessum greinaflokki er í gangi mikið kapphlaup að finna orku- gjafa (eða -bera) sem komið geta í stað olíu og bensíns til að knýja bíla og að þróa tækni til að nýta nýja orkugjafa sem bezt. Í síðustu grein var þróun nýrra orkugjafa/-bera lýst og nokkrar tæknilausnir reifaðar en hér verður farið nánar út í þær tækni- legu lausnir sem bílaframleiðend- ur hafa komið fram með og hafa þegar sett á markað eða hafa boðað að verði fljótlega fáanlegar. Um árabil hafa verið fáanlegir litlir rafbílar, sem ekki komast langt á hverri hleðslu og komast heldur ekki hraðar en sem nemur innanbæjarumferðarhraða. Nota- gildi slíkra bíla er takmarkað, en þeir henta prýðilega til mengunar- lauss innanbæjarsnatts. Dæmi um slíka bíla sem fáanlegir eru í dag er Reva-bíllinn frá Indlandi. Þróun rafmagnsbíla tók nokk- urn kipp á níunda og tíunda ára- tugnum. Róttæk reglusetning stjórnvalda í Kaliforníu, sem mið- aði að því að draga mjög úr mengun frá bílaumferð (gera átti öllum helztu bílaframleiðendum að bjóða að minnsta kosti 2 pró- sent bíla sinna loftmengunar- lausa), ýttu mjög undir að bíla- framleiðendur þróuðu slíka bíla. Þekktasta dæmið um bíla sem út úr þessu komu var EV1-raf- magnsbíllinn frá GM. Frumgerð hans var sýnd árið 1990 en fyrsta framleiðslugerðin árið 1996. Rúm- lega 1.000 þessara rennilegu tveggja sæta bíla komust fram til ársins 2000 í hendur valinna kúnna í Kaliforníu og Arizona. Bíllinn var þó ekki seldur, heldur aðeins afhentur á kaupleigusamningi án þess að notandinn hefði kost á að kaupa bílinn. Árið 2003 – eftir málaferli bílaframleiðenda gegn Kaliforníuríki sem enduðu með því að gildistaka „ZEV-ákvæð- anna“ (zero-emissions-vehicle) frestaðist – ákvað GM að innkalla alla EV1-bílana og þeim var flest- um eytt. Notendum þeirra var ekki gefinn kostur á að kaupa þá. Talsmenn GM sögðu þá að stór þáttur í ákvörðunni hefði verið að ekki hefðu náðst þær framfarir í rafhlöðutækni sem vænzt hafði verið. Framleiðsla bílsins hefði heldur aldrei getað staðið undir sér. Þar sem risar eins og GM kipptu að sér höndum tóku lítil frum- kvöðlafyrirtæki við. Þekktasta dæmið um slíkt fyrirtæki, sem þróað hefur öfluga rafmagnsbíla sem fólk getur keypt, er Tesla í Kaliforníu. Að baki því standa menn sem vildu breyta ímynd raf- magnsbíla og ákváðu því að fyrsti bíllinn sem þeir byðu til sölu yrði sportbíll sem stæðist beztu bens- ínsportbílum snúning. Og það gerir Tesla Roadster sannarlega, bæði hvað útlit, hröðun, hámarks- hraða og drægi varðar. Til að ná þessum árangri nýttu aðstandend- ur Tesla Motors sér þróuðustu raf- hlöðutæknina sem er á markaðn- um núna – rafhlöðusamstæðan í Tesla Roadster er samsett úr ótal liþíum-fartölvurafhlöðum. Bíllinn er settur saman hjá Lotus í Eng- landi. Tesla Roadster kostar frá verksmiðju sem svarar 6,5 millj- ónum króna, en fyrirtækið hefur boðað að það muni fljótlega bjóða fólksbíl sem á að verða helmingi ódýrari en sportbíllinn. Svipaða leið og aðstandendur Tesla hafa fleiri bílaframleiðend- ur farið, sem á síðustu árum hafa kynnt til sögunnar tilraunabíla knúna rafmagni – það er sýnt að rafmagnsbílar þurfa ekki að vera ljótir og silalegir heldur geti þeir verið hraðskreiðir og spennandi. Dæmi um slíkan tilraunabíl er Mitsubishi Lancer Evo MIEV, sem kynntur var árið 2005. Hann fékk meira að segja tegundarviður- kenningu svo að Mitsubishi gæti skráð bílinn í aksturskeppni umhverfisvænna bíla í Japan, sem bíllinn vann með yfirburðum. MIEV stendur fyrir „Mitsubishi In-whell-motor Electric Vehicle“, það er rafbíll með rafmótorum í hverju hjóli. Þessi tækni gefur bílnum öflugt fjórhjóladrif – hver mótor skilar 50 kílówöttum en það samsvarar samtals um 270 hest- öflum. Þar að auki skila rafmótor- arnir samtals 518 Nm togi, sem samsvarar togaflinu í mjög stórri túrbódíselvél. Enda er hröðun bíls- ins frá núlli í 100 km hraða 6,9 sek- úndur. Það sem er spennandi við þessa tækni er að mikið pláss sparast þar sem í hefðbundnum sprengi- hreyfilsbíl er vél og drifbúnaður. Í tilraunabílnum nægði að setja raf- hlöður í plássið sem drifbúnaður- inn annars tók til að bíllinn kæm- ist 240 km á einni hleðslu. Aðalgallinn er sá að ófjöðruð þyngd eykst – rafmótorar eru þungir – og að hafa þennan við- kvæma rafbúnað úti í hjólunum kann að verða vandamál til dæmis í vetrarsnjóslabbi eða á vondum vegum. Hvað sem þessum vandamálum líður hefur Mitsubishi boðað að það muni setja MIEV-bíla á mark- að innan fárra ára. Sennilegast er þó að áður en hreinræktaður raf- magns-sportbíll eins og Lancer Evoinn verður fáanlegur komi „næstu kynslóðar“-tvinnbíls- útgáfa af MIEV-tækninni á mark- að. Það verði bíll með minni raf- mótora í hjólunum en jafnframt búinn lítilli bensínvél sem hleður rafgeymana og tryggir bílnum nokkur hundruð kílómetra drægi. Volvo kynnti einnig nýlega tengiltvinn-tilraunabíl með raf- mótora í hjólunum. Hann er búinn lítilli etanól-tvíorkuvél auk raf- mótoranna, og rafhlöðuna er hægt að hlaða úr innstungunni heima. Brennsluvélin fer ekki í gang fyrr en 70 prósent orkunnar í rafhlöð- unni hefur verið notuð. Þá má nefna hina svonefndu E- Flex-tvinnbílatækni frá General Motors, sem meðal annars var kynnt í Opel Flextreme-sýningar- bílnum á Frankfurt-sýningunni nú í september. Hann er búinn 1,3 lítra díselvél, 53 kW rafal og 16 kílówattstunda líþíum-rafhlöðu sem er endurhlaðanleg úr inn- stungu. E-Flex-tæknin var fyrst kynnt í Chevy Volt-bílnum á Detroit-sýningunni í vor. Í þeirri útfærslu var hún búin 1,0-lítra þriggja strokka bensín/etanólvél. Þegar bíllinn var sýndur á bíla- sýningu í Kína var bensínvélinni skipt út fyrir vetnis-efnarafal. Aðalhugmyndin að baki E-Flex- undirvagninum er að rafmagns- drifshlutinn sé eins í öllum útfærslum en brennsluvélin sem við hann er tengdur fari eftir því hvers konar eldsneyti er hag- kvæmast á hverju markaðssvæði. Með þessu geti GM boðið upp á samkeppnishæfa tvinnbíla í útgáfum sem lagaðar eru að hverju markaðssvæði. Ford hefur einnig sett á hjólin vetnis-efnarafals-tengiltvinnbíl. Verið er að prófa þá tækni í Ford Edge-jeppa vestra. Kostirnir við þá tækni segja talsmenn Ford vera að efnarafallinn geti verið miklu minni, léttari, einfaldari, ódýrari og langlífari en í bíl sem eingöngu er knúinn efnarafal. Engu að síður er þessi tækni mjög dýr og útlit fyrir að langt sé í að hún verði samkeppnisfær við tvinnbíla með hefðbundnum brennsluvélum, ef hún verður það nokkurn tímann. Þessi vetnis-tengiltvinntækni er hins vegar aðeins á algjöru til- raunastigi enn sem komið er. Aftur á móti veitir Ford nú þegar Toyota harða samkeppni á mark- aðnum fyrir tvinnbíla í Banda- ríkjunum með Escape Hybrid- jepplingnum. Hann er þó ekki enn til sölu í tengiltvinnútgáfu, eins og Toyota hefur boðað að Prius- inn, mest seldi tvinnbíllinn, verði innan skamms. Brimborg, umboðs- aðili Ford, hefur unnið að því að fá að flytja Escape tvinnbílinn hingað til lands, en fram til þessa hefur Ford haft þá stefnu að selja tvinnútgáfuna ekki utan Banda- ríkjanna. Það kann þó að breyt- ast. Þótt nú sé útlit fyrir sigurgöngu tengiltvinntækninnnar – þar sem hún býður upp á óskert notagildi en stóraukinn hlut rafmagns í að knýja bíla – er vert að hafa í huga að sú tækni felur alltaf í sér þann galla að bíllinn er búinn tvöföldu drifkerfi, sem þýðir að þegar hann er drifinn rafmagni burðast hann um með þunga brennsluvél og eldsneytistank sem „dauða þyngd“. Og öfugt. Framtíðin hlýtur því að liggja í hreinræktuð- um rafmagnsbílum, en forsenda fyrir því er að rafhlöðutæknin taki allstórstígum framförum. Þangað til að því kemur brúar tengiltvinn- tæknin bilið. Rafbíllinn fær uppreisn æru H im in n o g h af /S ÍA Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Rýmum fyrir 2008 línunni AFSL ÁTTU R AL LT AÐ 600. 000 KR. Nú er tækifæri til að kaupa draumahjólhýsið á gjafverði. Við bjóðum 2007 árgerðina með 200–600 þúsund kr. afslætti og geymum hýsið til vors, þér að kostnaðarlausu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.