Fréttablaðið - 29.09.2007, Síða 18
F
áum dögum
fyrir opnun
yfirlitssýn-
ingar á
Kjarvals-
stöðum var haldinn
blaðamannafundur í
Landsbankanum í
Austurstræti þar sem
uppi voru stór
málverk Eggerts
Péturssonar sem
bankinn átti. Þar kom
að eitt þeirra var
tekið niður og Hafþór
Yngvason, forstöðu-
maður Listasafns
Reykjavíkur, og
Halldór Kristjánsson
bankastjóri innsigl-
uðu samstarf sitt um
sýningu Eggerts með
handabandi og
ljósmyndarar smelltu
af. Þegar þeir áttuðu
sig á að listamaður-
inn stóð meðal
áhorfenda var Eggert
til kallaður og beðinn
að vera með á mynd.
Viðstaddir sáu hann
ganga inn í þennan
ramma tilknúinn,
tilneyddan, því ef
eitthvað er Eggerti
Péturssyni ólíkt þá er
það tilhneigingin að
trana sér fram.
Eggert er maður
vikunnar, raunar
mánaðarins, en
aðsókn hefur verið
góð að yfirlitssýn-
ingu hans á Kjarvals-
stöðum og við opnun
á smámyndasýningu
hans í Galleríi i8
seldust öll verkin
upp, sumpart vegna
þess að eftirspurn er
slík eftir verkum
hans og margir
raunar orðnir
óþolinmóðir að fá
eftir hann mynd, að
biðlisti hefur
myndast. Þann dag
hafa því bæði
galleríið með sín
fjörutíu prósent og
listamaðurinn fengið
laun fyrir sinn hlut.
Biðlistinn er til fyrir
þá sök að vinnu-
aðferð Eggerts er
tímafrek: hann er lengi að vinna verk sín sem eru í
stærri kantinum, þau heimta mikla yfirlegu í
smágerðu myndefni sínu enda er það sá eiginleiki,
hinn innri heimur verkanna í miklum fjölbreyti-
leika, sem hefur heillað aðdáendur málarans.
Athygli blaðamanna á snarpri sölu verka í Gallerí
i8 minnti á áhuga fyrri tíma þegar bæði Sverrir
Haraldsson og áður Jóhannes Kjarval seldu öll verk
á sýningum á opnunardegi. Minni athygli vakti sú
staðreynd að blómamyndir málaðar með olíu, sem
hafa um langan aldur verið heldur forsmáð efni í
listsköpun, fengu í sölunni síðbúna uppreisn. Og
njóta þegar allt kemur til alls vinsælda hjá þeim
hluta listáhugamanna sem kaupir myndverk.
Eggert dregur enga dul á að hann hafi snemma
haft áhuga á blómum, safnað þeim í pressu sem
barn. Sú árátta að hafa auga fyrir formum og litum
blóma og gróðurs
hefur fylgt honum á
unglingsár: hann tók
að sækja námskeið í
myndlist og lenti á
tímabili í námi í
tveimur skólum,
menntaskóla og
myndlistarskóla, svo
mikið álit höfðu
menn á teiknigáfum
hans. Hann endaði
um síðir í nýlista-
deild og tók sinn
þroska út undir
handleiðslu
Magnúsar Pálssonar
með konseft-listina
sem tísku dagsins.
Áhrif konseftsins
eru rík á vinnu
Eggerts og eru rakin
á sannfærandi hátt í
nýútkomnu riti
Listasafnsins um
feril hans. Þar
kemur fram að hann
var einn þeirra sem
stóðu að Suðurgötu 7
frá 1977-1981, var
einn þeirra sem
stóðu að listtímarit-
inu Teningi og átti
einnig hlut að
tímaritinu Svörtu á
hvítu.
Hann var semsagt
í miðju þeirra átaka
sem umskópu
nútímalistina hér á
landi eftir tíma
súmmaranna. Verk
Eggerts ríma aftur
heldur illa við þann
heim. Hann
menntaðist aftur í
Hollandi og
viðurkennir að hafa
lagt sig eftir bæði
teikningu og
pensiltækni þar í
verkum endur-
reisnarmálaranna
hollensku. Hann
dvaldi um langt
skeið í Leeds þar
sem kona hans var
við framhaldsnám
og vann á þeim tíma
fá en mikilvæg verk
sem eru nánast
ómannleg í inn-
byggðri kröfu um
tækni og þolgæði.
Þau eru bæði á
sýningunni á Kjarvalsstöðum.
Eggert er hlédrægur maður, sumir myndu kalla
hann feiminn. Hann er seintekinn segja vinir hans
en er góður félagi, glaður í sínum hópi, ákafa-
maður um áhugamál sín, sökkvir sér í efni sem
hann vill sinna. Slíkt skapferli þarf til að ná
árangri, eins og sjá má í verkum hans.
Eggert hefur kennt, en um langan tíma hefur
hann lifað af list sinni. Verk hans eru í svo miklu
áliti og eru keypt jafnharðan. Sýningar hans í
Reykjavík draga fram að ferill hans er fjarri því
að vera eintóna, þvert á móti eru þessi næstum
þrjátíu ár til marks um stöðuga viðleitni, þolgóða
ástundun á vettvangi afmarkaðra viðfangsefna,
þar sem lykilverk frá hverju tímabili sýna stökk í
stíl, og eins og hann segir sjálfur um smá og stór
efnisatriði í verkum sínum: „Það er úthugsað.“
Byltingarmaður
blómamyndanna
4
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
Taktu Lottó í áskrift! 580 2530
Sölusta›ir lotto.is
Fjórfaldur
pottur
stefnir í
20 milljónir.
Er komi›
a› flér?
Ná›u flér í Lottómi›a fyrir
kl. 18.40 á laugardag.