Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 22

Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 22
Í morgun mættu tveir heiðurs- menn frá Símanum og stungu breiðbandinu aftur í samband. Bilunin var hjá Símanum niðri í gamla Landssímahúsi. Kostaði mig fimm daga sjónvarpsleysi og 6.200 kr. fyrir að kalla út rafeinda- virkja til að leita að biluninni. Símamennirnir skoðuðu breið- bandsinntakið og hurfu síðan á braut. Svo hringdu þeir og sögðu mér að kveikja á sjón- varpinu – sem svín- virkaði. Ég spurði hvar bilunin hefði verið. Þá kom dáldil þögn. Bilunin var nefnilega ekki á mínum enda heldur hjá Símanum, niðri í gamla Landssímahúsinu. Alla vega er ég feginn að þetta er komið í lag og viðgerðarmennirnir voru ekkert nema þægilegheitin. Fann skemmtilega hugmynd á netinu, bookcrossing.com. Bookcrossing virðast vera samtök fólks sem vill frelsa bækur. Bækur frelsar maður með því að taka skruddur sem maður er búinn að lesa og skilja þær eftir einhvers staðar, innan- húss eða innpakk- aðar á víðavangi með kveðju til finn- and- ans og áskor- un um að taka þátt í að frelsa fleiri bækur og gera alla veröldina að ókeypis bókasafni. Ég hef stundum skilið eftir bækur á kaffihúsum í von um að gleðja einhvern óþekktan finn- anda svo að mér finnst skemmti- legt til þess að vita að upp skuli vera risin alþjóðleg hreyfing fólks sem hefur ánægju af að dreifa bókum ókeypis. Það er vitanlega hægt að frelsa fleiri hluti en bækur. Til dæmis gætu milljarðamæringarnir okkar skemmt sér við að frelsa peninga sem komast ekki fyrir í bókhald- inu með góðu móti eða skartgripi sem þeir eru orðnir leiðir á eða bíla sem eru ekki lengur nýjasta árgerð. En bækur eru samt verð- mætastar. Laugardagurinn fór í undirbúning og í dag var haldin bylmings afmælisveisla til heiðurs litlu Sól. Þetta var góður gleðskapur. Össur frændi rak inn skeggjaðan haus- inn fyrri part dagsins og var vel fagnað en hið formlega samkvæmi hófst klukkan þrjú. Ég bakaði 63 mini-pizzur eða örbökur og er stoltur af því að börnin voru ennþá gráðugri í þær en í sætabrauðið og terturnar. Hveiti er að vísu fíkniefni eins og sykur en einhver smá hollusta hlýtur þó að leynast í tómatsósu sem er búin til úr ferskum rauðald- inum, geirlauk og meyjarútgáfu af ólífuolíu. Svo notaði ég líka spelt en ekki hveiti en í augnablik- inu er það talið hollara. Reyndar þykja mér marengskökurnar sem systir mín bakar bragðbetri en speltbrauð og ég held að óhollusta í hófi sé holl fyrir bæði börn og fullorðna. Einu sinni fyrir langa löngu reyndu Jesúítar að kenna mér heimspeki. Það var í kaþólska háskólanum í Dublin. Ekki höfðu blessaðir prestarnir erindi sem erfiði því að mér þóttu þessi fræði bæði þurr og þungmelt og undar- lega langt frá slagæð lífsins. Engu að síður náðu þeir að leiða mér fyrir sjónir að margir heimspek- ingar hafa verið prýðilega greindir og hugsað margt af skynsamlegu viti. Ekki sýndist mér þó að mikil gifta fylgdi heimspekinni því að margir helstu spekingar sögunnar voru þunglyndir bölsýnismenn og skrifuðu knúsaðan texta. Til að mynda verður Schopen- hauer seint flokkaður sem brand- arakarl en engu að síður leynir hann á sér. Kímni- gáfu hlýtur sá maður að hafa sem segir –„Lífið er hráslagalegt fyrirbæri. Ég ætla að eyða því í að pæla í því.“ Það var þó ekki almennur skortur heimspekinga á kímni- gáfu sem olli því að ég átti erfitt með að festa hugann við heim- spekinámið heldur sú staðreynd að ég gat ekki með nokkru móti komið auga á að þessi þungbúna fræði- grein gæti komið nokkrum lif- andi manni að notum. Þetta segir auðvitað meira um andlegan þroska minn á þessum tíma en heimspek- ina. Í síðustu viku var ég að snuðra í Eymunds- son og keypti af rælni lítið kver frá Mörgæsa- útgáfunni bresku sem heitir „The Consolations of Philo- sophy“ og er eftir Alain de Botton. „Consolation“ þýðir jú huggun og mér þótti titill- inn forvitnilegur. Alain þessi er fæddur í Sviss en mennt- aður og búsettur í Bretlandi og hefur sett sér það takmark að fjalla þannig um heimspeki að les- andanum finnist þessi fræði eiga erindi við sig. Það er skemmst frá því að segja að Alain de Botton opnar upp á gátt fyrir manni dyr þar sem enga glufu var áður að sjá og leiðir mann að dúkuðu borði frjórrar hugsunar. Bókina um hugsvölun í heimspekinni gleypir maður í sig eins og reyfara og saknar þess að hafa ekki áður sóst eftir meiri félagsskap við karla eins og Sókrates (sem sættir mann við óvinsældir), Epíkúrus (sem sættir mann við að vera alltaf blankur), Seneca (sem sættir mann við vonbrigðin), Montaigne (sem sættir mann við að vera svona takmarkaður), Schopenhauer (sem sættir mann við vonbrigði í ástum) og Nietzsche (sem sættir mann við erfið- leika). Þetta er frábær bók sem bæði huggar og gleður. Ég er feginn að ég skyldi ramba á hana hjá Eymundsson. Þegar ég er búinn að lesa hana aftur ætla ég að frelsa hana með því að skilja hana eftir á förnum vegi handa öðrum lesanda sem þarf á huggun heimspekinnar að halda. Það var mál til komið að ég fyndi einhverja huggun því að satt að segja verð ég stundum voðalega niðurdreginn af því að mér finnst að allt umhverfi mitt hafi upplit- ast í risavöxnum heilaþvotti og hringsnúist um peninga og aftur peninga. Ef ekki krónur þá evrur. Ef ekki evrur þá dollara. Ef ekki peninga þá hlutabréf. Það er endalaust framboð á upplýsingum en ekki visku, gulli en ekki verð- mætum, hávaða en ekki kyrrð, vinnu en ekki tómstundum, streitu en ekki hvíld, samkeppni en ekki sam- kennd. Bókin kostaði 1.495 kr. Inni- haldið er á við nýbónaðan Porsche- jeppa, lax- veiðijörð, Rolex-úr, og pönnukökur með rjóma og sultutaui. Ódýr bók en mikils virði. Mikið vildi ég fá að lifa þann dag sem peningar verða loks- ins aflagðir sem mælikvarði á eitt eða neitt nema í hæsta lagi gang- verð á sveskjusteinum. Ég veit ekki hvort ég er einn um það, en í svona rigningarsudda dag eftir dag á ég mjög erfitt með að vakna á morgnana. Mér finnst ég eiginlega vera hálfsofandi allan guðslangan daginn. Það gerir reyndar ekkert til því að ég þarf ekki að sinna neinum áríðandi verkefnum í augnablik- inu. Ég er frjáls frá lyklaborðinu í bili. Til jóla ætla ég að fást við það sem mér finnst skemmtilegast en það er að mála. Svo ætla ég líka að frelsa nokkrar bækur. Gangverð á sveskjusteinum Í Dagbók Þráins Bertelssonar er skýrt frá því hvernig farið er að því að frelsa bækur. Einnig er vikið að heilbrigði og hæfilegri óhollustu, heimspeki, Schopenhauer sem húmorista og lítilli bók sem er á við tvær laxveiðijarðir og rjómapönnukökur. Kraftmiklar ryksugur fyrir öll heimili Verð frá kr.: 15.990 Miele ryksugur – litlar og liprar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.