Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 28
Fjögur almenn bifreiðaverk-
stæði fengu fyrr í þessum
mánuði starfsemi sína gæða-
vottaða frá Bílgreinasamband-
inu. Þau urðu þar með fyrstu
verkstæði landsins til að upp-
fylla svokallaðan BGS-staðal
um vandaða starfsemi og góða
þjónustu.
Verkstæðin sem um ræðir eru Bíl-
son og Kistufell í Reykjavík og
Bílvogur og Bifreiðaverkstæði
Friðriks Ólafssonar í Kópavogi.
Markmiðið með vottun sem þess-
ari er að auka gæði í starfsemi og
þjónustu verkstæðanna, svo að
bæði verkstæðin og viðskiptavinir
þeirra beri hag af. Eigendur verk-
stæðanna fengu viðurkenningar-
skjal til staðfestingar á vottuninni
og merki til að hengja upp til
sýnis. Í framtíðinni mun svo BSI á
Íslandi fylgjast með starfseminni
til að tryggja að gæðastöðlum sé
viðhaldið.
Það sem felst í vottun sem þess-
ari er meðal annars sú ánægjulega
staðreynd að viðskiptavinir fá fast
tilboð í kostnaðarmat á viðgerð,
þjónustan er vel skilgreind og
áætlaður tími viðgerða stenst,
nema annað komi upp. Það er því
augljós hagsbót að slíkri vottun.
Vélaverkstæðum, málningar- og
réttingarverkstæðum og smur-
stöðvum býðst einnig að fá gæða-
vottun frá Bílgreinasambandinu
og til þess þarf að fara þessa leið:
Kaupa bækling með BGS-staðlin-
um hjá BSI á Íslandi, sækja nám-
skeið hjá BSI á Íslandi, óska eftir
fyrstu úttekt ef þörf er á, sækja
um að þjónustan verða BGS-
vottuð, ákveða dagsetningu fyrir
vottunarúttektina, fá staðfestingu
á vottun og viðhalda svo gæðum
og þjónustustigi með aðstoð BSI á
Íslandi.
Aukinn hagur allra
Burðarmiklir
MAN-bílar
Kraftur við Vagnhöfða
kynnir í dag tvær nýjar týpur
Man-vörubíla milli klukkan
12 og 16.
Nýju bílarnir heita MAN TGX og
Man TGS og eru stærstu og burðar-
mestu MAN-bílarnir sem gerðir
hafa verið. Boðið er upp á nýtt úrval
véla, þar á meðal er ein sú aflmesta
fyrir fjöldaframleiddan flutninga-
bíl, átta strokka V-vél sem er 680
hestöfl og tog hennar er 3.000 Nm.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.