Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 30
Ný bretti eru komin til sögunnar. Þau eru nokk-
urs konar blanda af hjólabrettum, snjóbrettum
og brimbrettum og börn eru fljót að ná tökum á
þeim.
„Brettin sameina góða líkamsrækt og skemmtun,“ segir
Lára Sigrúnardóttir sem kynntist nýrri gerð bretta nú í
sumar. „Sonur minn Arnar Bragi kom með svona bretti
frá Svíþjóð. Pabbi hans býr þar. Mér fannst þetta svo
sniðugt því drengurinn var svo mikið í tölvunni að þetta
var eins og himnasending. Þarna fær hann góða hreyf-
ingu og fer allra sinna ferða á brettinu núna,“ segir
Lára.
Brettin eru með tveimur hjólum, að framan og aftan
og eru notuð á vissan hátt. „Þetta eru ekki eins og venju-
leg hjólabretti þar sem menn ýta sér áfram heldur þarf
að sveigja til mjaðmirnar til að komast úr sporunum.
Því er þetta góð æfing fyrir maga, læri og mjaðmir,“
lýsir Lára. „Þetta er sambland af hjólabrettum, snjó-
brettum og brimbrettum en kosturinn við þau er að
ekki þarf neina sérstaka kunnáttu í meðferð þeirra
heldur tekur aðeins fáeinar mínútur að læra á þau.“
Lára kveðst hafa flutt inn nokkur bretti og er byrjuð
að kynna þau í skólum á Suðurnesjum. Fleiri kynningar
eru á dagskrá bæði í 88 húsinu í Reykjanesbæ í dag og
á morgun og eins í skólum á höfuðborgarsvæðinu.
„Brettin hafa notið vinsælda í skólum erlendis, meðal
annars í Bandaríkjunum, Danmörku og Svíþjóð. Þar er
sá háttur hafður á að skólarnir fá bretti lánuð í vissan
tíma hver og leyfa krökkunum að prófa. Við höfum
fengið góðar viðtökur því kennarar telja brettin styrkj-
andi og æfa vel jafnvægisskynið hjá krökkunum.“
Lára segir tvær stærðir til af brettunum, annars
vegar fyrir börn frá sex til tólf ára og frá tólf og upp úr.
Spurð hvort börnin geti ekki dottið og slasað sig á þess-
um nýju farartækjum svarar hún. „Það er auðvitað
æskilegt að vera með hnjáhlífar og hjálma þó svo að
brettin fari ekki á neinum flughraða.“
Lærist á fáeinum mínútum
30. september 2007
WORLD HEART
FEDERATION®
A H E A R T F O R L I F E
Co-sponsored by:
Heilbrigt hjarta með samvinnu
Þema Alþjóðlega hjartadagsins í ár heilbrigt hjarta með samvinnu hvetur fólk til að vinna saman að því að
skapa heilbrigt samfélag án hjartasjúkdóma. Hornsteinar samfélagsins svo sem fjölskyldan, skólarnir,
vinnustaðirnir og félagasamtök stuðli að reyklausu umhverfi, reglubundinni hreyfingu og bættu mataræði.
Stöndum saman og tökum þátt í Alþjóðlega hjartadeginum þann 30. september.
W
o r
ld
He
ar
tF
e d
er
a t
io
n.
©
Lo
i s
Gr
ee
nf
ie
l d
Supported globally by: Supported locally by:
Alþjóðlegi hjartadagurinn
Hjarta dagurinn
Kópavogur
Dagskrá Hálsatorgi Kópavogi.
kl. 10.50 Hjartadagshlaup
3 km hlaup hefst 10.50,
en 5 og 10 km kl 11.00 .
kl. 11.15 Hjartaganga
frá Hálsatorgi um Kópavog undir
leiðsögn Björns Þorsteinssonar.
kl. 11.30 Hjartahreysti
Þrautabraut í anda Skólahreystis
fyrir unglinga og hoppikastalar
fyrir yngstu börnin.
kl. 13.00 Skemmtidagskrá
Sveppi kynnir.
Persónur úr söngleiknum
Gretti mæta.
Verðlaun veitt fyrir
Hjartadagshlaupið og Hjartahreysti.
Söngkonan Kristjana Skúladóttir
syngur fyrir börnin lög af Obbosí.
Hara systur koma fram.
silico
l
ER
MAGINN
VANDAMÁL?
Silicol hjálpar!
Fæst í öllum apótekum