Fréttablaðið - 29.09.2007, Page 42
hús&heimili
Fagrir munir úr tré finnast í Tjarnarsal Ráð-
hússins þangað til síðdegis á morgun. Sumir
þeirra eru bæði skraut- og nytjahlutir,
eins og skálar, vasar og lampar, aðrir
flokkast sem listmunir bæði á borð og
veggi. Allir eiga þeir sameiginlegt
að vera handverk meðlima í Félagi
rennismiða á Íslandi sem sýnir
nú í þriðja sinn í Ráðhúsinu.
Einn þeirra sem á muni
á sýningunni heitir Úlfar
Sveinbjörnsson. Hann
kveðst hafa byrjað að
bauka við rennismíðina í bíl-
skúrnum sínum árið 1999, þá
59 ára en þar áður hefði hann
rennt síðast þegar hann var í
tólf ára bekk í Laugarnesskólanum
í Reykjavík. „Það leið ansi langt á milli.
Alltof langt. En áhuginn var alltaf fyrir
hendi,“ segir hann.
Úlfar kveðst helst ekkert nota nema ís-
lenskt efni og nefnir birki, gullregn og reyni.
„Það er gaman að leyfa kvistunum og hinum
náttúrulegum vindum efnisins að njóta sín.
gun@frettabladid.is
Lampi úr birki,
mahóni- og sedru-
sviði eftir Úlfar
Sveinbjörnsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Lampi með sam-
settum skermi úr
ýmsum viðar-
tegundum eftir
Inga B. Guð-
jónsson.
Regnhlíf-
astandur
eða stór vasi
eftir Trausta B.
Óskarsson.
Vasi úr birki eftir Jóhann
Sigurjónsson.
Skrautmunir úr skóginum
Skjöldur eftir
Jóhann Sigurjónsson
29. SEPTEMBER 2007 LAUGARDAGUR10