Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 61
lögum hvers árs í stað þess að
koma með fjáraukalög til að fá
heimildir fyrir óvissuútgjöldum.
Við erum að undirbúa þetta núna,
það verður ekki hægt að gera það
í fjárlögum ársins 2008 en vonandi
verður hægt að gera þetta í fjár-
lögum ársins 2009,“ segir Árni.
Hann segir að aldrei verði hægt
að sleppa alveg við að leggja fram
fjáraukalög, meðal annars vegna
ýmissa reiknaðra stærða sem séu
ófyrirsjáanlegar. Undanfarið hafa
þess konar útgjöld verið um helm-
ingur af fjáraukalögum.
„Þetta ætti að kalla á meiri aga
þegar menn eiga ekki þann mögu-
leika að fá eitthvað út úr fjárauka-
lögunum. Það verður búið að áætla
fyrir fram og það verður bara að
duga,“ segir Árni. Þetta mun þýða
talsverðar breytingar á fjárlaga-
gerðinni, og í raun þarf allt kerfið
að laga sig að þessari breytingu.
Með þessu mun aukast enn frek-
ar pressan á einstök ráðuneyti að
leysa úr vandræðum sem upp
koma, til dæmis þegar ákveðnar
stofnanir fara ár eftir ár fram úr
fjárheimildum, og fá ár eftir ár
heimildir á fjáraukalögum.
„Það þarf að leysa veikleikana í
fjárlögunum sjálfum, og áður en
menn geta farið að setja peninga í
ný verkefni verða menn að vera
búnir að leysa slíka veikleika. Svo
er hægt að forgangsraða nýjum
verkefnum,“ segir Árni.
Takmörkun á fjáraukalögum
verður að setja í samhengi við
rammaáætlun fjárlaga til nokk-
urra ára, segir Árni. Þannig verði
ráðherrar að forgangsraða, og ef
þeir vilji fara út í ný verkefni
verði þeir að sleppa öðrum eða
skapa svigrúm með öðrum hætti.
Leiðin til þess að
stjórnendur axli
aukna ábyrgð í sam-
ræmi við það frjáls-
ræði sem þeir hafa á
ekki að þurfa að vera
í gegnum einhver svo-
leiðis tæki. Það á fyrst
og framst að vera í
gegnum metnað.
DAGUR
ÆSKU
LÝÐSS
TARFS
MÁLÞING UM GILDI
ÆSKULÝÐSSTARFS,
29. SEPTEMBER KL. 14:00
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
DRÓTTSKÁTASVEITIN DÍMON
GYLFI JÓN GYLFASON
SÁLFRÆÐINGUR
KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR
AFREKSÍÞRÓTTAKONA
BJARNI TÖFRAMAÐUR
STEFÁN EIRÍKSSON
LÖGREGLUSTJÓRI
ICESTEP DANSHÓPURINN
TORFI TÓMASSON
VITNISBURÐIR
FRÁ STARFI AÐILDARFÉLAGA
KLIFURVEGGUR, KASSAKLIFUR,
NÆLUGERÐ, BLÖÐRUR
OG MARGT FLEIRA
LEIKTÆKI ERU OPIN MILLIKL. 13 OG 17
Bandalag íslenskra skáta