Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 74
Við gerðum okkur kannski óþarflega erfitt fyrir 1. deild karla í fótbolta Meistaradeildin í handbolta Valsmenn verða Íslands- meistarar í fyrsta sinn í tuttugu ár vinni þeir HK á heimavelli sínum á Laugardalsvelli í dag, en það er annað en að segja það ef marka má gengi liðsins í Dalnum í sumar. Valsliðið hefur ekki unnið í síðustu fjórum heimaleikjum sínum í deild eða bikar, á sama tíma og liðið hefur unnið sjö útileiki í röð. Síðasti heimasigur Vals var gegn FH 27. júní síðastliðinn. Það bjargar kannski Hlíðarendapiltum að gengi HK á útivelli er hræðilegt, liðið gerði markalaust jafntefli í fyrsta útileiknum en hefur síðan tapað sjö útileikjum í röð með markatöluna 3-21 samanlagt. Unnu síðast heima í júní Valsmaðurinn Kristinn Hafliðason getur í dag orðið Íslandsmeistari með sínu þriðja félagi og um leið jafnað ársgamalt afrek Sigurvins Ólafssonar en FH var þriðja félagið sem hann vann titilinn með þegar Hafnarfjarðarliðið varð Íslandsmeistari í fyrra. Kristinn hefur orðið fjórum sinnum Íslandsmeistari; 1997 og 1998 með ÍBV og svo 2002 og 2003 með KR. Kristinn hefur þegar upplifað það tvisvar sinnum að vinna titilinn í lokaumferðinni, en hann var í byrjunarliði ÍBV sem vann KR 2-0 í 18. umferð 1998 og einnig í byrjunarliði KR sem tryggði sér titilinn 2002 með 5-0 sigri á Þór í lokaumferðinni. Kristinn getur því orðið fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem vinnur titilinn með þremur félögum í lokaumferðinni. Kristinn hefur komið inn á sem varamaður í þremur leikjum í sumar, skorað eitt mark og átt eina stoðsendingu. Getur náð ein- stökum árangri Gummersbach vann næsta auðveldan sigur á Val, 24-33, þegar liðin mættust í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gær- kvöldi. Þýska stórliðið keyrði yfir Val fyrstu 20 mín- útur leiksins og lagði grunninn að öruggum sigri. Gummersbach var númeri of stórt fyrir Val. Leik- menn liðsins virkuðu stressaðir og óöruggir enda fáir leikmenn liðsins sem hafa reynslu af svo stór- um leikjum. Þegar staðan var 3-3 skoruðu Valsmenn ekki í fjórtán mínútur og gestirnir náðu tíu marka for- ystu, 3-13. Snérist leikurinn í kjölfarið um það hvoru megin við tíu mörkin munurinn á liðunum yrði í lokin. Valsmenn sýndu karakter að missa lið Gummersbach ekki enn lengra frá sér og var gaman að sjá liðið fagna hverju einasta marki þótt munurinn á liðunum væri mikill. Alfreð Gíslason, þjálfari Gummersbach, sagði eftir leikinn að hans lið hefði ætlað að nýta sér slæma byrjun Vals í N1-deildinni. „Það er ljóst á slæmri byrjun Vals að liðið skortir sjálfstraust og við ætluðum að nýta okkur það. Hefðum við ekki byrjað af krafti hefði sjálfstraust Valsmanna aukist og þá hefði leikurinn orðið erfiður. Valmenn eru með efnilegt lið sem ég þekki vel en ég hugsa að riðillinn sé of sterkur til að þeir komist áfram.“ Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var ánægður með síðustu 40 mínútur leiksins og sagði liðið geta byggt á því í komandi verkefnum. „Við munum byggja á góðri spilamennsku síðustu 40 mínúturnar. Við verðum betri með hverjum leiknum og fer þessi leikur í reynslubankann. Það er mjög gott að vera í svo sterkum riðli. Menn eru í þessu til að mæta þeim bestu og það mun bara styrkja okkur,” sagði Óskar Bjarni í leikslok. - Slæm byrjun varð Val að falli Lokaumferð Landsbanka- deildar karla fer fram í dag kl. 14.00 þar sem Íslandsmeistarar verða krýndir og eitt lið fellur úr deildinni. Fréttablaðið fékk því Ásmund Arnarsson, þjálfara Fjölnis, til þess að spá í spilin fyrir lokaátökin, en lið Fjölnis vann sér einmitt á dögunum sæti í efstu deild að ári. Keflavík mætir ÍA í leik þar sem heimaliðið spilar upp á stoltið og vill væntanlega hefna ófaranna úr fyrri leik liðanna, en ÍA þarf hins vegar nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um þriðja sætið. „Það áttu sér stað ákveðin atvik í leiknum upp á Skaga fyrr í sumar og það verður fróðlegt að sjá hvernig liðin mæta stemmd í þennan leik, sem og stuðnings- menn liðanna. Lið Keflavíkur hefur verið heillum horfið upp á síðkastið en Skagaliðið hefur að öllu að keppa og ég á því von á Skagasigri, 0-2,“ sagði Ásmundur og útilokaði ekki að Bjarni Guð- jónsson myndi skora í leiknum. KR mætir Fylki í mikilvægum leik fyrir bæði lið, en KR er í bull- andi fallbaráttu og Fylkir að berj- ast um þriðja sætið. „Það er mikið undir hjá báðum liðum og ég held að þetta verði hörku baráttuleikur sem endi með 1-1 jafntefli,“ sagði Ásmundur. Breiðablik siglir lygnan sjó um miðja deild en sama verður ekki sagt um mótherja þeirra í Fram sem eru á kafi í fallbaráttunni. „Blikarnir hafa svo sem ekki að miklu að keppa en Framarar eru með bakið upp við vegg og ég tippa á að þeir nái að sigra í leikn- um, 0-1, með marki frá Jónasi Grana,“ sagði Ásmundur, sem kvaðst þó hrifinn af spilamennsku Breiðabliks í sumar. Víkingur vermir botnsætið fyrir lokaumferðina og þarf nauðsyn- lega á stigi eða stigum að halda þegar liðið mætir FH. Hafnar- fjarðarliðið þarf einnig á sigri að halda í leiknum og verða að sama skapi að treysta á að HK vinni eða geri jafntefli við Val. „Víkingar eru vitanlega í vondri stöðu og FH þarf nauðsynlega á sigri að halda, en í raun hafa bæði liðin verið að ströggla dálítið upp á síðkastið þannig að ég held að 0-0 jafntefli verði niðurstaðan,“ sagði Ásmundur. Valsmenn geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar þeir mæta HK sem er í fallbaráttunni, en stendur þó best að vígi af kjall- araliðunum fyrir lokaumferðina. „Valsmenn eru með sjálfstraustið í botni og á blússandi siglingu og ég á ekki von á öðru en að þeir vinni leikinn öruggt, 3 eða 4-0 og verði í kjölfarið meistarar,“ sagði Ásmundur að lokum. Lokaumferð Landsbankadeildar karla fer fram í dag þar sem skorið verður úr um hvort Valur eða FH verði Íslandsmeistari og hvaða lið endar í fallsætinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.