Fréttablaðið - 29.09.2007, Qupperneq 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Hilmar Snorrason
Strákafélagið Styrmir datt út úr
heimsmeistaramóti samkyn-
hneigðra í fótbolta í Argentínu á
fimmtudaginn. „Á þriðjudeginum
spiluðum við á móti liði frá San
Francisco og unnum leikinn fimm
eitt. Þar með vorum við öruggir
áfram í sextán liða úrslitin og í
fyrstu deildina,“ útskýrði Haf-
steinn Þórólfsson, þjálfari liðsins,
í samtali við Fréttablaðið. Í sex-
tán liða úrslitunum lék Styrmir á
móti öðru liði frá San Francisco,
og datt þar með úr keppni. „Þetta
er samt bara frábær árangur,
miðað við hvað liðið er ungt. Að
komast í fyrstu deildina er frá-
bært,“ sagði Hafsteinn ánægður.
Hann segir liðið hafa myndað
tengsl við önnur lið, og að Styrmir
hafi fengið boð um að keppa á
mótum í New York og Boston.
„Svo hafa mörg lið lýst áhuga á að
koma til Íslands ef við höldum
mót, sem gæti vel orðið,“ sagði
Hafsteinn.
Liðsmenn ætla flestallir að
dveljast í Argentínu í nokkra
daga til viðbótar, og tínast svo
heim hver af öðrum. „Sumir fara
beint aftur, aðrir ætla til New
York í nokkra daga og nokkrir
okkar ætla að halda áfram til
Perú og Bólivíu. Þetta er búið að
vera mjög mikið ævintýri, sem er
bara rétt að byrja hjá sumum,“
sagði Hafsteinn.
Strákarnir í Styrmi úr leik
Ekki verður annað sagt en að lífið
leiki við söngkonuna Birgittu
Haukdal. Á myndum sem teknar
voru fyrir væntanlega sólóplötu
söngkonunnar skartar hún
glæsilegum trúlofunarhring á
hægri hendi en hún og unnusti
hennar, Benedikt Einarsson,
trúlofuðu sig fyrir nokkru.
Birgitta vildi hins vegar lítið tjá
sig um dýrgripinn góða í samtali
við Fréttablaðið en sagðist á hinn
bóginn vera með fiðring í magan-
um yfir plötunni. „Ég er kannski
ekki dauðskelkuð en ákaflega
spennt,“ segir Birgitta. Hún semur
mestmegnis af lögunum og
textunum sjálf eða í samstarfi við
upptökustjórann og góðvin sinn,
Vigni Snæ Vigfússon.
Fyrsta smáskífan er þegar farin
að óma á öldum ljósvakans en það
er gamli Scorpions-smellurinn
Winds of Change sem Birgitta
hefur snarað upp á íslensku. Lagið
hefur þegar vakið þó nokkra
athygli og hafa menn velt því fyrir
sér af hverju hún hafi valið einmitt
þetta lag.
„Ég man eftir þessu lagi frá því
að ég var lítil stelpa og það kveikti
alltaf í mér þá. Svo heyrði ég það
aftur fyrir þremur árum og ákvað
að skrifa nafnið niður. Þegar við
Vignir fórum síðan að vinna að
plötunni kom lagið upp úr kafinu
og við ákváðum að gera smá
tilraun með það,“ segir Birgitta en
platan er væntanleg í búðir í
byrjun nóvember.
Birgitta með glæsilegan trúlofunarhring
„Einar hafði samband við mig í
vor og var með hugmynd að bók,“
segir tónlistarblaðamaðurinn
Arnar Eggert Thoroddsen en hann
er ásamt Einari Bárðarsyni að
ljúka við bók þessa dagana um
Einar sjálfan og hans störf sem
hlotið hefur nafnið Öll trixin í bók-
inni. Bókin verður gefin út fyrir
jólin á vegum JPV. „Einar og
Kristján B. Jónasson höfðu lengi
gengið með þessa bók í maganum
og Kristján stakk upp á því að
Einar bæði mig að skrifa bókina.
Við Einar fórum að ræða saman og
þetta small bara, en bæði efni og
efnistök breyttust töluvert eftir
því sem á leið.“
Í bókinni segir Einar frá því
sem á daga hans hefur drifið á
ferlinum. Arnar Eggert leggur þó
áherslu á að ekki sé um ævisögu
að ræða. „Þetta er ekki ævisaga,
enda er maðurinn ekki nema 35
ára gamall. Einar er öllu heldur að
miðla af reynslu sinni í þessum
umboðsmanna- og tónlistarbransa,
því sem hann hefur verið að vinna
að í gegnum tíðina. Það hefur ekki
alltaf gengið vel og í bókinni eru
öll spilin lögð á borðið,“ segir
Arnar Eggert.
Af nógu er að taka í bók sem
þessari enda hefur Einar komið
víða við. Hann tíndi flöskur eftir
söngskemmtanir Sumargleðinnar
sem ungur maður, samdi síðar
lagið „Farin“ fyrir hljómsveitina
Skítamóral og rekur í dag umboðs-
skrifstofu í hjarta Lundúnaborgar,
Mother Management, þar sem
hann er með listamenn á borð við
Garðar Thor Cortes og Nylon á
sínum snærum. Af ójöfnum á leið
Einars má nefna Eldborgarhátíð-
ina á aldamótaárinu og sömuleiðis
bindindishátíðina í Galtalæk en
Einar viðurkenndi að mikill
taprekstur á þeirri hátíð hefði
komið illa niður á fyrirtæki hans
Concert.
Arnar Eggert segir ástæðuna
einfalda fyrir því að bókin þróað-
ist yfir í að verða bók um Einar og
hans störf. „Þetta er auðvitað bara
magnaður maður, það er nokkuð
ljóst. Einar Bárðarson er nokkurs
konar nútíma Einar Ben. Allt sem
þessi maður hefur snert á undan-
farið verður að gulli, þar með talið
þessi bók.“
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Auglýsingasími
– Mest lesið