Fréttablaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 48
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil Íallri hinni neikvæðu umræðu um okur, græðgi og einkavina- væðingu á Íslandi hefur gleymst að halda því til haga að íslenskur almenningur býr við mikil ókeypis hlunnindi. Til dæmis stendur hverjum sem er til boða að þamba nægju sína af köldu vatni úr næsta krana frítt og gratis. Það gefur auga leið að lítil arðsemi er að því að heil þjóð drekki sitt vatn ómælt og ókeypis, ekki síst þar sem að minnsta kosti þrjár þaulreyndar aðferðir eru þekktar til að gera vatnsþambið arðbært. leiðin og sú elsta og íhaldssamasta er að vatnsból verði að nafninu til í sameign þjóðarinn- ar en nýtingarrétti verði úthlutað til þeirra sem stórtækastir eru í vatnsþambinu því að þeirra er augljóslega mest þörfin. Þannig mætti breyta verðlausu vatni í verðmætan vatnskvóta sem í prax- ís gæti gengið kaupum og sölum milli þeirra sem kunna eitthvað fyrir sér í viðskiptum, þótt eignar- rétturinn væri í teóríunni hjá hinum uppþornaða almenningi. leiðin væri sú að einka- væða vatnsból, ár og uppsprettur og jökla áður en þeir bráðna af sjálfum sér og skipa einkavæðingar- nefnd í málið og leita eftir tilboðum frá kjölfestufjárfestum auk þess sem hvert mannsbarn á landinu fengi að kaupa hlutabréf upp á allt að tíu lítra. Þannig mundi þjóðin læra að meta kalda vatnið sam- kvæmt skynsamlegum reglum hins frjálsa markaðar með hóf- legri verðlagningu, góðum greiðslukjörum og mjúkum inn- heimtuaðgerðum. leiðin og sú þjóðlegasta væri að einkavinavæða hvern deigan dropa á landinu, allt sem inniheldur H20 frá sagga í húsum til fossúða og allt þar á milli þótt heimilt væri áfram að pissa í skó- inn sinn. Þjóðin er svo lánsöm að eiga menn sem kunna þetta ferli á fingrum sér og gætu smurt hið stirða opinbera kerfi með vel- völdum kaupréttarheimildum og friðað almenning með útrásar- órum. Til dæmis mætti hugsa sér að Vatnsveitan í samvinnu við Green Water Group Capital keyptu Sahara-eyðimörkina með það fyrir augum að breyta henni í stærsta kartöflugarð í heimi og kenna öllum jarðarbúum að ekkert í ver- öldinni jafnast á við hið íslenska gullauga. Íslenskt gullauga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.