Fréttablaðið - 28.10.2007, Page 13

Fréttablaðið - 28.10.2007, Page 13
Stundar þú verðbréfaviðskipti? AUKIN NEYTENDAVERND FJÁRFESTA Markmið nýrra laga er að auka neytendavernd fjárfesta. Lögð er áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Eftir breytingarnar fá fjárfestar meiri upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum en hingað til. Markmiðið er að skuldbinda fjármálafyrirtæki til að veita fjárfestum þær upplýsingar, sem eru nauðsynlegar, svo að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar. upplýsinga hjá fjárfestum til að tryggja að þau geti veitt viðeigandi ráðgjöf og þjónustu. KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Kynntu þér málið betur hjá þínu fjármálafyrirtæki Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Samtaka fjármála- fyrirtækja (SFF) www.sff.is/mifid Þann 1. nóvember 2007 taka gildi ný lög um verðbréfaviðskipti sem ætlað er að auka neytendavernd fjárfesta NÝJAR REGLUR UM VERBRÉFAVIÐSKIPTI Með nýjum lögum um verðbréfaviðskipti er innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive) eða svokölluð MiFID- tilskipun. MiFID-tilskipunin er liður í áætlun Evrópusambandsins sem miðar að því að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.