Fréttablaðið - 29.10.2007, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 29.10.2007, Blaðsíða 11
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi A uk ah lu tir á m yn d: P al lh ús o g kr óm pa kk i FJÖLHÆFUR JEPPI Á FRÁBÆRU VERÐI 2.995.000 kr. • Öflug dísilvél • Minnsti beygjuradíus sambærilegra bíla • 2.800 kg dráttargeta • Opnanleg afturrúða • Super select II drifbúnaður – sá sami og í Pajero • Stöðuleikastýring og spólvörn Komdu og reynsluaktu Ríkulegur staðalbúnaður: Aukahlutapakki að verðmæti 230.000 kr. innifalinn Heitklæðning í palli • Dráttarbeisli • 32" dekk L200 Viðbrögð Norðurlanda við lofts- lagsbreytingum, ekki síst afleiðingum þeirra á Norðurslóðum, verða í brennidepli á þingi Norðurlandaráðs, sem fram fer í Ósló í Noregi nú um mánaðamótin. Áður en þingið hefst hittast ríkisstjórna- leiðtogar Norðurlandanna fimm og Færeyja, Grænlands og Álandseyja, að viðbættum stjórnarandstöðuleiðtogum þjóðþinganna á „norrænum leiðtogafundi“, en aðalmálið á dagskrá fundarins verður viðbrögð við loftslagsbreytingunum. Þetta kom fram í máli Árna Páls Árnasonar, formanns Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, á blaðamannafundi. Á fundinum vakti Árni athygli á niðurstöð- um nýrrar viðhorfskönnunar, sem gerð var á Norðurlöndunum. Meðal niðurstaðna er að Íslendingar og Norðmenn eru mjög áfram um að Norðurlöndin leggi áherslu á samvinnu á sviði utanríkis- og öryggismála, en öryggis- og varnarmál hafa fram til þessa verið nær alveg utan við málefnasvið norræns sam- starfs. Svör Íslendinga skera sig einnig úr í könnuninni þegar kemur að loftslags- og umhverfismálum. Mun lægra hlutfall Íslendinga telur mikilvægt að norrænt samstarf fjalli um það svið en aðrir Norður- landabúar. Þá segjast mjög fáir Íslendingar reiðubúnir til að greiða meira fyrir rafmagn og eldsneyti ef það hefur í för með sér að Norðurlöndin losi minna af gróðurhúsa- lofttegundum. Tyrknesk stjórnvöld gáfu íraskri sendinefnd lista yfir kúrdíska uppreisnarleiðtoga Kúrdíska verkamannaflokksins PKK, sem þau krefjast að verði framseldir að því er aðstoðarfor- sætisráðherra Tyrklands, Cemil Cicek, greindi frá. Tyrknesk sjónvarpsstöð hafði eftir íröskum embættismönnum að 153 menn væru á listanum og að mögulegt væri að afhenda að minnsta kosti átján PKK- meðlimi. Íraskir leiðtogar hafa áður sagt að þeir hafi ekki vald til að handtaka kúrdíska uppreisnar- leiðtoga. Tyrkir saka Íraka um að láta hryðjuverk PKK óátalin. Vilja framsal PKK-leiðtoga Álendingar eru að fá nýja heimastjórn, að sögn blaðsins Ålandstidningen á Álandseyjum. Stjórnina skipa sjö ráðherrar, fjórir frjálslyndir og þrír frá Miðflokknum undir forsæti hinnar frjálslyndu Viveka Eriksson. Stjórnarsáttmáli nýju stjórnar- innar liggur fyrir. Álenska heimastjórnin stendur vel fjárhagslega og ætlar að nýta sér það til að hækka bætur til þeirra sem minna mega sín, styðja landbúnað á eyjunum og verja hundruðum milljóna íslenskra króna í ferju og nýjan golfvöll. Álandseyjar tilheyra finnska ríkinu. Ný heimastjórn Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði deiluna um fyrirhugaða uppsetningu banda- rísks eldflaugavarnabúnaðar í austanverðri Mið-Evrópu eiga sér vissa hliðstæðu í Kúbudeilunni í byrjun sjöunda áratugarins. Við lok samráðsfundar ráða- manna Rússlands og Evrópusam- bandsins á föstudag sagði Pútín fyrirhugaða uppsetningu sovéskra kjarnorkuflauga á Kúbu á sínum tíma „hliðstæðar aðgerðir“. „Slíka ógn er verið að setja upp við landamæri okkar,“ sagði hann. Pútín og ESB-ráðamennirnir reyndu annars að lýsa fundi sínum sem árangursríkum, þótt það verkaði lítt sannfærandi. Pútín vísar til Kúbudeilunnar Átján ára breskur múslími var á föstudag dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar í unglingafangelsi fyrir að hafa í fórum sínum bækling um sprengiefni. Abdul Patel, sem býr í London, var í síðasta mánuði sakfelldur fyrir að búa yfir upplýsingum sem rétturinn taldi líklegt að gætu nýst til hryðjuverka. Patel bar því við fyrir rétti að hann hefði verið beðinn um að gæta bæklingsins af vini föður síns. Átta mánuðir vegna bæklings

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.