Fréttablaðið - 29.10.2007, Blaðsíða 49
Oliver Curry framtíðarrýnir við Hagfræðiskóla Lundúna
spáir því að mannkynið nái hátindi
um næstu árþúsundamót. Þá verða
aðeins tveir kynþættir á jörðinni,
báðir eins og mjólkurkaffi á litinn.
Ekki verður jafnræði með þessum
kynþáttum: Annar rasinn hávax-
inn, fallegur og gáfaður og lifir á
belgísku súkkulaði og lífrænt
ræktuðu fæði. Hinn ljótur, lítill og
heimskur og lifir á hamborgurum
og sjoppufæði.
spá er ekki út í bláinn. Þró-
unin er þegar hafin. Með ofur-
áherslu á frelsi og hagsmuni
sterkra einstaklinga umfram
hagsmuni heildarinnar er augljóst
að framtíðin mun tilheyra þeim
sem eru greindir og siðlausir eins
og fortíðin tilheyrði þeim sem
voru líkamlega sterkir og siðlausir.
Það tók mannkynið mörg þúsund
ár að læra að það væri andstætt
hagsmunum heildarinnar að láta
sterkbyggða einstaklinga komast
upp með að kraka til sín auðæfum
með færni sinni í að beita ofbeldi
með sverðum eða bareflum. Á
sama hátt má gera ráð fyrir því að
það taki mannkynið langan tíma
að átta sig á því að það er andstætt
hagsmunum heildarinnar að láta
greinda einstaklinga komast upp
með að kraka til sín auðæfum með
skörpum skilningi á pólitík og við-
skiptum.
3000 þurfa sigurvegarar
ekki lengur að aðgreina sig frá
hinum sigruðu með Landrover-
jeppum, Rolex-úrum og Prada-
fatnaði. Þá verður mannslíkaminn
orðinn æðsta og augljósasta stöðu-
táknið. Hinir háu verða háir í bók-
staflegum skilningi og hinir lágu
verða lágir vexti. Til þess að hraða
þessari þróun þarf aðeins að ganga
ofurlítið lengra í að taka frelsi ein-
staklingsins til að græða og þjóna
eðli sínu framyfir frelsi heildar-
innar til að lifa frjálsu og friðsömu
lífi.
er líka til í dæminu að snúa
þróuninni við og koma í veg fyrir
að spáin rætist. En til þess þyrfti
að setja skorður við því að fáir
hafi frelsi til að eiga allt og margir
frelsi til að eiga ekkert. Það er
reyndar ekki hægt fyrr en við
nennum að setjast niður og gera
okkur grein fyrir því í hverju
frelsi okkar er í raun og veru falið.
En kannski er það óþarfi. Kannski
verða afkomendur okkar Íslend-
inga allir í sigurliðinu. Og skítt
veri með þá sem tapa.
Háir og lágir
– bókstaflega!