Fréttablaðið - 29.10.2007, Síða 49

Fréttablaðið - 29.10.2007, Síða 49
Oliver Curry framtíðarrýnir við Hagfræðiskóla Lundúna spáir því að mannkynið nái hátindi um næstu árþúsundamót. Þá verða aðeins tveir kynþættir á jörðinni, báðir eins og mjólkurkaffi á litinn. Ekki verður jafnræði með þessum kynþáttum: Annar rasinn hávax- inn, fallegur og gáfaður og lifir á belgísku súkkulaði og lífrænt ræktuðu fæði. Hinn ljótur, lítill og heimskur og lifir á hamborgurum og sjoppufæði. spá er ekki út í bláinn. Þró- unin er þegar hafin. Með ofur- áherslu á frelsi og hagsmuni sterkra einstaklinga umfram hagsmuni heildarinnar er augljóst að framtíðin mun tilheyra þeim sem eru greindir og siðlausir eins og fortíðin tilheyrði þeim sem voru líkamlega sterkir og siðlausir. Það tók mannkynið mörg þúsund ár að læra að það væri andstætt hagsmunum heildarinnar að láta sterkbyggða einstaklinga komast upp með að kraka til sín auðæfum með færni sinni í að beita ofbeldi með sverðum eða bareflum. Á sama hátt má gera ráð fyrir því að það taki mannkynið langan tíma að átta sig á því að það er andstætt hagsmunum heildarinnar að láta greinda einstaklinga komast upp með að kraka til sín auðæfum með skörpum skilningi á pólitík og við- skiptum. 3000 þurfa sigurvegarar ekki lengur að aðgreina sig frá hinum sigruðu með Landrover- jeppum, Rolex-úrum og Prada- fatnaði. Þá verður mannslíkaminn orðinn æðsta og augljósasta stöðu- táknið. Hinir háu verða háir í bók- staflegum skilningi og hinir lágu verða lágir vexti. Til þess að hraða þessari þróun þarf aðeins að ganga ofurlítið lengra í að taka frelsi ein- staklingsins til að græða og þjóna eðli sínu framyfir frelsi heildar- innar til að lifa frjálsu og friðsömu lífi. er líka til í dæminu að snúa þróuninni við og koma í veg fyrir að spáin rætist. En til þess þyrfti að setja skorður við því að fáir hafi frelsi til að eiga allt og margir frelsi til að eiga ekkert. Það er reyndar ekki hægt fyrr en við nennum að setjast niður og gera okkur grein fyrir því í hverju frelsi okkar er í raun og veru falið. En kannski er það óþarfi. Kannski verða afkomendur okkar Íslend- inga allir í sigurliðinu. Og skítt veri með þá sem tapa. Háir og lágir – bókstaflega!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.