Fréttablaðið - 25.11.2007, Page 22
2 FERÐALÖG
Hvern hefur ekki
dreymt um að
eyða jólavikunni
í skoskum kast-
ala sem er alveg eins og út
úr ævintýrabók? Að snæða
hefðbundinn höfðinglegan
mat í ævagömlum veislusöl-
um, sofa í himnasæng, sjá
jafnvel einn eða tvo drauga
og eyða dögunum í dásam-
legum göngutúrum í skosku
Hálöndunum? Dalhousie
Castle er virkiskastali frá
13. öld sem hefur verið gerð-
ur upp í gamaldags stíl. Kast-
alinn liggur við ána Esk og
er í miðju skóglendi í um
klukkutíma ökufjarlægð frá
Edinborg. Dásamlegur frið-
ur ríkir innandyra en þar
er að finna risastórt bóka-
safn og viskíbar við hliðina á
myndarlegum arineldi og svo
er hægt að snæða frábær-
an skoskan mat í eldgöml-
um neðanjarðarfangelsum.
Engin tvö svefnherbergi eru
eins og þar er vissulega hægt
að finna fyrir anda hins æva-
forna Skotlands. Rétt hjá kast-
alanum er svo það sem kallast
„Falconry“, sem geymir lif-
andi fálka þjálfaða til veiða,
en á miðöldum tíðkaðist að
höfðingjar færu með fálkana
sína á veiðar. Best geymda
leyndarmál Dalhousie-kast-
alans er þó heilsulind með
öllum helstu nútímaþægind-
um og þeir sem hafa þörf á
nútímatækni geta huggað sig
við WiFi í öllum herbergjum.
Fyrir forvitna má geta þess
að hin fræga „Roslyn“-kap-
ella er í um fimm mílna fjar-
lægð en getgátur hafa verið
uppi um að hún tengist Maríu
Mey og dularfullri arfleifð
Jesú Krists eins og kom fram
í bókinni Da Vinci lykillinn.
Dalhousie-kastali býður upp
á skemmtilega helgarpakka
sem spanna allt frá róm-
antískum kampavínshelg-
um, jólahelgum og svo upp í
„Draugahelgi“ þar sem gest-
um gefst kostur á að heim-
sækja alla þá staði þar sem
talið er reimt, bæði í kastal-
anum og nágrenni. - amb
GOTNESK RÓMANTÍK
Smekklegasta nýjungin á flug-
stöð Íslendinga er langþráð veit-
ingarými og bar þar sem þreytt-
ir eða spenntir ferðalangar geta
nært líkama og sál. Panorama
bar er stór og fallega hönnuð
setustofa og veitingastaður með
útsýni beint út á flugbrautirn-
ar. Flugvélaáhugamenn geta því
punktað niður flugvélategund-
ir en við hin getum slappað af
með kokkteil og tímarit í hönd.
Veitingarnar eru ekki af lak-
ara tag inu en að sögn Ingigerð-
ar Einarsdóttur, rekstrarstjóra
staðarins, eru þær hugsaðar til
þess að ferðalangurinn geti grip-
ið mat án nokkurrar tafar og er
því boðið bæði upp á girnilegt
hlaðborð og svo ýmsa skyndirétti
eins og „smörrebröd“ og gamlan
góðan hamborgara með frönsk-
um. Klúbbar og hópar geta pant-
að rými fyrir fram sem er örlít-
ið aðskilið frá hinu og gert sér
glaðan dag og skálað í kampavíni
áður en haldið er á loft. En hver
skyldi eftirlætisbiti landans vera
á flugstöðinni? „Bjórinn er allt-
af vinsælastur. Og svo ljúffengt
„smörrebröd“ með. Og ef til vill
eitt skot af gammeldansk ef fólk
er pínu stressað.“ - amb
ÚTSÝNISFLUG Á JÖRÐU NIÐRI
Panorama bar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er fyrsti viðkomustaðurinn í ferðalaginu.
Panorama bar Nýr og skemmtilegur bar og veitingastaður á Keflavíkurflugvelli.
EKKI
MISSA AF
ÞESSU
HVAÐ? DALHOUSIE CASTLE Hotel and Aqueous Spa HVAR? Bonnyrigg, Edinborg, Skotland
Allur ágóði
af Masa rennur til
Barnaspítala Hringsin
s.
MASI FÆST HJÁ
HAGKAUP OG N1
Einnig er hægt að pan
ta í gegnum
poppskólinn@poppsk
olinn.is
eða í síma 897 9409
AÐ BREYTA ÚT
AF VANANUM
Anna Margrét Björnsson skrifar
ferðalög kemur út mánaðarlega
með sunnudagsblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Silja Magg
Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Yvan Rodic
Ljósmyndir Fréttablaðið, Silja Magg, Yvan Rodic
Auglýsingar Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
[ JÓLAJÓLA Á LEIÐ ÚT EÐA HEIM ] Epal
hefur nú um nokkurt skeið rekið verslun í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og fyrir utan hinar
litríku Marímekkó-töskur er annar hlutur
sem Íslendingar virðast hvað helst falla
fyrir en það er hinn sæti jólaórói
Georg Jensens en hann er sölu hæsta
vara Epals þar í stöð. Fallegur og
klassískur gripur sem auðvelt er að
grípa með sér og kostar 4300 kr.
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
V
ið lifum á dásamlegum tímum hvað ferðalög
snertir. Heimurinn er að minnka, samgöng-
ur að batna og úrval ferða sífellt að færast
í aukana. Með aukinni samkeppni á Íslandi
fer verð lækkandi og vonandi verður þróunin áfram í
þá átt að ferðalög séu ekki aðeins fyrir þá betur efn-
uðu. En það er alltaf gaman að láta sig dreyma eins og
við gerum svo sannarlega í blaðinu þegar við skoðum
dá samleg hönnunarhótel, skoska miðaldakastala eða
afslöppun á fjarlægum ströndum. Nú eru að koma jól
og ég er eins og flestir Íslendingar afskaplega heima-
kær á þessum tíma. Alltaf finnst manni jólin yndisleg-
ust „heima“. Mér finnst við samt oft einum of rög við
að breyta út af vananum. Ég heyrði til dæmis bara í
síðustu viku unga frænku mína „kvarta“ yfir að eyða
gamlárskvöldi í Argentínu þar sem hún myndi missa
af rakettunum hér, og vinkona mín ferðast alla leið
frá Peking svo hún fari ekki á mis við sín íslensku jól.
Auðvitað á maður ekki að setja sér of fastar skorð-
ur. Heimurinn er stór og fullur af ævintýrum og há-
tíðir á fjarlægum slóðum eru ekkert nema spennandi.
Ein minnisstæðustu jól sem ég hef átt voru í Norður-
Ástralíu í 48 stiga hita og það lak vatn eftir rúðunum
vegna loftrakans! Tilgangur okkar með þessu blaði er
að skoða leynistaði víðs vegar um hnöttinn, staði þar
sem andrúmsloftið, fólkið, lyktin og umhverfið breyt-
ast í lifandi póstkort í huganum sem aldrei gleymist.
Og umfram allt að finna staði sem búa yfir sérstök-
um töfrum: þessu fantasíuívafi sem leyfir okkur að
dreyma áfram.
NEW YORK SÉÐ MEÐ AUGUM SILJU MAGG KAUPMANNAHÖFN ÞÓRIS SNÆS SIGURJÓNSSONAR SHOREDITCH ER HEITASTA HVERFIÐ Í LONDON PÓSTKORT FRÁ ÍRAN OG BAHAMA-EYJUM
LEYNISTAÐIR
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2007
STRENDUR,
TINDAR OG
HVAR Á AÐ VERSLA, SNÆÐA, DJAMMA OG NJÓTA LÍFSINS?
HELSTU VIÐBURÐIR
Í DESEMBERMÁNUÐI
Í NEW YORK OG LONDON
KÓRALRIF
PRÓFAÐU FRUMLEG JÓL Í ÁR
BESTU
BREKKURNAR
SKÍÐAFÍKLAR LEYSA
FRÁ SKJÓÐUNNI