Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 102
30 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
39.900 kr.
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
www.expressferdir.is
BOLTINN ER HJÁ OKKUR
ARSENAL – ST. BUCHAREST
11.–13. desember
Nánar á www.expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
39.900 kr.
ARSENAL – WEST HAM
30. des.–2. jan.
Flug, skattar og miði á leikinn
Flug, skattar og miði á leikinn
49.900 kr.
WEST HAM – FULHAM
11.–13. janúar
Verð á mann í tvíbýli
TILBOÐ
TILBOÐ
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr GKG, sem á dögun-
um tryggði sér þátttökurétt á Evr-
ópumótaröðina í golfi, heldur
áfram að spila eins og sá sem
valdið hefur. Birgir gerði sér lítið
fyrir og setti á föstudag vallarmet
á Lariserva-golfvellinum á Spáni
þegar hann spilaði á ellefu högg-
um undir pari vallarins.
Birgir Leifur var að taka þátt í
móti á vegum Kaupþings banka
þegar vallarmetið féll, en Birgir
fékk fimm fugla á fyrstu níu hol-
unum og spilaði svo þrjár á pari og
fékk svo sex fugla í röð á síðustu
sex holunum. Birgir fór því á 61
höggi, ellefu höggum undir pari,
og stórbætti vallarmetið um 6
högg.
„Þetta var bara einn af þessum
dögum þar sem allt gekk upp,
bæði höggin og púttin, og var
alveg rosalega gaman. Þetta var
án vafa besti hringur sem ég hef
spilað á ferlinum og ég var búinn
að bíða lengi eftir þessum degi.
Ég var mjög afslappaður að keppa
í þessu fyrirtækjamóti í góðum
félagsskap og var því óhræddur
við að spila gríðarlegt sóknar-
golf,“ sagði Birgir Leifur alsæll í
viðtali við Fréttablaðið í gær og
kvað árangurinn tvímælalaust
koma sér vel fyrir framhaldið.
„Það er frábært upp á sjálfs-
traustið að ná svona hring áður en
ég fer út í alvöruna á ný,“ sagði
Birgir, sem heldur til Suður-Afr-
íku eftir rúma viku þar sem hann
mun svo keppa á Evrópumótaröð-
inni í byrjun desember. - óþ
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson setti ótrúlegt met á Lariserva-vellinum á Spáni:
Án vafa besti hringur ferilsins
SJÓÐHEITUR Allt virðist ganga upp hjá Birgi Leifi Hafþórssyni þessa dagana, en hann
stórbætti vallarmet á Spáni í fyrradag. NORDICPHOTOS/GETTY
BORÐTENNIS Guðmundur E.
Stephensen, margfaldur Íslands-
meistari í borðtennis, spilaði í
fyrrakvöld með liði sínu, sænsku
meisturunum Eslöv, í Meistara-
deild Evrópu í borðtennis.
Guðmundur tapaði naumlega
gegn Króatanum Primorac sem
er átjándi á heimslista borð-
tennisspilara. Guðmundur tapaði
fyrstu tveimur lotunum, 9-11 og
8-11, en vann næstu tvær, 11-9 og
14-12. Króatinn vann svo
úrslita lotuna, 8-11. - óþ
Guðmundur E. Stephensen:
Í Meistaradeild
ÓHEPPINN Guðmundur E. Stephensen
var nálægt því að leggja Primorac.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
TENNIS Arnar Sigurðsson, marg-
faldur Íslandsmeistari í tennis,
tapaði í átta manna úrslitum í
einliðaleik í móti í Dóminíska
lýðveldinu. Arnar keppti einnig í
tvíliðaleik ásamt Bandaríkja-
manninum Vahid Mirzadeh og
þeir töpuðu naumlega í undanúr-
slitum í mótinu.
Arnar hefur verið að bæta sig
jafnt undanfarið og klifrað upp
heimslista tenniskappa. - óþ
Arnar Sigurðsson:
Bætir sig enn
FRAMFARIR Arnari Sigurðssyni, tennis-
kappa úr TFK, hefur farið mikið fram
undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
> Stórleikur í N1-deild karla í kvöld
Íslandsmeistarar Vals í handbolta fá bikarmeistara
Stjörnunnar í heimsókn í Vodafone-höllina að Hlíðar-
enda í kvöld. Liðin hafa bæði lokið leik í Evrópukeppnum
og það verður því allt undir í þessum leik. Leikurinn er
ekki síður mikilvægur fyrir bæði lið í ljósi
stöðu þeirra í N1-deildinni. Stjarnan er sem
stendur í fjórða sæti og Valur í því
fimmta og hvort lið um sig má
því illa við tapi þegar farið
er að síga á seinni helming
Íslandsmótsins. Leikur-
inn hefst kl. 20.00 í
kvöld.
Birkir Bjarnason, 19 ára leikmaður Viking frá
Stavangri í norsku deildinni, hefur spilað afar vel
með U-21 árs landsliði Íslands upp á síðkastið
og skoraði meðal annars fyrra mark liðsins í
frækilegum 1-2 sigri gegn Belgíu á dögunum.
„Það er frábært að spila með U-21 árs liðinu því
liðsandinn er svo góður og ég held að það skili sér
inn á leikvöllinn. Það eru góðir fótboltamenn í liðinu
sem vilja spila góðan fótbolta og í leiknum á móti
Belgíu, þó sérstaklega í fyrri hálfleik, sýndum
við hversu öflugir við erum. Ég var ánægður með
frammistöðu mína persónulega séð og ég náði að
skora gott mark eftir sendingu frá Halla í markinu. Ég
náði að lesa sendinguna vel og byrjaði strax á hlaupinu
og ég var verðlaunaður fyrir það með markinu. Ég
hefði jafnvel getað fengið dæmda vítaspyrnu þegar
markvörður Belga braut á mér,“ sagði Birkir og kvaðst
vera í góðu líkamlegu standi.
„Ég er kominn í fínt form núna en ég meiddist í lok undir-
búningstímabilsins með Viking í fyrra og það varð til þess
að ég náði mér til að byrja með aldrei almennilega á strik.
Ég vonast til þess að fá miklu fleiri tækifæri með Viking-lið-
inu á næstu leiktíð en ég fékk á nýafstaðinni leiktíð,“ sagði
Birkir, sem er samningsbundinn Viking til ársins 2009 og
spilaði sex leiki fyrir Viking síðasta sumar, þar af var einn
í byrjunarliði á móti stórliði Rosenborgar.
„Mér gekk ágætlega í þau skipti sem ég fékk
tækifæri og spilaði þá annað hvort á öðrum hvorum
vængnum eða inni á miðjunni,“ sagði Birkir, sem
á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana því
pabbi hans er hinn mikli harðjaxl Bjarni Sveinbjörns-
son, markahæsti leikmaður í sögu Þórs Akureyri í
efstu deild.
„Já, pabbi var góður og hann er stundum að rífa sig
eitthvað yfir því, en ég ætla mér að verða betri og ég
held að ég gæti vel tekið hann,“ sagði Birkir í léttum dúr.
BIRKIR BJARNASON, VIKING: HEFUR VERIÐ AÐ SPILA VEL MEÐ U-21 ÁRS LANDSLIÐI ÍSLANDS UNDANFARIÐ
Pabbi var góður en ég ætla að verða betri
HANDBOLTI Það verður seint sagt að
tyrkneska liðið Tur Il Özel Idare
og Fram hafi boðið upp á mikla
skemmtun þegar hið fyrrnefnda
tók á móti Fram í Safamýrinni í
gær í 32ja liða úrslitum Áskor-
endakeppni Evrópu. Fram vann
fimm marka sigur á slökum and-
stæðingi sínum, 24-29. Fram
keypti heimaleik tyrkneska liðs-
ins og því var leikið á heimavelli
Fram.
Fram hóf leikinn vel og skoraði
þrjú fyrstu mörk leiksins. Á fyrstu
mínútunum virtust Framarar
getað skorað að vild á meðan leik-
menn Özel Idare virtust varla vita
hvað þeir áttu að gera við boltann.
Þetta breytist fljótt. Framarar
virtust halda að hlutirnir kæmu af
sjálfu sér og nokkrir Tyrkjanna
sýndu að þeir kunna þó sitthvað.
Leikmenn Fram skutu einstak-
lega illa á þéttan og hægan mark-
vörð Tyrkjanna sem varði tvö víta-
skot og fjölda dauðafæra þrátt
fyrir að hreyfa sig lítið í markinu.
Leikmenn Fram virtust átta sig á
að liðið þyrfti að leggja sig fram
ætti ekki illa að fara og hóf að
spila góða vörn og þrátt fyrir að
sóknarleikur liðsins væri slakur
sigldi liðið fram úr og náði fimm
marka forystu fyrir leikhlé, 9-14.
Fram skoraði fyrsta mark síðari
hálfleiksins og allt benti til að leik-
menn liðsins ætluðu að fylgja
góðum endasprett fyrir hlé eftir.
Það varð ekki raunin. Fram fór
aftur að skjóta illa á markvörðinn
og Tyrkirnir náðu að minnka mun-
inn í þrjú mörk, 13-16. Þá kom
ágætur leikkafli hjá Fram, sem
náði að lokum sjö marka forystu,
19-26, þegar aðeins sex mínútur
voru eftir af leiknum. Özel Idare
svaraði því með fjórum mörkum í
röð og skyndilega var munurinn
aðeins þrjú mörk á ný, 23-26. Fram
skoraði þrjú af fjórum síðustu
mörkum leiksins og fer því með
fimm marka forskot inn í síðari
leik liðanna sem fram fer í Safa-
mýrinni í dag.
Fernec Buday, þjálfari Fram,
vildi ekki gagnrýna lið sitt mikið
þrátt fyrir að frammistaðan hafi
verið langt frá því að vera
ásættanleg. „Þetta er fyrsti alþjóð-
legi leikur okkar á tímabilinu og
við vissum ekkert um andstæðing-
inn eða tyrkneskan handbolta. Það
er mikil barátta allan leikinn og
við fengum mörg tækifæri til að
stinga af. Markvörður þeirra varði
stundum vel og stundum vantaði
einbeitingu hjá mínum mönnum í
skotunum. Ég dreifði leiktímanum
vel á milli manna, sem kom líklega
niður á leik okkar. Ég vildi ekki
þreyta leikmenn mína of mikið
með seinni leikinn í huga. Það
getur enginn leikmaður spilað tvo
heila leiki á tveimur dögum með
góðu móti. Við unnum ekki stórt
en sigurinn er ásættanlegur.“
Tyrkneska liðið lék ekki hefð-
bundinn handbolta. Leikur liðsins
var hægur en liðið lék ágæta vörn
gegn Fram, sem náði sér ekki á
strik í sóknarleiknum. „Tyrkneska
liðið var mjög hreyfanlegt í vörn,
sem gerði okkur erfitt fyrir og við
fengum marga ódýra brottrekstra
sem kom niður á okkar leik. Á
morgun (í dag) er nýr leikur og þá
munum við gera betur,“ sagði
Buday að lokum.
Jóhann Gunnar Einarsson lék
líklega sinn langlélegasta leik á
tímabilinu og var því ekki sáttur.
„Ég veit ekki hvað gerðist í
leiknum. Við erum að mínu mati
mun betri en þetta lið. Þetta lið er
ekki gott og þessi markvörður leit
ekki út fyrir að geta mikið en samt
varði hann einhverja tuttugu bolta
í þessum leik. Mér fannst hann
verja og verja. Ég skoraði flott
mark í byrjun en svo á einhvern
óskiljanlegan hátt fór ekkert inn.
Ég var lélegur í vörn og sókn.
Tyrkneskur handbolti hentar mér
ekki nógu vel,“ sagði Jóhann
Gunnar og hló.
- gmi
Rislítill skyldusigur hjá Framliðinu
Fram vann Tur Il Özel Idare 29-24 í EHF-áskorendakeppni Evrópu í handbolta í Safamýrinni í gærdag.
Framarar voru heldur áhugalausir gegn afar slöku tyrknesku liði og sigur þeirra hefði með öllu réttu átt að
vera mun stærri. Liðin leika svo seinni leik sinn í keppninni í dag kl. 16 í Safamýrinni.
BARÁTTA Einar Ingi Hrafnsson, leikmaður Fram, reynir hér að brjóta sér leið í gegnum
vörn Tyrkjanna í gærdag. Einar átti fínan leik og skoraði fjögur mörk úr fimm skotum
sínum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
TÖLFRÆÐIN:
Mörk Fram: Hjörtur Hinriksson 5 (5),
Guðjón Drengsson 5 (11), Einar Ingi
Hrafnsson 4 (5), Filip Kliszczyk 4 (5),
Stefán Stefánsson 3 (4), Haraldur
Þorvarðarson 2 (5), Rúnar Kárason 2
(5), Daníel Berg Grétarsson 1 (2),
Halldór Jóhann Sigfússon 1 (2/1), Jón
Björgvin Pétursson 1 (3), Jóhann
Gunnar Einarsson 1 (5/1)
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
12 (25) 48%, Magnús Erlendsson 7
(18/2) 38,9%
Hraðaupphlaup: 14 (Guðjón 4, Hjört-
ur 2, Stefán 2, Einar Ingi 2, Haraldur,
Jón Björgvin, Daníel Berg, Rúnar)
Fiskuð víti: 2 (Guðjón, Filip)
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Özel Idare: Ömer Aslan 7/2
(18/2), Soner Genc 6 (9), Baris
Orhonlu 6 (12), Rifat Shahín 2 (4),
Murat Ölmez 2 (5), Mehmet Demir-
ezen 1 (4)
Varin skot: Cemal Bayrakci 19/2
(48/2) 39,6%
Hraðaupphlaup: 4 (Orhonlu 2, Aslan,
Ölmez)
Fiskuð víti: 2 (Demirezen 2)
Utan vallar: 6 mínútur