Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 104
32 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
Newcastle-Liverpool 0-3
0-1 Steven Gerrard (27.), 0-2 Dirk Kuyt (46.), 0-3
Ryan Babel (66.).
Birmingham-Portsmouth 0-2
0-1 Sulley Ali Muntari (34.), 0-2 Niko Kranjcar
(82.).
Bolton-Man. Utd. 1-0
1-0 Nicolas Anelka (11.).
Everton-Sunderland 7-1
1-0 Yakubu (12.), 2-0 Tim Cahill (17.), 3-0 Steven
Pienaar (43.), 3-1 Dwight Yorke (45.), 4-1 Tim
Cahill (62.), 5-1 Yakubu (73.), 6-1 Andy Johnson
(80.), 7-1 Leon Osman (85.).
Man. City-Reading 2-1
1-0 Martin Petrov (11.), 1-1 James Harper (43.),
2-1 Stephen Ireland (90.). Brynjar Björn Gunn-
arsson og Ívar Ingimarsson voru í byrjunarliði
Reading.
Arsenal-Wigan 2-0
1-0 William Gallas (83.), 2-0 Tomas Rosicky (85.).
Middlesbrough-Aston Villa 0-3
0-1 John Carew (45.), 0-2 Olof Mellberg (48.),
0-3 Gabriel Agbonlahor (58.).
Derby-Chelsea 0-2
0-1 Salomon Kalou (17.), 0-2 Shaun Wright-
Philips (74.).
STAÐAN Í DEILDINNI:
Arsenal 13 10 3 0 29-10 33
Man. Utd. 14 9 3 2 23-7 30
Man. City 14 9 2 3 18-14 29
Chelsea 14 8 4 2 21-9 28
Liverpool 13 7 6 0 22-6 27
Portsmouth 14 7 5 2 25-13 26
Aston Villa 13 7 3 3 21-14 24
Everton 14 7 2 5 26-16 23
Blackburn 12 6 4 2 15-11 22
West Ham 12 5 3 4 18-10 18
Newcastle 13 5 3 5 19-21 18
Reading 14 4 1 9 17-31 13
Fulham 13 2 6 5 16-20 12
Tottenham 13 2 5 6 23-24 11
Bolton 14 2 5 7 12-18 11
Birmingham 14 3 2 9 13-22 11
M‘boro 14 2 4 8 14-29 10
Sunderland 14 2 4 8 14-29 10
Wigan 14 2 2 10 10-25 8
Derby 14 1 3 10 5-33 6
MARKAHÆSTU LEIKMENN:
Benjani (Portsmouth) 8
Emmanuel Adebayor (Arsenal) 7
Nicolas Anelka (Bolton) 7
Gabriel Agbonlahor (Aston Villa) 6
Cesc Fabregas (Arsenal) 6
Robbie Keane (Tottenham) 6
Cristiano Ronaldo (Man. Utd.) 6
Didier Drogba (Chelsea) 5
Oliver Kapo (Birmingham) 5
Benedict McCarthy (Blackburn) 5
Fernando Torres (Liverpool) 5
Yakubu (Everton) 5
Robin Van Persie (Arsenal) 5
Spænski úrvalsdeildin:
Barcelona-Recreativo 3-0
1-0 Gabriel Milito (64.), 2-0 Bojan (66.), 3-0
Lionel Messi (82.). Eiður Smári Guðjohnsen var
í byrjunarliði Barcelona en var tekinn af velli á
60. mínútu.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Liverpool vann New-
castle 0-3 á St. James‘ Park í
hádegisleik dagsins í ensku úrvals-
deildinni í gær. Yfirburðir Liver-
pool voru gríðarlegir í leiknum og
hvorki gengur né rekur hjá Sam
Allardyce með Newcastle-liðið.
Newcastle ætlaði greinilega að
bíða færis og hugsa fyrst og
fremst um varnarleikinn og Liver-
pool var því meira með boltann
framan af leik. Fyrirliðinn Steven
Gerrard, sem þurfti að sæta tals-
verðum svívirðingum frá áhorf-
endum vegna slaks gengis enska
landsliðsins, kom Liverpool svo
yfir með sannkölluðum þrumu-
fleyg á 27. mínútu. Markið gerði
það að verkum að Newcastle þurfti
að víkja frá hugmyndum sínum
um skotgrafahernað og færa sig
framar á völlinn. Liverpool nýtti
sér það til hins ítrasta og varnar-
leikur Newcastle var í molum og
undravert að Liverpool hafi ekki
náð að skora annað mark í fyrri
hálfleik. Fernando Torres komst
þó næst því að bæta öðru marki
við í lok hálfleiksins þegar hann
átti skot í stöng, en Torres var ein-
staklega seinheppinn með færi sín
í leiknum.
Ekki var langt liðið á seinni hálf-
leik þegar Liverpool bætti öðru
marki við, en það kom eftir horn-
spyrnu. Boltinn barst til Dirk
Kuyt, sem átti ekki í erfiðleikum
með að koma boltanum yfir mark-
línuna af stuttu færi. Niðurlæging
Newcastle var svo fullkomnuð á
66. mínútu þegar varamaðurinn
Ryan Babel skoraði þriðja mark
Liverpool eftir góðan samleik við
Steven Gerrard. Markið var algjört
skólabókardæmi um vel heppnað
upphlaup, þar sem Babel sendi á
Gerrard sem hljóp með boltann út
að endamörkum og sendi hnitmið-
aða sendingu aftur út á Babel sem
skaut boltanum viðstöðulaust í
fjær hornið, framhjá varnar lausum
Shay Given í marki Newcastle.
Liverpool hefði getað bætt við
fleiri mörkum á síðustu tuttugu
mínútum leiksins, en lokatölur
urðu 0-3 og pressan hlýtur að vera
að aukast á Sam Allardyce, stjóra
Newcastle, sem hefur ekki verið
að gera góða hluti með liðið. Liver-
pool er því sem fyrr taplaust í
ensku úrvalsdeildinni og þjarmar
nú að toppliðum deildarinnar.
Steven Gerrard var afar sáttur í
leikslok, þrátt fyrir að hafa fengið
óblíðar móttökur frá áhorfendum í
leiknum.
„Frá því að við töpuðum á móti
Króötum um daginn og þangað til
enska landsliðið réttir úr kútnum
má maður búast við mikilli gagn-
rýni,“ sagði Gerrard, sem var
sáttur með spilamennsku Liver-
pool í leiknum.
„Við stjórnuðum leiknum í 90
mínútur og hefðum átt að skora
miklu fleiri mörk og ef fólk telur
að við eigum ekki möguleika á
enska titlinum, þá má það alveg
halda það,“ sagði Gerrard sigur-
reifur í viðtali í leikslok. - óþ
Liverpool vann Newcastle örugglega, 0-3, á St. James‘ Park í gær og er því enn taplaust í ensku deildinni:
Newcastle var yfirspilað í 90 mínútur
MARK Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, skorar hér fyrsta mark leiksins gegn New-
castle með glæsilegu langskoti. Newcastle-maðurinn Charles N‘Zogbia reynir að
kasta sér í veg fyrir boltann án árangurs. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið leitar nú í gríð og erg að
efnilegum eftirmanni Steve
McClaren, sem var eins og kunn-
ugt er rekinn úr þjálfarastarfi í
enska landsliðinu á dögunum og
nokkur nöfn hafa nú þegar verið
nefnd til sögunnar.
Mönnum virðist þó vera nokkuð
ljóst að starfið er ekki eins auðvelt
og ætla mætti þrátt fyrir að Eng-
lendingar eigi vissulega ágætis
leikmenn, því kröfurnar til liðsins
eru þvílíkar og enska pressan er
ekki þekkt fyrir að gefa mönnum
mörg tækifæri. Efstu nöfnin á lista
veðbanka yfir hugsanlegan eftir-
mann McClaren hafa nú þegar
sagt í fjölmiðlum að þeir hafi ekki
áhuga á starfinu, en það eru José
Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea,
og Martin O‘Neill, stjóri Aston
Villa. Tveir ítalskir stjórar, Fabio
Capello og Marcello Lippi, hafa
verið nefndir til sögunnar en þeir
eru atvinnulausir eins og er og
hafa báðir náð frábærum árangri.
Ungu mennirnir hafa einnig verið
í umræðunni um þjálfarastöðuna
hjá enska landsliðinu og virðist
valið þá jafnan standa á milli Alan
Shearer, fyrrverandi landsliðsfyr-
irliða Englands, og Jürgen Klins-
mann, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ara Þýska-lands. Shearer hefur
enga reynslu af þjálfun og viður-
kenndi sjálfur að það hefði komið
honum í opna skjöldu að vera
nefndur á nafn í þessu samhengi.
„Ég hef auðvitað mikinn áhuga
á því að þjálfa í framtíðinni en ég
veit ekki hvenær það verður. Þjálf-
arastarfið hjá enska landsliðinu er
frábært starf og örugglega það
besta í bransanum og ég var því
hissa að sjá mitt nafn á meðal allra
þeirra frábæru þjálfara sem voru
á sama tíma orðaðir við þjálfara-
stöðuna,“ sagði Shearer en Klins-
mann var einmitt á sínum tíma
ráðinn þjálfari þýska landsliðsins
án þess að hafa mikla reynslu af
þjálfun. Dæmi um reynslulausa
þjálfara sem hafa gert góða hluti
og náð að færa sig um set frá því
að vera leikmaður og taka við
landsliði, eru auk Klinsmann þeir
Marco van Basten hjá Hollandi og
Slaven Bilic hjá Króatíu.
- óþ
Enska knattspyrnusambandið hefur ekki enn ráðið eftirmann Steve McClaren í starfi þjálfara Englendinga:
Leit eftirmanns McClaren heldur áfram
HISSA Alan Shearer, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englendinga, átti ekki von á því að
vera nefndur sem líklegur eftirmaður Steve McClaren. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Átta leikir fóru fram í
ensku úrvalsdeildinni í gær og
helst ber að nefna að Bolton vann
óvæntan sigur á móti Manchester
United, Everton slátraði Sunder-
land og Arsenal átti í talsverðum
erfiðleikum með að vinna Wigan.
Flest benti til þess að Manchest-
er United myndi vinna Bolton
örugglega, en fyrir leikinn var
United taplaust í síðustu tíu leikj-
um sínum í ensku úrvalsdeildinni
og Bolton var aftur á móti ekki
búið að vinna síðustu tíu leiki sína
í deildinni. Heimamennn í Bolton
komust hins vegar yfir á elleftu
mínútu leiksins þegar varnar-
menn United misreiknuðu auka-
spyrnu Ivan Campo og þannig
mistök kunna fáir betur að nýta en
Frakkinn Nicolas Anelka. Anelka
sem var kominn aftur í byrjunar-
lið Bolton eftir meiðsli átti því
ekki í erfiðleikum með að skora og
koma Bolton yfir. Markið kom
ekki gegn gangi leiksins því Bolt-
on liðið virkaði frískt og ógnandi,
en Manchester United ólíkir sjálf-
um sér og liðið skapaði sér í raun
fá marktækifæri í fyrri hálfleik.
Um miðjan hálfleikinn braut
Kevin Davies, leikmaður Bolton,
gróflega á Patrice Evra, leikmanni
Manchester United, en fékk aðeins
að líta gula spjaldið fyrir viðskipti
sín við Frakkann. Sir Alex Fergu-
son, stjóri Manchester United, var
gríðarlega ósáttur við dóminn og
lét reiði sína í ljós í hálfleik og var
fyrir vikið rekinn upp í stúku
þaðan sem hann horfði á seinni
hálfleikinn. „Ég sagði dómaranum
bara hvað mér fannst um frammi-
stöðu hans í fyrri hálfleiknum og
honum mislíkaði það greinilega
illa við sannleikann,“ sagði Fergu-
son í viðtali í leikslok.
Í seinni hálfleik þyngdist sókn
United til muna, en illa gekk hjá
þeim að koma tuðrunni í netið.
Þegar um tuttugu mínútur lifðu
leiks fékk Carlos Tevez þvílíkt
dauðafæri eftir góðan undirbún-
ing Patrice Evra, en Argentínu-
maðurinn skot rétt framhjá mark-
inu. United sótti stíft á
lokamínútunum en ekkert gekk
upp og svekkjandi tap því stað-
reynd.
„Þetta var annar sigur Bolton,
en ekki fyrsti sigur minn,“ sagði
Gary Megson, stjóri Bolton, hóg-
vær í leikslok og hrósaði leik-
mönnum sínum í hástert. „Leik-
menn mínir sýndu mikinn vilja og
vinnusemi og þetta voru frábær
úrslit fyrir okkur og ég er mjög
bjartsýnn upp á framhaldið að
gera,“ sagði Megson sáttur.
Everton fór illa með Sunderland
og kjöldrógu þá 7-1 á heimavelli
sínum. Leikurinn var algjör ein-
stefna og stjóri Roy Keane, stjóri
Sunderland, játaði veikleika liðs
síns í viðtali í lok leiks.
„Everton nýttu sér alla galla á
liði mínu og úrslitin eru vitanlega
mikið áfall fyrir okkur, en ég tek
tapið á mig,“ sagði Keane.
omar@frettabladid.is
Bolton vann loksins grannaslaginn
Bolton náði loksins að vinna Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær, Arsenal vann Wigan í mikl-
um baráttuleik og Everton slátraði nýliðum Sunderland í átta marka leik á Goodison Park.
SLÁTRUN Everton fóru illa með læri-
sveina Roy Keane í gær og unnu 7-1 á
heimavelli sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
MAGNAÐUR Nicolas Anelka tryggði Bolton óvæntan sigur gegn Englandsmeisturum
Manchester United. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Chelsea unnu Derby 2-0 í
gær en fyrir leikinn var búist við
fremur auðveldum sigri Chelsea.
Salomon Kalou kom Chelsea yfir
á 17. mínútu þegar hratt spil
Chelsea-liðsins gjörsamlega
splundraði vörn Derby. Chelsea
voru sterkari aðilinn í leiknum en
segja má að óheppnin elti líka
lánlaust lið Derby, því á 73.
mínútu var fullkomlega löglegt
mark dæmt af Kenny Miller. Til
að auka á eymd Derby-manna
skoraði Shaun Wright-Phillips
annað mark Chelsea stuttu síðar
og þar við sat. En Michael Essien
fékk að líta rauða spjaldið í
uppbótartíma og gæti átt yfir
höfði sér allt að því þriggja leikja
bann. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Derby tapaði
enn og aftur
FÖGNUÐUR Shaun wright-Phillips fagnar
hér marki sínu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY