Fréttablaðið - 25.11.2007, Page 110
38 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
Hvað er að frétta? Fátt kemst að þessa daga nema
hljómsveitin mín Bloodgroup. Við vorum að gefa út
plötuna Sticky Situation, erum að fylgja henni eftir
og spila úti um allt.
Augnlitur: Blár.
Starf: Er að selja plötur í Skífunni og svo auðvitað
að spila.
Fjölskylduhagir: Kvæntur og á tvö börn.
Hvaðan ertu? Frá Egilsstöðum.
Ertu hjátrúarfullur? Nei alls ekki.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég horfi nú eigin-
lega aldrei á sjónvarp, en segjum bara Family Guy.
Uppáhaldsmatur: Maturinn sem konan mín býr til.
Fallegasti staðurinn: Héraðið heima og Seyðis-
fjörður.
iPod eða geislaspilari: iPod. Ég á reyndar engan
en mig langar í einn.
Hvað er skemmtilegast? Að búa til tónlist.
Hvað er leiðinlegast? Að fá reikninga.
Helsti veikleiki: Úff, það er svo margt... get ekki
ákveðið... æi, ég hef bara enga veikleika.
Helsti kostur: Ég er hrikalega skemmtilegur maður.
Helsta afrek: Börnin mín auðvitað.
Mestu vonbrigðin: Nýlegustu vonbrigðin voru um
síðustu helgi þegar við þurftum að aflýsa tónleikum
á Seyðisfirði vegna veðurs.
Hver er draumurinn? Að verða hamingjusamur
gamall maður.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Konan mín og
hljómsveitin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Okrið á Íslandi
fer í taugarnar á mér, verðlagið og vextirnir.
Hvað er mikilvægast? Fjölskyldan.
HIN HLIÐIN HALLUR KRISTJÁN JÓNSSON TÓNLISTARMAÐUR
Þolir ekki okrið á Íslandi
16.02.76
Fyrrverandi X-Factor dómarinn
Elínborg Halldórsdóttir eða Ellý
keypti sér nýlega nærri 80 ára
gamalt þriggja hæða hús á Akra-
nesi sem hún er að gera upp frá
grunni. „Ég er í þessu daga og
nætur,“ segir Ellý en húsið hefur
áður gegnt hlutverkum bæði kaffi-
húss og íbúðarhúsnæðis. „Þetta
var algjörlega ónýtt. Ég sem ætl-
aði bara að kaupa ódýrt húsnæði
og sansa það aðeins. Henda smá
pening í þetta og fara svo út til að
klára að læra. Svo vatt þetta upp á
sig og er alveg ótrúlega mikil
vinna. Þú getur ekki ímyndað þér
hvað þetta var ógeðslegt. Raki í
öllu, maðkar og pöddur.“
Ellý vílar ekki fyrir sér að sjá að
mestu um framkvæmdirnar sjálf.
„Ég er myndlistarmaður, mynd-
listarmenn kunna allt. Ég er orðin
flink í smíðunum enda byggði ég
húsið sem ég bjó í síðast frá
grunni. Maður veit orðið hvað þarf
til og hvernig á að gera hlutina. Ég
er búin að vera stanslaust að í tíu
vikur. Það tók mig viku bara að
þora inn. Eiginlega hefði verið
fljótlegra að kaupa lóð og byggja
nýtt hús,“ segir Ellý en liðsmenn
þáttarins Innlit-útlit fylgjast með
framkvæmdunum frá a-ö. „En
þótt maður kunni ýmislegt þarf
maður alltaf aðstoð og ég er svo
heppin að þekkja æðislega fag-
menn sem hafa hjálpað mér. Mar-
grét Cassaro hjá Sólark arkitekt-
um hefur reynst mér frábærlega
og sömuleiðis Steðji hér á Akra-
nesi auk fleiri aðila.“ Ellý segist
vel geta hugsað sér að leggja smíð-
arnar fyrir sig og gera það að
atvinnu sinni að gera upp gömul
hús. „Ég væri alveg til í það. Oft
treystir fólk sér ekkert í þessa
vinnu og ég er að verða frekar
flink í þessu,“ segir Ellý en hennar
næsta verkefni er að kenna mynd-
list í Fjölbrautaskóla Vesturlands
á næstu önn. - sók
Ellý gerir upp 80 ára gamalt hús
DAGAR OG NÆTUR
Ellý hefur unnið við að gera upp húsið
sitt í tíu vikur – daga og nætur. „Ég sem
ætlaði bara að kaupa ódýrt húsnæði og
sansa það aðeins,“ segir hún.
„Þetta er alltaf að færast í aukana,
ár frá ári, að fólk komi með gælu-
dýrin og láti þau gista á hóteli yfir
jólin,“ segir Hreiðar Karlsson hjá
Hundahótelinu í Leirum. Undir
þetta taka bæði Sigríður Heiðberg
í Kattholti og Lilja Björk hjá K-9
hundahótelinu á Suðurnesjum.
„Hér er alltaf allt fullt yfir hátíð-
irnar, bæði jól og páska,“ segir
Lilja Björk. Rebecca Hennermark
hjá Voffaborg í Víðidal segir að
langflestir sem nýti sér þjónust-
una sé fólk á leið til útlanda þótt
auðvitað gefi fólk ekki alltaf upp
ástæðuna. „Og það verður voða-
lega notalegt hjá þeim yfir jólin,
þeir fá hangikjöt og bein. Það
verða nú líka að vera jól hjá þeim,“
segir hún.
Íslenskir gæludýraeigendur
virðast því í síauknum mæli koma
loðnu ferfætlingunum í gistingu
þegar hátíð ljóss og friðar ber að
garði. Stór hluti þeirra er fólk sem
hyggst halda jólin á sólríkri strönd
en Hreiðar segir sífellt stærri hóp
hundaeigenda koma með besta vin
mannsins einfaldlega vegna þess
að þeir hafi ekki tíma í miðri jóla-
ösinni. „Fólk er í matarboðum og
er að halda matarboð og finnst það
ekki geta sinnt hundinum sínum
nægilega vel,“ segir Hreiðar, sem
fær einnig ketti, kanínur og páfa-
gauka á hótelið sitt yfir jólin. Sig-
ríður Heiðberg í Kattholti sagði að
tuttugu pláss væru þegar bókuð
fyrir jólatörnina og hún byggist
við að allt að fjörutíu kettir myndu
gista hjá sér þegar jólahaldið hæf-
ist hjá mannfólkinu. Sigríður segir
að flestir sem komi til hennar séu
fólk á leiðinni til útlanda en þó séu
líka alltaf einhverjir sem ekki hafi
tíma.
Hreiðar segir jafnframt að það
sé ekki bara mannfólkið sem bæti
duglega á sig yfir jólin því hund-
arnir á Hundahótelinu séu vel
fóðraðir. „Ég hef stundum verið
gagnrýndur fyrir það að fita þá of
mikið,“ segir Hreiðar og hlær og
bætir því við að einnig sé töluverð
eftirsókn eftir plássi þegar nær
dragi gamlárskvöldi. „Margir
hundar eru mjög hræddir við
raketturnar og það er auðvitað
byrjað að sprengja löngu fyrir
þann tíma. Við erum hins vegar
langt frá öllum sprengjum og spil-
um bara rólega tónlist fyrir þá og
þeim líður bara vel,“ segir Hreið-
ar, sem býst við því að vera með
yfir fimmtíu hunda hjá sér yfir
jólin. freyrgigja@frettabladid.is
GÆLUDÝRIN : LOÐNU FERFÆTLINGARNIR Á FARALDSFÆTI UM STÓRHÁTÍÐIRNAR
Hundar og kettir á hóteli yfir jólin
Hundahótelið á Kjalarnesi: 800-
1.500 krónur nóttin. Hægt er að
panta bað áður en hundurinn
kemur heim aftur.
Kattholt: 800 krónur nóttin.
Voffaborg: 1.650 krónur. Ókeypis
snyrting ef hundurinn er lengur en
í viku.
VERÐ Á GÆLUDÝRAHÓTELUM
Guðni Bergsson, lögfræðingurinn
og sjónvarpsmaðurinn góðkunni, er
kominn í hóp stoltra Range Rover-
eigenda. Guðni hefur hingað til
spókað sig á glæsilegri BMW-sport-
bifreið en hefur nú sett hana á
sölu og fest kaup á svörtum
Range, sem eru meðal
vinsælustu lúxus-
bifreiða lands-
ins. Samkvæmt
söluskrá B&L kostar
glæsilegasta
útgáfan af Range
rúmar sextán millj-
ónir króna en ekki
fylgir sögunni hvort
Guðni keypti
dýrustu
týp-
una.
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
föstudag mun Magnús Scheving
ekki vera viðstaddur Bafta-verð-
launin þar sem hann er staddur
í Chile. Íbúarnir þar hafa tekið
honum með kostum og kynjum
og er Íþróttaálfurinn spurður álits á
öllu milli himins og jarðar. Þannig
var Magnús til að mynda inntur
eftir skoðun sinni á frammistöðu
knattspyrnulandsliðs Chile um
þessar mundir. Magnús hefur
væntanlega getað glatt íbúana með
þeim fregnum að á
meðan Chile er í
45. sæti styrk-
leikalista FIFA
er íslenska
landsliðið í 89.
sæti. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég er rosa-
lega stolt af
honum. Hann
hefur alltaf
verið mjög
hógvær og
tillitssamur,
ljúfur og
góður drengur, en það hefur
alltaf verið stutt í húmorinn hjá
honum líka. Frá upphafi hefur
hann verið mjög snyrtilegur og
mikill töffari, en ekki mikið fyrir
athygli. Hann er mjög duglegur
í vinnu og hjálpsamur, hefur
verið mikið í íþróttum og fengist
við tónlist og er mjög fjölhæfur.“
Rannveig Halldórsdóttir, móðir Ágústar
Arnar Guðmundssonar frá Kópaskeri,
sem var krýndur Herra Ísland á miðviku-
dagskvöldið.
Hreiðar Karlsson segir að hann
spili rólega tónlist og gefi þeim
hundum sem gisti á hótelinu hans
góðan mat yfir hátíðirnar. Sigríður
Heiðberg segir það alltaf aukast
að fólk komi með kettina sína í
gistingu yfir jólin en það sé aðallega
fólk sem sé að fara til útlanda og
haldi jólin hátíðleg á sólríkri strönd.
DÝRIN Á MYNDUNUM TENGJAST FRÉTTINNI EKKI
LÍÐUR VEL Á HÓTELI
15%
vaxtaauki!
A
RG
U
S
/
07
-0
82
7
Nýttu þér þetta
TILBOÐ
og stofnaðu rei
kning á spron.is
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Tomas Malakauskas.
2 Explorer.
3 Hafnarfirði.