Fréttablaðið - 25.11.2007, Qupperneq 112
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 25.
nóvember, 329. dagur ársins.
10.27 13.15 16.02
10.31 12.59 15.27
STÚDENTABLAÐIÐ
HÁSKÓLINNH
MENNINGM
PÓLITÍKP
fylgir
Fréttablaðinu
16. desember
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
6
1
5
22.900 kr.
Verð:
Langar þig að gleðja einhvern sérstaklega mikið um jólin? Jólagjafa-
bréf Iceland Express gefur þeim sem þér þykir vænt um spennandi
fyrirheit á nýju ári, hvert sem hugurinn leitar.
Bókaðu vel heppnaða jólagjöf á www.icelandexpress.is
Innifaldar í gjafabréfinu eru flugferðir báðar leiðir með sköttum til eins af
15 áfangastöðum Iceland Express í Evrópu. Bókunartímabil jólagjafabréfsins
er frá 26. desember til 31. janúar 2008 og eftir það gildir gjafabréfið sem
inneign í 2 ár. Jólagjafabréfið gildir í flug á tímabilinu 15. janúar til 30. júní
2008. Sætaframboð er takmarkað.
Jólagjafabréf Iceland Express er komið í sölu
„Hvert“ færðu í jólagjöf?
Þegar ég bjó í Svíþjóð fyrir hart-nær átján árum kynntist ég
íslenskum systkinum sem þar
bjuggu. Bróðirinn var í sambúð,
þau hjónaleysin áttu unga dóttur
og konan var barnshafandi á ný.
Hún varð fyrir því að fá einhvern
kvilla á meðgöngunni sem gerði
það að verkum að síðustu mánuði
hennar þurfti hún að vera
rúm liggjandi eða að minnsta kosti
forðast alla líkamlega áreynslu.
Hvorugt var tekjuhátt og ekki
urðu veikindin til að bæta hag
þeirra, þótt félagslegt öryggisnet í
landinu kæmi í veg fyrir að þau
færu á vonarvöl.
ÞAU voru bíllaus og þótti þeim
brýnt að ráða bót á því vegna
stækkunar fjölskyldunnar og erf-
iðleika konunnar við að ferðast af
eigin rammleik. Þau fundu bíl,
gerðu áætlun og sóttu um lán til að
geta keypt hann. Lánið ætluðu þau
að borga á einu ári. Þau lögðu fram
upplýsingar um fjölskylduhagi og
tekjur og biðu milli vonar og ótta.
Viku síðar voru þau kölluð á fund
bankastjórans, sem tjáði þeim að
farið hefði verið yfir málið og eðli-
legt hefði þótt að bíl þyrftu þau að
eignast. Þeim var hins vegar sagt
að þau þættu of tekjulág til að geta
endurgreitt lánið á einu ári. Þeim
var því boðið að greiða það á tveim
árum í staðinn.
ÞEGAR systirin frétti þetta hugs-
aði hún sér gott til glóðarinnar.
Hún var talsvert tekjuhærri en
bróðir hennar, sambýlismaður
hennar hafði líka ágætar tekjur og
þau voru barnlaus. Hún hlyti að
þykja betri pappír en bróðirinn.
Hún sótti því um lán til að geta
keypt bíl. Viku síðar var hún boðuð
á fund. Þar var henni tilkynnt að
samkvæmt upplýsingum um fjöl-
skylduhagi hennar væri ekki ljóst
af hverju hún þyrfti bíl og að ef
hana langaði í bíl hefði hún nægar
tekjur til að kaupa hann, til þess
þyrfti hún ekki lán. Henni var því
synjað um lánið.
ÞETTA þótti Svíum mjög eðlileg
bankastarfsemi. Enda hristu þeir
stundum hausinn yfir muninum á
sér og Íslendingum og drógu hann
saman í þessum orðum: „Ef Svíi
vinnur milljón í happdrætti fer
hann með hana í bankann, leggur
helminginn inn og kaupir bíl fyrir
hinn helminginn. Ef Íslendingur
vinnur milljón í happdrætti fer
hann með hana í bankann, fær lán-
aða milljón og kaupir sér bíl fyrir
tvær.“
Hvílíkt lán