Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 5. DESEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
S
amvinnusjóðurinn verður
kjölfestan í þessu. Það er
alveg ljóst að hann verður
stærstur,“ segir Benedikt
Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Eignarhaldsfélagsins Sam-
vinnutrygginga.
Ákveðið var í sumar að stofna
Fjárfestingarfélagið Gift hf. upp
úr Eignarhaldsfélaginu Samvinnu-
tryggingum. Eigið fé Gift er talið
nema um þrjátíu milljörðum króna.
Markaðsvirði skráðra félaga á síð-
ari hluta ársins kynni þó að hafa
rýrt þá tölu.
Samvinnutryggingar voru í sinni
tíð svonefnt gagnkvæmt trygginga-
félag en í því felst að þeir sem
tryggðu hjá félaginu eignuðust þar
líka hlut, Hlutur hvers og eins hefur
verið bundinn í Eignarhaldsfélag-
inu, þangað til núna, þegar til stend-
ur að slíta því.
Miðað er við að viðskiptamenn
sem tryggðu hjá Samvinnutrygg-
ingum tvö seinustu starfsárin, 1987
og 1988, eigi hlut í Gift. Einnig þeir
sem voru með lögboðna brunatrygg-
ingu árin 1992 og 1993. Fram kemur
í samþykktum félagsins að rétt-
indi einstaklinga falli niður tveim-
ur árum eftir andlát. Lög aðilar,
stofnanir og fyrirtæki hafa þurft
að halda óslitnum vátryggingavið-
skiptum við Vátryggingafélag Ís-
lands (VÍS).
SLITIN GAGNRÝND
„Að mínum dómi átti að slíta Eignar-
haldsfélaginu árið 1989 og eigend-
urnir að fá hluti í VÍS,“ segir Sig-
urður G. Guðjónsson hæstaréttar-
lögmaður. „Ég tel að þeir sem áttu
réttindi í Samvinnutryggingum við
stofnun VÍS eigi þau enn.“ Sigurður
bætir því við að Samvinnutrygging-
ar hafi verið stofnaðar sem sam-
vinnufélag og líta beri á þær sem
slíkar.
Tryggingastofnar Samvinnu-
trygginga og Brunabótafélags Ís-
lands voru sameinaðir 5. febrúar
árið 1989 og til varð VÍS.
Fram hefur komið að um 65 þús-
und manns hafi átt eignarrétt í
fyrirtækinu þegar það hætti starf-
semi.
Kristinn Hallgrímsson, formaður
skiptanefndar Eignarhaldsfélags-
ins, segir að ýmis álitamál séu til
skoðunar. Ekki verði ljóst hverjir
eigi hlut í Fjárfestingarfélaginu
Gift fyrr en um eða eftir áramót-
in. Til stóð að skiptafundurinn yrði
haldinn í september.
SAMVINNUSJÓÐURINN STÆRSTUR
Samvinnusjóðurinn verður stærsti
hluthafinn í Gift. Þangað hefur runn-
ið eign þeirra sem tryggðu hjá Sam-
vinnutryggingum en hafa látist eða
hætt að tryggja hjá félaginu. Þá
hafa líka runnið þangað réttindi
fyrirtækja sem orðið hafa gjald-
þrota eða hætt að tryggja.
Ætla má að um þriðjungur af um
þrjátíu milljarða eigin fé Eignar-
haldsfélagsins sé á forræði sjóðsins.
Sjóðurinn, sem er sjálfseignar-
stofnun, á að styrkja samfélagsverk-
efni og almannaheill.
„Næststærsti hluthafinn í Gift
verður að líkindum Samband ís-
lenskra samvinnufélaga,“ segir
Guðsteinn Einarsson, kaupfélags-
stjóri í Borgarnesi og stjórnarfor-
maður Sambandsins. Hann bætir
því við að Sambandið hafi verið
langstærsti tryggingatakinn hjá
Samvinnutryggingum og hafi auk
þess lagt til stofnfé. Hann geri ráð
fyrir því að eignarhlutur Sambands-
ins í Gift hlaupi á nokkrum milljörð-
um króna en þó sé erfitt að fullyrða
nokkuð um það nú.
Ætla má að fleiri fyrirtæki sem
eiga uppruna sinn í Sambandinu eign-
ist nokkurn hlut í Gift. Til að mynda
félög sem tengjast Ólafi Ólafssyni,
stjórnarformanni og helsta eiganda
Samskipa.
VENJULEGUR TRYGGJANDI FÁI
100.000
Um 50 þúsund aðilar, einstaklingar
og fyrirtæki, eignast hluti í Gift. Af
þeim tuttugu milljörðum króna sem
skiptast milli tryggjenda má ætla að
SÍS fái mest, hugsanlega milljarða,
en síðan fái önnur fyrirtæki sem
eiga rætur að rekja til SÍS umtals-
verða hluti.
Fram hefur komið að venjuleg
fjölskylda sem tryggði hús, innbú og
bíl geti gert ráð fyrir að fá um 100
þúsund króna hlut í Fjárfestingar-
félaginu Gift. Þessar upplýsingar
eru óstaðfestar.
Sé gert ráð fyrir að flestir í hópi
tryggjenda hafi verið venju legar
fjölskyldur, má ætla að þær fái um
fimm milljarða króna af hinum þrjá-
tíu milljarða sjóði. Á
milli 20 og 25 milljarðar
af eigin fé fyrirtækis-
ins verði hins vegar í
höndum Samvinnusjóðs-
ins, Sambands íslenskra
samvinnufélaga og fleiri
fyrirtækja.
Benedikt Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Sam-
vinnutrygginga, bendir
á að hæpið sé að full-
yrða nokkuð um þetta,
þar sem endanleg skipti
liggi ekki fyrir.
HVER RÆÐUR?
„Þarna gengur eitt-
hvert sjálfala fulltrúa-
ráð en félagsmenn hafa
lítil áhrif á þetta,“ segir
Sigurður G. Guðjóns-
son, um stjórnun Eignar-
haldsfélagsins Sam-
vinnutrygginga.
24 manna fulltrúaráð félagsins,
sem hefur haft með höndum að
velja stjórn félagsins og
taka meiri háttar ákvarð-
anir á aðalfundum, velur
sig sjálft.
Þangað til fyrir fimm
árum var fulltrúaráðið
kosið á aðalfundi Sam-
bands íslenskra sam-
vinnufélaga.
Sigurður spurði í grein
í Morgunblaðinu í sumar
hvort allir gætu mætt á
aðalfundi eða hvort þeir
væru aðeins fyrir fáa út-
valda.
Fundurinn þar sem slit
félagsins voru ákveðin
var haldinn á föstudegi,
en boðað var til hans
með auglýsingu í Morg-
unblaðinu á þriðjudegi í
sömu viku.
Gísli Jónatansson,
varaformaður Sambands
íslenskra samvinnu-
félaga og kaupfélags-
stjóri á Fáskrúðsfirði,
skrifaði í Morgunblaðið í
sumar að í heilt ár hefðu
tryggjendur, undir for-
ystu stjórnar sambandsins, reynt
að hafa áhrif á ákvarðanir um fjár-
muni Samvinnutrygginga.
Það sé alveg ljóst að
það hafi aldrei verið
hugsun þeirra sem
stofnuðu félagið á sínum
tíma að sjálfskipað fá-
mennt fulltrúaráð kæm-
ist í slíka valdastöðu.
Það hefði verið sjálf-
sögð og eðlileg kurteisi
við tryggingatakana að
boða þá til fundar og
kynna þeim réttarstöðu
sína.
Þórólfur Gísla-
son, stjórnarformaður
Eignar haldsfélagsins,
sagði í sumar að ekki
hefði verið hægt að
boða félagsmenn til aðal-
fundar því eign þeirra
hefði aldrei verið virk.
Óljóst hverjir eiga þrjátíu milljarða
Ákveðið var að slíta Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum í sumar. Til verður fjárfestingarsjóður með 30 milljarða króna í
eigið fé. Sjálfseignarstofnunin Samvinnusjóðurinn verður stærsti hluthafinn. Um 50 þúsund aðilar eiga þar líka hlut, en óvíst er
hversu mikið hver og einn á. Ingimar Karl Helgason fer yfir málið og slit félagsins sem hafa sætt nokkurri gagnrýni.
Þ R I Ð J U N G U R Í S L E N D I N G A
T R Y G G Ð I H J Á
S A M V I N N U T R Y G G I N G U M
Hlut í Samvinnutryggingum eignuðust
þeir sem þar tryggðu og Samband
íslenskra samvinnufélaga (SÍS) sem
lagði til stofnfé. Hér eru nokkur dæmi
um fyrirtæki sem þar tryggðu.
SÍS var ávallt stærsti tryggingatakinn:
- Öll kaupfélögin og dótturfélög
- Skipadeildin (Samskip)
- Sjávarafurðadeild
- Innflutningsdeild/Mikligarður
- Búvörudeild
Fyrirtæki í eigu SÍS:
- Olíufélagið
- Kirkjusandur
- Dráttarvélar
Ýmis fyrirtæki:
- útgerðir
- Hekla hf.
- Sláturfélag Suðurlands
E I G N I R
S A M V I N N U T R Y G G I N G A
Hlutdeildarfélög:
FS3 ehf.
Skráð félög:
Icelandair Group Holding hf.
Straumur fjárfestingarbanki hf.
Kaupþing Búnaðarbanki hf.
Landsbanki Íslands hf.
EXISTA ehf.
Glitnir banki hf.
Óskráð félög:
Árkaup hf.
Samkaup hf.
Saga Capital
Fóðurblandan ehf.
UPPHAF LANGRAR SÖGU Vilhjálmur Þór, forstjóri SÍS, og Seved Apelquist skrifa undir samning
1946. Jakob Frímannsson og Bengt Frænkel standa að baki.
S T I K L U R
Á S E X Á R A T U G U M
Stofnfé Samvinnutrygginga nam 700
þúsund krónum. Stærsta eign félagsins
nú er hlutur í Exista sem metinn er á um
tíu milljarða króna.
1946 Samvinnutryggingar
stofnaðar af SÍS
1989 Samvinnutryggingar
renna inn í VÍS
1992 Sambandið hætt
rekstri
2003 Búnaðarbankinn keyptur
með tilstyrk Samvinnu-
trygginga
2004 Exista kaupir 18% í VÍS
2006 Exista eignast 100% í
VÍS og greiðir fyrir með
hlutum í Exista.
V A L D F É L A G S M A N N S I N S
Þetta segir um stjórnun Samvinnu trygg inga í bók sem gefin var út á 30 ára afmæli félagsins:
„[Þ]etta nýja tryggingafélag [var] að allri gerð alger nýjung hér á landi og að verulegu
leyti frábrugðið þeim tryggingafélögum, sem fyrir voru í landinu, flest hlutafélög eða
einkafyrirtæki. Þar voru tryggingatakar aðeins venjulegir viðskiptamenn, sem gátu keypt
sér tiltekna tryggingu [...] og höfðu síðan [ekki nokkur] nokkur félagsleg áhrif á stjórn þess
eða rekstur. [...] Hitt var ekki eins auðvelt að ná fullkomnu samvinnulýðræði [...] Úr þessum
vanda var leyst [...] á þann veg, að stjórn SÍS, sem kosin er af kjörnum fulltrúum kaupfélag-
anna á aðalfundi samtakanna – SÍS – skyldi kjósa stjórn Samvinnutrygginga [...]
Til þess að efla persónulegan samvinnurétt tryggingatakanna þó enn betur, er svo kveðið
á í samþykktum stofnunarinnar: „Eigendur stofnunarinnar eru þeir, sem á hverjum tíma
tryggja hjá henni“. Og enn fremur: „Tryggingaþegum stofnunarinnar er heimilt að leggja
tillögur fyrir aðalfund“.“
FINNUR INGÓLFSSON
Fyrrverandi viðskipta- og iðn-
aðarráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins. Var forstjóri VÍS.
Situr í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins
Samvinnutrygginga.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR Fyrrverandi
viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra. Varaformaður
Framsóknarflokksins. Situr í
fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins
Samvinnu trygginga.
Í H Ó P I L Y K I L F Ó L K S