Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007MARKAÐURINN
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Eignarhald á íslenska hlutabréfamarkaðnum er
þröngt og hlutdeild einstaklinga í skráðum félög-
um hefur lækkað.
Í samantekt Fjármálaeftirlitsins kemur fram að
stærsti eigandinn í félögum sem mynda úrvals-
vísitöluna er að meðaltali með 31 prósents eignar-
hlut. Sé horft til tveggja stærstu eigendanna hækk-
ar eignarhluturinn samanlagt að meðaltali í 45 pró-
sent.
Hlutdeild einstaklinga í hlutafé skráðra félaga
hefur lækkað úr 17 prósentum í 11,6 prósent milli
áranna 2002 og 2006. Hlutdeild þeirra aðila sem
einkum fjárfesta fyrir hönd almennings hefur líka
lækkað. Hludeild lífeyrissjóða fór úr 12 prósentum
í 9,6 prósent á sama tímabili og hlutdeild verðbréfa-
sjóða úr 4 prósentum í 1,2 prósent.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
hefur vakið máls á því hvort lækka eigi yfirtöku-
mörk í skráðum félögum, sem nú miðast við 40 pró-
senta eignarhlut eins eða tengdra aðila. Hann segir
að yfirtökuskyldan eigi að tryggja minnihlutanum
rétt til að geta losað hlut sinn á viðunandi kjörum
kjósi hann það.
„Á Íslandi hefur verið miðað við það að yfir-
ráð næðust við 40 prósenta atkvæðavægi sem er
nokkuð á skjön við önnur Vestur-Evrópuríki. Þetta
viðmið virðist hafa verið ákveðið án sérstakra
rannsókna eða rökstuðnings,“ segir Jónas.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur
boðað endurskoðun á núgildandi yfirtökureglum.
Hann segir mikilvægt að vernda eigendur sem lent
hafi í minnihluta í félagi. Farið verði yfir reglur um
yfirtökuskyldu og tilboðsskyldu.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga
Capital fjárfestingarbanka, hefur varað markaðs-
aðila við frjálslegri umgengni við reglur um yfir-
tökuskyldu. Hann segir dæmi um slíkt virðingar-
leysi á íslenska markaðnum sem til lengri tíma rýri
traust og hægi á vexti hans.
Þorvaldur segir að þröngt eignarhald í íslensk-
um félögum og stundum „grunsamlega“ góð kynni
manna á milli kalli á að reglurnar séu skýrar og
farið sé eftir þeim þannig að utanaðkomandi fjár-
festar treysti sér til þátttöku.
Hluthöfum fækkar
Eignarhald í skráðum félögum er þröngt. Eignarhlutur ein-
staklinga hefur lækkað. Virðingarleysi við reglur vandamál.
FUNDUR FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS UM YFIRTÖKUREGLUR
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, hefur velt upp þeirri spurningu
hvort lækka eigi yfirtökumörk í skráðum félögum.
D Æ M I U M Y F I R T Ö K U S K Y L D U
Yfirtökunefnd sagði að Vogun, félag Árna Vilhjálmssonar og
Kristjáns Loftssonar, væri yfirtökuskylt í Hampiðjunni. Það gekk
til baka gegn því að félagið myndi selja niður fyrir yfirtökumörkin.
Forsendan var að það hefði ekki verið ætlun þeirra að fara yfir
yfirtökumörkin.
Annað dæmi er þegar Baugur og Oddaflug urðu yfirtökuskyld
í FL Group. Félögin komu sér undan fyrirtökuskyldu með því að
Landsbankinn breytti stöðu þeirra í félaginu í framvikran samn-
ing. Samkvæmt því var bankinn eiginlegur handhafi bréfanna en
félögin nutu gengismunar og markaðsáhættu af þeim. Samt er
augljóst að banki, sem heldur á bréfum sem eru fjármögnuð fyrir
félögin, myndi ekki beita atkvæðisrétti á móti félögunum sem
þeir lána.
Ugla sat á kvisti... ...og það ert þú...
...sem verður fyrir barðinu á innbrotsþjófum næst?
...sem verður fyrir því að vera rændur næst?
Er ekki nóg komið – láttu þá sem þegar hafa orðið fyrir þessu verða þér næg aðvörun.
Skammdegið er versti tími ársins til þess að vera óvarinn eða ekki nógu varinn.
Við bjóðum upp á mikið úrval öryggisskápa, eldtrausta skápa, uppgjörsskápa, allar stærðir og gerðir, bæði á lager og sérpantanir
sem eru 2-3 vikur að skila sér. Vörulistana er hægt að nálgast á http://las.is/vorur_peningask.htm
Einnig bjóðum við upp á öryggiskerfi sem hringt getur í 6 símanúmer með mismunandi skilaboðum, allt eftir því hvað það var sem
setti kerfið af stað. Í þetta kerfi er hægt að fá hreyfiskynjara, hurðar/glugga-skynjara, reykskynjara, fjarstýringar, neyðarhnapp, auka
stjórnborð. Mjög auðvelt í uppsetningu og traust kerfi.
Komdu við og fáðu ráðleggingar hjá fagmönnum, við seljum eingöngu öryggisskápa og öryggiskerfi
sem við höfum prófað og treystum fullkomlega og getum veitt fulla þjónustu á.
Neyðarþjónustan – Laugavegi 168
562-5213 – www.las.is – las@las.is
Össur hf. hefur selt kauprétt
að húsnæði félagsins að Grjót-
hálsi 5 fyrir 7,9 milljónir Banda-
ríkjadala. Það nemur rúmum
489 milljónum íslenskra króna.
„Við höfum verið að leigja hús-
næðið hér í tíu ár, frá því árið
1997. Í þeim leigusamningi var
kaupréttarákvæði sem miðað-
ist við markaðsverð þess tíma.
Síðan hefur það hækkað mjög
í virði. Því var mjög hagstætt
fyrir okkur að selja kauprétt-
inn,“ segir Sigurborg Arnars-
dóttir, fjárfestatengill Össurar.
Upphæðin verður tekjufærð
sem aðrar tekjur á fjórða árs-
fjórðungi 2007 og mun auka
hagnað félagsins fyrir skatta
sem því nemur.
Salan hefur ekki aðrar breyt-
ingar í för með sér fyrir Össur.
„Það er í raun ekkert að breytast
hjá okkur. Höfuðstöðvar okkar
eru enn á Grjóthálsi og ekki
stendur til að fara þaðan.“ - hhs
489 milljónir króna
fyrir kaupréttarsölu
Í ár eru 90 ár liðin frá
setningu fyrstu laga
um löggildingarstofu
hér á landi. Af því til-
efni var um helgina
afhjúpaður við Þing-
vallakirkju upplýs-
ingaskjöldur og álna-
stika.
Að athöfninni stóðu
Samtök verslunar og
þjónustu (SVÞ) og
Neytendastofa, í sam-
vinnu við Landsbank-
ann og Þingvallanefnd. „Rétt mál
og vog eru forsenda ásættanlegr-
ar verslunar sem síðan er undir-
staða menningar og þroska þjóða.
Því er þýðing stikulaganna og til-
vitnaðra löggildingarlaga árétt-
uð af samtökum verslunarinnar
og þeirri stjórnsýslustofnun sem
löggilding heyrir undir með upp-
lýsingaskilti og stiku við Þing-
vallakirkju,“ segir
í tilkynningu um at-
burðinn.
„Menn skulu mæla
vaðmál og léreft og
klæði öll með stik-
um þeim er jafnlang-
ar eru tíu sem kvarði
tvítugur sá er merkt-
ur er á kirkjuvegg á
Þingvelli,“ segir í Grá-
gás, elstu lögum sem
til eru um lengdar-
mælingu.
Athöfnin fer fram klukkan eitt
í dag. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri SVÞ og Tryggvi
Axelsson, forstjóri Neytenda-
stofu, setja athöfnina, en Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráð-
herra afhjúpar. Þá flytur Helgi
Þorláksson, prófessor í sagn-
fræði, fróðleiksmola um mæling-
ar til forna. - óká
Afhjúpa skjöld og stiku
Níutíu ár eru frá lagasetningu um löggildingarstofu.
ÞINGVALLABÆR OG
-KIRKJA