Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 16
38 15 14%milljarðar króna sem Marel Food Systems borgar fyrir Stork Food Systems. milljarða rýrnun á verðmæti bréfa FL Group í flug-rekstrarsamstæðunni AMR, móðurfélagi American Airlines, frá því fyrst var fjárfest í félaginu þar til
hluturinn var seldur í síðustu viku.
lækkun úrvalsvísitölunnar í nóv-
ember. Vísitalan hefur aldrei lækk-
að jafnmikið á einum mánuði.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Freyr Þórðarson, Benedikt
Gíslason, Jóhann Steinar
Jóhannsson, Willie Blumenstein,
Styrmir Sigurjónsson, Brynjar
Hreinsson, Guðmundur
Þórðarson, Björgvin Ingi
Ólafsson, Margit Robertet,
Markús Máni Michaelsson, Ægir
Birgisson, Jesper Jóhannsen og
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir
hafa hætt störfum hjá Straumi
á Íslandi í ár. Bæði Margit og
Nanna keyptu hluti í Straumi
í janúar 2006 á genginu 17,4
með sölurétti sem tryggði þær
fyrir tapi. Við lok markaðar-
ins í fyrradag var gengi bréfa
Straums 16,9. Seldu þær?
Hætt
Með kaupunum á Stork Food
Systems er Marel
komið með öfluga
stöðu í þjónustu
við allar tegundir
kjöts í matvæla-
iðnaði, sama hvort
það er fuglakjöt,
fiskmeti eða annað
kjöt. Á kynningarfundi vegna
kaupanna á fyrirtækinu fyrir
helgi hafði Hörður Arnarson,
forstjóri Marels, orð á mikil-
vægi þessa. Í matvælaiðnaði
geta nefnilega komið upp áföll á
borð við fuglaflensu eða kúariðu
sem tímabundið fælir fólk frá
einni tegund kjöts. „En fólk þarf
sitt prótein og almennt gerist
það ekki grænmetis-
ætur,“ sagði Hörður á
kynningunni og vísaði
til þess að áfall í einni
grein matvælaiðnaðar
væri þá ávísun á aukn-
ingu í annarri.
Fólk fer ekki í
grænmetið
Stefán Jón Friðriksson hefur
sagt upp starfi sínu hjá fjár-
málaráðuneytinu og hyggst fara
í starf hjá Norræna fjárfesting-
arbankanum.
Forverar Stefáns hjá NIB hafa
átt afturkvæmt í góðar stöður.
Þannig var Guðmundur Ólason
starfsmaður einkavæðingar-
nefndar eins og Stefán. Hann fór
til NIB og endaði sem forstjóri
Milestone, eins sterkasta fjár-
festingarfélags á Íslandi. Þór
Sigfússon var aðstoðar maður
fjármálaráðherra. Hann fór til
NIB og er nú forstjóri Sjóvár,
sem Milestone á. Benedikt
Árnason var í fjármálaráðu-
neytinu, fór til NIB og er nú
aðstoðarforstjóri Aska þar sem
Milestone er stór hluthafi. Nú er
bara spurning hvaða starf bíður
Stefáns hjá Milestone-félögum
þegar hann snýr aftur.
Bíður starf hjá
Milestone?