Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 12
MARKAÐURINN 5. DESEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Fulltrúar frá tólf íslenskum fyrir-
tækjum hittust á tveggja daga
vinnufundi í London í síðustu
viku. Markaði fundurinn upphaf-
ið á þátttöku fyrirtækjanna í Út-
stími, verkefnis á vegum Útflutn-
ingsráðs. Samkvæmt tilkynningu
er verkefnið sérsniðið að þörf-
um þeirra fyrirtækja sem eru
að leita að umboðsmönnum eða
söluaðilum fyrir vöru og þjón-
ustu á erlendum mörkuðum. Full-
trúar fyrirtækjanna hittu meðal
annars ráðgjafa frá ýmsum lönd-
um og tóku ákvörðun um aðferða-
fræði að baki markaðssókn sinni.
Breska ráðgjafarfyrirtækið Euro-
partnerships er samstarfsaðili
Útflutningsráðs í verkefninu.
Þau tólf fyrirtæki sem taka
þátt í Útstíms-verkefninu eru
AGR, sem hyggst selja hugbúnað
í Bretlandi, Hvalaskoðun Reykja-
vík, sem hyggst herða tök sín á
markaðnum í Svíþjóð og Bret-
landi, Stiki, sem áætlar að finna
samstarfaðila í Bretlandi, Alrún,
sem áætlar að hefja útflutning
á skartgipum til Svíþjóðar og
Danmerkur, skartgripafyrir-
tækið Sign sem hyggur á land-
vinninga í Svíþjóð, Líftæknifyrir-
tækið Norðurbragð, sem áætlar
að auka sölu sína í Bretlandi, GT-
Group sem leitar markaða fyrir
vörur sínar í Bretlandi, Borgar-
plast sem leitar markaða í Tyrk-
landi og Mexíkó, Mentor, sem
hyggst styrkja stöðu sína í Sví-
þjóð og leita nýrra markaða í
Bretlandi, skartgripaframleið-
andinn Aurum sem mun leita
umboðsmanna í Bretlandi, fyrir-
tækið Húfur sem hlæja leitar
umboðsmanna í Noregi og Finn-
landi og veffyrirtækið Digital
Horse markaðssetur vörur sínar
í Svíþjóð. - hhs
Undirbúa sókn á
erlenda markaði
ÚTSTÍMS-HÓPURINN Fulltrúar tólf íslenskra fyrirtækja sóttu nýverið vinnufund í London á
vegum Útflutningsráðs. Hópurinn var þátttakandi í Útstími, verkefni sem sniðið er að þörfum
fyrirtækja sem leita að umboðsaðilum eða söluaðilum fyrir vöru eða þjónustu erlendis.
Y
fir fjögur hundruð
manns hlustuðu á fram-
söguræðu Al Gore á
orku- og umhverfisráð-
stefnu Merrion Capi-
tal, dótturfélags Landsbankans,
í Dublin á Írlandi hinn 1. desem-
ber. Ávarp hans bar nafnið „Græn
hugsun: Efnahagsstefna fyrir 21.
öldina.“
Þegar Al Gore var kynntur til
leiks sagði John Conroy, forstjóri
Merrion Capital, að Dublin væri
heiður að heimsókn Gore, „sem
væri áhrifamesti maður um mikil-
vægasta málefni sem mannkynið
stæði frammi fyrir í dag – lofts-
lagsbreytingar“.
Gore sagði áheyrendum, meðal
annarra írskum og alþjóðlegum
fjárfestum og forstjórum stórra
fyrirtækja, að það væri sér mikil
hvatning hve ofarlega umhverfis-
mál væru á baugi í alþjóðleg-
um markaðsviðskiptum. Hann
fagnaði einnig möguleikum á að
versla með endurnýjanlega orku-
kvóta. Hann óskaði Írum til ham-
ingju með góðan árangur í efna-
hagsmálum á undanförnum tíu
árum. Þá sagði hann að „aukinni
hagsæld [fylgdi] aukin siðferðis-
leg og pólitísk ábyrgð um að taka
forystu í glímunni við loftslags-
breytingar.“ Þá sagði hann Írland
geta gegnt lykilhlutverki meðal
iðnríkja heims við að vekja at-
hygli á umhverfisverndarmálum,
í ljósi árangurs síns í viðskiptum
og pólitískrar stöðu landsins.
Í fréttatilkynningu frá Lands-
bankanum segir að það sé skoð-
un bankans að alþjóðlegum fyrir-
tækjum beri skylda til að taka
markvissa afstöðu til mikilvægra
félagslegra og siðferðislegra
mála og umhverfismála. Þar á
meðal sé glíman við loftslags-
breytingar. Bankinn taki þátt í
mörgum verkefnum til að fram-
fylgja þeirri stefnu.
Landsbankinn hefur lýst yfir
stuðningi við leiðbeiningar OECD
fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki sam-
kvæmt tilkynningunni. Þá hafi
bankinn verið meðal þeirra sem
fyrst skrifuðu undir alþjóðlega
yfirlýsingu fjármálastofnana
um umhverfismál og sjálfbæra
þróun. Bankaráð hafi lagt aukna
áherslu á að fjárfesta í fyrirtækj-
um og verkefnum sem hvetja til
sjálfbærrar nýtingar náttúruauð-
linda. Bankinn hyggist leggja enn
meira af mörkum til að stuðla að
þróun á sjálfbærri nýtingu orku
og auðlinda með því að nýta ís-
lenska sérþekkingu á þessu sviði.
Ísland sé í fremstu röð þegar
kemur að notkun endurnýjan-
legrar orku.
Á komandi árum verður um-
hverfisvernd eitt af mikilvægum
verkefnum bankans, samkvæmt
tilkynningunni. Landsbankinn
hafi mótað sína eigin umhverfis-
stefnu. Með viðskiptastefnu sinni
vilji bankinn styðja við nýja tækni
og nýjar lausnir á sviði endur-
nýtan legrar orku. - hhs
Al Gore ávarpaði gesti Landsbankans
Yfir fjögur hundruð fjárfestar, forstjórar og aðrir gestir hlýddu á orð Al Gore á orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital,
dótturfélags Landsbankans, í Dublin hinn 1. desember. Umhverfisvernd verður eitt af mikilvægustu verkefnum bankans á kom-
andi árum, samkvæmt tilkynningu.
AL GORE HUGSAR GRÆNT Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna ávarpaði orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfélags
Landsbankans, á dögunum. MYND/JOHNY BAMBURY
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki