Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007 S K O Ð U N Hannes Smárason hættir sem forstjóri FL Group í kjölfar hlutafjáraukningar í félaginu. Verð hlutabréfa í félaginu á þessu ári hefur lækkað mikið. Öll hækkunin framan af árinu hefur gengið til baka og stærsta fjárfesting félagsins, um 10 pró- senta hlutur í AMR, sem á Amer- ican Airlines, var seld með tapi fyrir helgi. Framan af ári virtist sem leiðin lægi aðeins upp á við. Hannes Smárason er á marg- an hátt holdgervingur fyrir- tækisins og andlit þess. Athygli vakti að hann vildi að félagið keypti undir sig einkaþotu svo hann ætti hægara um vik með að sinna viðskiptunum í ýmsum hornum heimsins. Hann ekur um á Porsche-jeppa og á meðal ann- ars tvö einbýlishús í Þingholtun- um í Reykjavík. Hann varð fyrst verulega þekktur í íslensku viðskiptalífi fyrir tíu árum þegar hann var aðstoðarforstjóri deCODE. Sam- fara því eignaðist hann nokkurn hlut í fyrirtækinu. Á árunum 1992 til 1996 starfaði hann sem ráðgjafi hjá McKins- ey & Co. í Boston, eftir að hann hafði lokið MBA-prófi frá MIT Sloan School of Management, og áður BS-gráðu í vélaverkfræði og stjórnun frá MIT-háskóla í Massachusetts. Frá deCODE fór Hannes í flugfjárfestingar með félag- inu Oddaflugi ásamt þáverandi tengdaföður sínum, Jóni Helga Guðmundssyni í Byko. Síðar keypti hann Jón Helga út úr Oddaflugi. Hannes eignaðist hlut í Ice- landair og tók þátt í stofnun FL Group árið 2005. Félag hans, Oddaflug, átti ríflega fimmtungs hlut í FL Group fyrir hlutafjár- aukninguna. Þrátt fyrir að Hannes hafi oft verið gagnrýndur fyrir áhættu- samar fjárfestingar og verð- mæti FL Group hafi rýrnað að undanförnu hefur félagið undir hans stjórn orðið eitt helsta fjár- festingarfélag landsins á undan- förnum tveimur árum og eign- ast hluti í félögum í mörgum löndum. Meðal eigna FL Group eru hlutir í þýska Commerzbank og Finnair. Einnig á FL Group ráð- andi hlut í Glitni banka, stór- an hlut í Geysi Green Energy, North ern Travel Holding og fleiri félögum. - ikh Áhættusækinn á einkaþotu S A G A N Á B A K V I Ð . . . . . . H A N N E S S M Á R A S O N , F Y R R V E R A N D I F O R S T J Ó R A F L G R O U P Í jólastuði „Æsingur er þetta,“ var sirka það eina sem mér datt í hug þar sem ég stóð með viskíglasið fyrir utan íbúðina okkar á Costa del Sol á sunnudagskvöldið og virti fyrir mér jólakransinn sem ég hafði nokkrum mínútum áður hengt upp á nagla. Það er eins og allt ætli að fara til fjandans á skerinu heima þegar vísitalan keyrist niður á nokkrum vikum. Árið gufað upp, lindarsprænan sem hélt í mörg- um lífinu uppurin og síðasta hálm- stráið að rifna upp með rótum. Einhverjir hanga á bláþræði gír- aðir upp í topp og hugsa með hryll- ingi til allra heimatilbúnu jóla- gjafanna sem þeir þurfa að gefa vinum og ættingjum um jólin. Það eru miklar líkur á því að nokkrir komi til með að falla. Og þá er ég ekki bara að tala um skuldafenið sem bíður þeirra þegar trygging- ar ná ekki lengur upp í veðlánin. Sumir nú þegar búnir að veðsetja húsið, konuna, börnin og báðar ömmurnar til viðbótar. Þeir koma ekki fallegir inn í jólin, greyin. Í sömu jakkaföt- unum í jólaboðunum og í fyrra, loðnir í bak og fyrir án brasil- íska vaxins sem þeir gátu ekki leyft sér á síðasta mánuði ársins. Eða höfðu ekki tíma til þess. Hafa heldur ekki efni á að kaupa sér tíma fyrir jólin, eins og ég. Einhverjir gefa örugglega enga harða pakka fyrr en að ári í fyrsta lagi og óvíst hvort jóla- kortin verði með gullbrydding- um eins og í fyrra. Ættboginn getur treyst á mig. Gísli frændi fær trukkinn sem hann óskaði sér, Nína litla dúkkur frá Brasilíu og tengdó krem. Hjálparstofnan- ir hist og her fá svo styrk frá mér í gegnum jólakortakaupin. Þótt jólin séu spennandi bíð ég spenntastur eftir lista Frjálsrar verslunar á næsta ári og öðrum ágætum slúðurpappír um ríkustu menn landsins. Hverjir verða á listanum? Hverjir ekki? Bjögg- arnir verða þar örugglega, Pálmi Haralds, Gísli Reynis, Jón Ásgeir og … tja, kannski ég? Það yrði nú aldeilis gaman að sjá nafn manns á öðru en golfkúlum. Adios. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.