Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 12
12 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
TÆKNI „Fyrir hvern er jólagjöfin?“
er yfirskrift SAFT, vakningarátaks
um samfélag, fjölskyldu og tækni.
SAFT vekur foreldra til athygli á
aldurs- og efnismerkingum tölvu-
leikja og kvikmynda nú fyrir jólin.
Guðberg Jónsson, verkefnastjóri
SAFT, segir mikilvægt að foreldrar
þekki merkingarnar og að umræð-
unni um aldursmörk á tölvuleikjum
og kvikmyndum sé haldið lifandi.
„Það er til dæmis algengur mis-
skilningur að sé tölvuleikur
merktur plús þrír sé hann fyrir
þriggja ára börn en það þýðir í raun
að búast megi við börn að yngri en
þriggja ára skilji ekki leikinn. Hann
getur því allt eins hæft
fullorðnum.“
PEGI-myndmerkingar eru evr-
ópskt flokkunarkerfi sem tekið
hefur við af merkingum kvik-
myndaeftirlitsins. Kerfinu er ætlað
að tryggja að ólögráða börn fari
ekki í leiki og horfi ekki á kvik-
myndir sem ekki hæfa þeirra
aldurshópi.
Á síðustu árum hefur aldur
þeirra sem spila tölvuleiki hækkað
og er meðalaldur þeirra er nú rúm-
lega 23 ár. Framleiðendur hafa
brugðist við með því að búa til leiki
fyrir þennan aldurshóp en margir
þeirra eru aðeins fyrir fólk eldra
en 18 ára.
Þróun leikja fyrir eldri notendur
hefur enn ekki vakið athygli allra
foreldra og telja margir að leikirn-
ir séu gerðir fyrir ung börn og eru
ekki meðvitaðir um þessa breyt-
ingu þegar keyptir eru tölvuleikir.
Samkvæmt könnun SAFT eyða
börn meiri tíma í tölvuleiki en
áður. Árið 2003 eyddu þau 0,4
klukkustundum á dag en nú 1,6
klukkustundum. Aðeins fjögur
prósent barna spila aldrei tölvu-
leiki.
Kerfið nýtur stuðnings leikja-
framleiðenda á borð við PlayStat-
ion, Xbox og Nintendo, en á síðasta
ári bættust kvikmyndir og tölvu-
leikir á netinu við.
Framleiðendur tölvuleikja og
dreifingaraðilar koma sér saman
um hver aldursvísirinn er. Þeir
setja hann frekar hærra en lægra,
því neytandi getur kært merking-
una til samevrópskrar nefndar og
sé niðurstaðan sú að merkingin sé
röng þarf að innkalla vöruna og
merkja hana upp á nýtt. Því er
minni áhætta falin í því að hækka
aldursvísinn en að setja of lágan
vísi.
Kerfið nýtur stuðnings fram-
kvæmdastjórnar Evrópubanda-
lagsins og er það talið vera fyrir-
mynd að samhæfingu á sviði
barnaverndar í Evrópu. Merking-
arnar er að finna á hulstrum leikja
og myndbanda, en einnig er hægt
að fletta leikjum upp á heimasíðu
PEGI, www.pegi.info/is.
eva@frettabladid.is
Margir leikir ekki fyrir börn
Mikilvægt er að foreldrar þekki myndmerkingar tölvuleikja og kvikmynda. Meðalaldur þeirra sem spila tölvu-
leiki er 23 ár og hafa framleiðendur brugðist við því með framleiðslu tölvuleikja sem ekki eru við hæfi barna.
PEGI-MERKINGAR
Myndmerkingarnar sýna aldurstakmark,
hvort ofbeldi er í leiknum, ljótt orð-
bragð, hvort leikurinn getur hrætt ung
börn og hvort í honum er kynlíf, eiturlyf
eða mismunun.
SVANUR UM BORÐ Í SVANI Svarti
svanurinn Pedra varð ástfanginn af
hvítum svani í dýragarðinum í Münster
í Þýskalandi vorið 2006 og hefur ekki
vikið frá hlið hans síðan. Hvíti svanur-
inn er raunar hjólabátur og fær svarti
svanurinn hér far með elskunni sinni
ásamt dýragarðsstjóranum Jörg Adler.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Mikilvægt skref til
markvissari og öflugri löggæslu í
landinu var stigið þegar samningar
um árangursstjórnun voru undirrit-
aðir nýverið af ríkislögreglustjóra
og lögreglustjórum einstakra lög-
regluumdæma.
Samningar lögregluembættanna
fimmtán eru mismunandi og taka
mið af stöðumati hvers embættis
fyrir sig þar sem gerð var ítarleg
greining á starfsemi lögregluemb-
ættanna. Árangursstjórnunarsamn-
ingarnir taka mið af áherslum
dóms- og kirkjumálaráðherra er
fram koma í löggæsluáætlun 2007-
2011.
Með árangursstjórnunarsamn-
ingunum verða löggæslustörf
markvissari, árangur af þeim mæl-
anlegur og ríkislögreglustjóra falin
aukin viðfangsefni á sviði stjórn-
sýslu. Lögregluembættin munu
skila fjögurra ára framtíðaráætlun
til ríkislögreglustjóra fyrir árslok
2007. Þá mun ríkislögreglustjóri
leiðbeina embættunum og taka
afstöðu til markmiða, mælikvarða
og forgangsröðunar verkefna sem
fram koma í langtímaáætlun hvers
lögregluembættis.
Árlega munu ríkislögreglustjóri
og einstakir lögreglustjórar taka
sameiginlega afstöðu til árangurs
af starfsemi lögregluembættisins.
- jss
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Haraldur Johann-
essen undirritaði samninga við hvert
lögregluembætti fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Samningar ríkislögreglustjóra og lögregluembættanna um árangursstjórnun:
Markvissari löggæsla í landinu
ORKA Orkuveita Reykjavíkur var
rekin með 6,4 milljarða hagnaði
fyrstu níu mánuði ársins.
Á sama tíma í fyrra var 1,2
milljarða taprekstur á fyrirtæk-
inu. Þá voru tekjur fyrirtækisins
minni en í ár, eða 12,3 milljarðar.
Þær voru 15,4 milljarðar fyrstu
níu mánuði 2007.
En fyrirtækið er jafnframt
skuldsettara en í fyrra. Erlendar
skuldir nema nú 86,4 milljörðum í
stað 70 milljarða um áramót.
Langtímaskuldirnar eru að
mestu í erlendum gjaldmiðli.
Gengishagnaður Orkuveitu nam
5,2 milljörðum á tímabilinu.
- kóþ
Hagnaður Orkuveitunnar:
6,4 milljarðar
síðan í janúar
Fallið frá málssókn
Pólskir saksóknarar upplýstu í gær að
þeir hefðu fallið frá málssókn á hend-
ur þýska dagblaðinu Die Tageszeitung
(taz), en þeir fengu í júlí 2006 til
rannsóknar hvort blaðið hefði gerst
sekt um saknæma árás á mannorð
pólska forsetans Lech Kaczynski með
háðsádeilugrein þar sem honum var
líkt við kartöflu.
PÓLLAND-ÞÝSKALAND
LEIKIR VIÐ HÆFI Mynddiskar og tölvuleikir eru merktir með aldurstakmarki og efnisvísi PEGI-
flokkunarkerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
VINSÆLIR
LEIKIR
World of Warcraft
Gears of War
Crysis
Guitar Hero III
God of War
Crash of the Titans
Mario Party 8
Ratatouille
Golden Compass
Transformers
Ratchet and Clank
UMHVERFISMÁL Stjórn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur skorar
á Umhverfisstofnun að hefja
strax úttekt á öryggismálum
við sundlaugar um allt land.
Klórmengunin í Varmá í
Hveragerði sé ekki fyrsta
tjónið sem verði í veiðiá vegna
klórleka frá sundlaug. Meng-
unin sé mikið áfall fyrir
bæjar félagið, veiðifélagið og
SVFR sem leigutaka árinnar.
„Þessir aðilar verða af
miklum tekjum þar sem allar
horfur eru á að ekki verði
hægt að veiða í ánni í ótiltek-
inn tíma,“ segir stjórn SVFR
og bendir á að Varmá sé
einstakt veiðisvæði því þar séu
allar ferskvatnstegundir fiska
sem séu í veiðiám á Íslandi.
- gar
Stangveiðimenn:
Vilja rannsaka klór við veiðiár
LAUGASKARÐ Nánast allt kvikt drapst í Varmá neðan sundlaugarinnar.
MYND/EGILL BJARNASON
LAUGARDAGUR 8. DES KL. 13
TKTK: GÍTARTÓNLEIKAR
JÓN GUÐMUNDSSON
Miðaverð 1500/500 kr.
SUNNUDAGUR 9. DES KL. 20
Ó Ó INGIBJÖRG – ÚTGÁFUT.
ÓSKAR, ÓMAR OG INGIBJÖRG
GUÐJÓNSBÖRN
Miðaverð 2000/1600 kr.
LAUGARDAGUR 12. JAN KL. 17
TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR
HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT
SIGURÐAR INGVA SNORRASONAR.
AÐEINS NOKKUR SÆTI LAUS
Miðaverð 2000/1600 kr.
GEFÐU UPPLIFUN !
NÝ OG FALLEG GJAFAKORT
OG MARGIR FRÁBÆRIR
TÓNLEIKAR Í BOÐI !