Fréttablaðið - 08.12.2007, Síða 16
8. desember 2007 LAUGARDAGUR
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 419
6.433 +0,18% Velta: 7.187 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,10 +1,00% ... Bakkavör
58,70 +0,51% ... Eimskipafélagið 36,40 +0,28% ... Exista 22,50
+0,22% ... FL Group 15,60 -0,32% ... Glitnir 23,00 +0,44% ... Ice-
landair 27,50 +0,00% ... Kaupþing 867,00 +1,79% ... Landsbankinn
35,70 +0,85% ... Straumur-Burðarás 15,55 -0,64% ... Össur 98,00
-1,21% ... Teymi 5,95 +0,85%
MESTA HÆKKUN
KAUPÞING 1,76%
MAREL 1,13%
ATORKA 1,00%
MESTA LÆKKUN
365 2,51%
SPRON 2,22%
EIK BANKI 1,85%
Umsjón: nánar á visir.is
Væntingar um mikla arðgreiðslu hjá Sampo í vor eða
útspil sem breytir norrænum bankamarkaði kunna
að vera á veikum grunni byggðar. Þetta segir í nýrri
greiningu SEB Enskilda bankans á sænska trygg-
ingafélaginu. Exista á fimmtungshlut í Sampo.
Enskilda mælir með kaupum í félaginu og segir
markgengi bréfa þess vera 23,5 evrur á hlut, en það
hefur verið rétt undir tuttugu evrum.
„Fundur okkar með stjórnendum Sampo bendir til
að rekstur sé í góðum gangi hjá félagsinu, en vænt-
ingar um „stórahvell“ í kynningu fyrir fjórða árs-
fjórðung kunni að vera úr lausu lofti gripnar,“ segir
Mika Koskinen, sérfræðingur Enskilda, í greining-
unni. Félagið er ekki sagt munu herða á í áætlunum
um að kaupa til baka eigin bréf, nú þegar Exista er
talið ólíklegt til að auka enn við hlut sinn. „Jafnvel
þótt Exista gæti hugsanlega orðið stórt á söluhlið-
inni,“ er bætt við. Sampo er enn fremur talið munu
fara sér hægt í að auka hlut sinn í Nordea, stærsta
banka Norðurlanda, þar sem félagið á þegar 7,9
prósenta hlut. - óká
Stórihvellur ólíklegur
Úrvalsvísitalan hækkaði í
fyrsta sinn í gær eftir af-
leita viku. Fjárfestar vest-
anhafs bundu miklar vonir
við aðgerðir ríkisstjórnar
Bush, sem vonast var til að
gæti greitt úr vanda tekju-
lágra fasteignaeigenda.
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
hækkaði um 0,81 prósent í gær.
Þetta var fyrsta hækkunin eftir
viðvarandi lækkun síðastliðna
fjóra daga á undan. Mest var
hækkunin á gengi bréfa í Kaup-
þingi, 1,76 prósent.
Gengi banka og fjárfestingar-
fyrirtækja í Kauphöllinni lækkaði
talsvert í vikunni, mest í FL Group,
en viðskipti voru stöðvuð með
bréf í félaginu á þriðjudag vegna
yfirvofandi forstjóraskipta. Þegar
viðskipti hófust aftur með þau á
miðvikudag féll gengið um rúm
átján prósent í fyrstu viðskiptum.
Fjöldi fjármálafyrirtækja féll á
sama tíma og dró Úrvalsvísitöluna
niður um 6,6 prósent. Þetta var
langversta byrjunin í Kauphöll-
inni frá upphafi og þurrkaði um
tíma alla hækkun hennar á árinu
út. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, sagði í samtali við
Fréttablaðið í vikunni að hluta -
bréfa markaðurinn einkenndist af
óvissu í kjölfar forstjóraskipta hjá
FL Group og menn væru að rýna í
stöðuna.
Stemningin var öllu betri á
erlendum hlutabréfamörkuðum,
ekki síst eftir að út spurðist að
bandarísk stjórnvöld væru með
aðgerð í undirbúningi sem koma
ætti þeim fasteignaeigendum til
bjargar sem lent hefðu í erfiðleik-
um með greiðslur af lánum sínum,
auk þess sem vonast er til að lækk-
un á bandarískum fasteignamark-
aði snúist við. Vanskil lánanna eru
einmitt rót lausafjárkreppunnar
sem höggvið hefur skarð í afkomu
fjármálafyrirtækja víða um heim.
Tillögurnar sem kynntar voru á
fimmtudag ollu hins vegar von-
brigðum enda beindust þær ekki
að svokölluðum undirmálslánum
eins og vonast var til heldur að
þeim sem tekið höfðu ný lán.
Vaxtagreiðslur þeirra verða
frystar til fimm ára hið mesta.
Lánafyrirtækjum verður á móti í
sjálfsvald sett hvort þau létti
vaxtabyrðina á herðum viðskipta-
vina sinna.
Fréttaveita Bloomberg hefur
eftir fjármálasérfræðingum að til-
lögurnar séu vonbrigði enda hafi
stjórnvöld gripið of seint í taum-
ana auk þess sem óvíst sé hvort
aðgerðirnar skili þeim ávinningi
sem eftir var sóst. jonab@frettabladid.is
TILLÖGURNAR KYNNTAR Í HVÍTA HÚSINU Vonbrigði voru með tillögurnar sem þeir
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Henry Paulson fjármálaráðherra kynntu á
fimmtudag og létta eiga undir með fasteignaeigendum vestanhafs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fyrsta hækkun vik-
unnar í Kauphöllinni
ÞRÓUN HELSTU MARKAÐA
30. nóvember til 7. desember 2007
OMX Copenhagen 20 +0,5%
OMX Helsinki 25 +0,2%
OMX Iceland 15 -8,6%
OMX Stockholm 30 -0,1%
FTSE100 +1,9%
Nasdaq* +1,6%
Dow Jones* +2,3%
Nikkei 225 +1,8%
*Fyrir lokun markaða
www.skjaldborg.is
Kjúklingaréttir
Nýstárlegt og frábært
uppsláttarverk fyrir alla
sem fást við matargerð,
frá byrjanda til meist-
ara. Sex efnisflokkar,
frá einföldum for-
réttum og súpum að
spennandi grillréttum og
framandlegum, sterkkrydduðum og
bragðmiklum réttum. Uppskriftirnar eru mjög
aðgengilegar og fjöldi glæsilegra leiðbeiningamynda
sýna lykilþætti í hverri uppskrift.
Ómissandi
í eldhúsið
Fróðleikur fyrir
lestrarhesta
Risaeðlur
Þetta er án efa ein
allra glæsilegasta
bók um risaeðlur
sem út hefur komið.
Frábærar flettiglærur
og gagnvirkur
geisladiskur skila
lesendum inn í heim
furðulegustu dýra sem gengið hafa hér á jörð.
Sótt á brattann
Um ævistarf þessa fjölhæfa
frumkvöðuls má segja að hug
hans og höndum hafi verið
fátt ofviða sem hann fékk
áhuga á. Ekki var þó mulið
undir hann í bernsku og
ungur maður fékk hann
berklaveiki og glímdi lengi
við hana.
Í bók sinni segir Ævar frá lífshlaupi sínu og viðfangsefnum
svo að unun er að lesa. Ævar er löngu þjóðkunnur maður en
lúpínuseyði hans hefur hjálpað fjölda manns til heilsu.
Af lífshlaupi
frumkvöðuls
Alþjóðlegur
metsöluhöfundur
Bláklæddu
stúlkurnar tvær
Tvíburunum Kathy og Kelly,
er rænt á þriggja ára
afmælisdeginum þeirra og
foreldrar þeirra krafin um
átta milljón dala lausnargjald.
Orðið er við öllum skilmálum ræningjans en samt finnst
aðeins Kelly og talið líklegt að Kathy hafi verið myrt. Meðan
netið þrengist um ræningjann hangir líf Kathyar á bláþræði.
Um allan heim bíða lesendur í ofvæni eftir hverri nýrri bók
metsöluhöfundarins Mary Higgins Clark. Sem fyrr fer þessi
vinsæli höfundur á kostum og má fullyrða að nýja bókin
hennar Bláklæddu stúlkurnar tvær gefur fyrri bókum
hennar ekkert eftir.