Fréttablaðið - 08.12.2007, Qupperneq 36
36 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
FEÐGAR RÆÐA MÁLIN Þeir Kristján Jónsson
og Jón Ólafsson segja aðra vatnsframleið-
endur hafa gert þau mistök að ætla að höfða
fyrst til fjöldans. Kristján segir þá sem fyrstir
voru í útflutningi á vatni hafa verið nokkrum
árum of snemma á ferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þ
eir eru annasamir dagarnir hjá
Jóni Ólafssyni, fyrrum stjórnar-
formanni Norðurljósa og Skífu-
kóngi. Hann drekkur te og talar
hratt þegar hann sest loks niður
hjá okkur Kristjáni, syni hans, í afdrepi á
áttundu hæðinni á Hilton Nordica. Hann
hefur í nógu að snúast í tengslum við vatns-
útflutning þeirra feðga undir merkjum Ice-
landic Glacial beggja vegna Atlantsála. Erf-
itt er að bóka hann í viðtal. Ýmist er Jón
ekki á landinu eða með of þétta dagskrá til
að koma því fyrir. Við höfðum upphaflega
tvo tíma. Vegna tafa styttust þeir í einn.
Á meðan við Kristján biðum eftir föður
hans, fyrrum stjórnarformanns afþreying-
arrisans Norðurljósa, segir hann frá því að
vatnsframleiðslan hafi byrjað sem óheppni,
næstum fyrir mistök. Hann var upphaflega
miðlari, hafði keypt gjaldþrota vatnsfram-
leiðslu með húsi og lóð í Ölfusinu fyrir Sádi-
Araba árið 2003. Fyrr en varði voru við-
skiptin fyrir bí. Ekkert bólaði á greiðslunni
og sat Kristján því uppi með óstarfhæft fyr-
irtæki fyrir austan fjall. Hann settist upp úr
því niður með föður sínum og saman rýndu
þeir í möguleikana sem fólust í verkefninu.
Eins og svo oft áður sá Jón fljótlega allt það
sem framtíðin hafði upp á að bjóða í
nágrenni Þorlákshafnar og saman stofnuðu
þeir fyrirtækið Icelandic Water Holdings
utan um starfsemina.
Seldi eignir sínar
Jón Ólafsson bjó á þessum tíma í Lundún-
um, nýverið alfarinn af landi brott eftir að
hópur fjárfesta undir forystu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, þáverandi forstjóra Baugs,
og Kaupþings-Búnaðarbanka, keyptu allar
eignir hans hér á landi, meira að segja ein-
býlishúsið í Stigahlíðinni. Stærsta eignin lá
í fjölmiðlasamsteypunni Norðurljósum sem
hélt utan um Stöð 2, Bylgjuna og fleiri
útvarpsstöðvar. Þá skiptu sömuleiðis um
hendur aðrar fasteignir Jóns og lóðir á
Arnarneslandi sem hann hafði fjárfest í
nokkru áður. Inni í kaupunum var sjálf
Skífan, sem líta má á sem eitt af börnum
athafnamannsins.
Vart þarf að minnast á að Jón hefur um
árabil verið umdeildur. Ekki aðeins á hinum
eldheita stóli stjórnarformanns Norður-
ljósa heldur í hverju því sem hann tók sér
fyrir hendur. Ekki bættu ýmis ummæli orð-
stír hans. Sum hver féllu á opinberum vett-
vangi í hitaumræðu ráða- og menntamanna
og fékk Jón þeim hnekkt, oftar en ekki fyrir
dómstólum. Slíkt tók á, bæði á budduna og
þolinmæðina. Mál Jóns gegn Hannesi Hólm-
steini Gissurarsyni, prófessor í stjórnmála-
fræðum, velkist enn um í dómskerfinu
vegna tæknilegs galla. En brátt sér fyrir
endann á málinu, sem hefur verið báðum
aðilum kostnaðarsamt. Það er háð í Bret-
landi hvar Jón hefur verið búsettur frá
árinu 1998.
Jón sagði í samtöl-
um við fjölmiðla á
þessum tíma nafna
sinn, Jón Ásgeir,
höfðingja í viðskipt-
unum og hafi Jón
sjálfur fengið það
sem honum bar.
Tilviljun ræður því
að á sama tíma og
samtalið á sér stað,
rétt rúmum fjórum
árum síðar, situr
þessi höfðingi, nú
starfandi stjórnar-
formaður Baugs, sex
hæðum neðar á þessu
sama hóteli. Tilefnið;
róteringar innan FL
Group og tug millj-
arða sala á fasteign-
um Landic Group,
áður Stoða, í skiptum
fyrir næstum 70 pró-
sent hlutafjár í fjár-
festingafélaginu.
Hannes Smárason
stiginn úr stólnum og
enn einn Jón-inn
kominn inn.
En saknar Jón
Ólafsson þessa tíma í
stjórnarformanns-
stólnum, einhver eftirsjá, þörf til að líta til
baka? „Nei,“ svarar hann afdráttarlaust.
„Það er enginn hagnaður í fortíðinni. Hann
er allur í framtíðinni. Ég hef gert margt
skemmtilegt um ævina og það er mikil gleði
í þessu starfi. Fátt annað veitir mér jafn
mikla lífsfyllingu og vatnið. Nema ég sakna
tónlistarinnar,“ segir hann en Skífan, sem
Jón setti á laggirnar, átti réttinn að einu
stærsta tónlistarsafni landsins.
Ég sakna tónlistarinnar
Jón Ólafsson, athafnamaður og fyrrum stjórnarformaður afþreyingarveldisins Norðurljósa, er
snúinn aftur. Hann sér lítinn hag í því að horfa til fortíðar, kýs fremur að horfa fram á veginn.
Hann segist sakna einskis fyrir utan tónlistina. Umhverfismál eru Jóni hjartans mál þessa dag-
ana en hann segir Jóni Aðalsteini Bergsveinssyni að Íslendingar þurfi lítið að leggja á sig til að
verða leiðandi á sviði umhverfismála í samfélagi þjóðanna.
Jón Ólafsson tók þá ákvörðun síðla árs 2003 að selja hópi fjárfesta allar
eignir sínar hér á landi. Jón byggði upp umsvifamikinn tónlistarrekstur
með stofnun Skífunnar. Fyrir tilstuðlan hræringa innan útgáfugeirans
og aðrar róteringar var fyrirtækið komið með með útgáfuréttinn að
einhverju stærsta tónlistarsafni landsins. Undir Norðurljós, sem stofnað
var í kringum utanumhald Stöðvar 2 og tilheyrandi útvarpsstöðva voru
Regnboginn, Stjörnubíó, Smárabíó í Smárlind, upptökuverið Grjótnám-
an, Stúdíó Sýrland og fjöldi verslana Skífunnar. Er þá fátt eitt nefnt. Auk
þessa átti Jón sjálfur stóra hluti í Aðalverktökum en hafði áður verið í
Orca-hópnum svonefnda, sem festi sér ráðandi hlut í Íslandsbanka við
einkavæðingu hans, stóran hlut í Flugleiðum og lóðir í Garðabænum.
Fyrir söluna voru skuldir orðnar himinháar og stefndi allt í gjaldþrot
Norðurljósa. Í ofanálag sætti hann rannsókn skattayfirvalda vegna gruns
um vantalda skatta á árabilinu 1998 til 1999 og 2000 til 2003 upp á um
þrjá milljarða króna. Heldur grynnkaði á undanskotinu eftir því sem á
leið en ríkisskattstjóri komst að þeirri niðurstöðu síðla árs 2004 að Jón
þyrfti að greiða rúmar þrjú hundruð milljónir króna vegna endurálagn-
ingar skatta til viðbótar tæpum 97 milljónum sem hann hafði áður greitt.
Endurálagningin er vegna vanframtaldra tekna, eigna, hlunninda og
söluhagnaðar.
Þrátt fyrir þetta sat rannsóknin í Jóni: „Ég hef ekki orðið fyrir meira áfalli
í lífinu en þessari skattrannsókn,“ segir hann í ævisögu sinni, sem Einar
Kárason ritaði.
➜ SELDI ALLT SITT OG HVARF Á BRAUT
MÓGÚLLINN SELUR EIGUR SÍNAR Jón Ólafsson kom hingað til lands frá Bret-
landi um miðjan nóvember 2003 til þess að selja hópi fjárfesta eigur sínar.
Hann stoppaði stutt við, flaug aftur utan eftir undirritun samninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég hef
gert margt
skemmtilegt
um ævina
og það er
mikil gleði í
þessu starfi.
Fátt annað
veitir mér
jafn mikla
lífsfyllingu
og vatnið.
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU