Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 38

Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 38
38 8. desember 2007 LAUGARDAGUR Vatn í hæsta gæðaflokki En aftur að vatninu. Breska viðskiptablaðið Financial Times birti í enda síðasta mánað- ar langa grein og viðtal við Jón. Þar er ævi Jóns spunnin saman við endurkomu í við- skiptalífið og mikla útrás Icelandic Water Holdings. Afar sterkt er til orða tekið, sagt að fyrirtækið eigi sér vart hliðstæðu í þess- um geira. Þvílíkur er uppgangurinn. Jón er hæstánægður með umfjöllunina. Þeir feðgar segja að snemma í ferlinu hafi verið ákveðið að vatnið skyldi verða í hæsta gæðaflokki. „Það besta í heimi,“ líkt og Jón orðar það, og verðlagt eftir því. Jón segir línu sem þessa greina Icelandic Water Hold- ings frá öðrum íslenskum fyrirtækjum í vatnsútflutningi. „Hinir reyndu að ná til fjöldans. En þótt markaðurinn sé stór þá þarf að framleiða geysilegt magn af átöpp- uðum vatnsflöskum svo það takist,“ segir hann og bætir við að slík markaðssetning sé erfið. Það liggur beinna við að markaðssetja dýrari vöru en ódýra. „Þegar vara er fjölda- framleidd fyrir stóran markað þarf að selja mikið til að standa undir kostnaði,“ segir hann. Áætlanir annarra íslenskra vatns- útflytjenda hafi einmitt steytt á skeri af þessum sökum. „Það er vandasamt að gera þetta rétt,“ segir hann. Kristján tekur undir þetta. Segir það fjarri því auðvelt verk að markaðssetja nýja vöru á jafn erfiðum og stórum markaði og í Bandaríkjunum. „Í mínum huga vönduðum við mjög til verks frá öllum hliðum. Svo var tímasetningin rétt hjá okkur,“ segir hann og bendir á að fyrir aldarfjórðungi hafi ekkert vatn verið yfirhöfuð selt á flöskum vestan hafs. „Þeir sem voru í þessu fyrir áratug voru líka of snemma á ferðinni.“ Vatnið kynnt í Cannes Þegar þeir feðgar höfðu lagt línurnar, teikn- að upp fyrirtækið sem Kristján hafði í hönd- unum, hófu þeir mikla uppbyggingu og end- urbætur á vatnsframleiðslunni í Ölfusinu. Markið var sett hátt, aðstaðan fyrir austan gerð óaðfinnanleg með það fyrir augum að ná vatninu í þann gæðaflokk sem þeir vildu. Þá var breskt fyrirtæki fengið til að hanna flöskurnar. Flöskurnar eru einkar flottar, ferkantað- ar með þrívíðri mynd af Jökulsárlóni. Efsta lagið, rétt neðan við stútinn, minnir á jökul með djúpar sprungur en Kristján og sérleg- ur sérfræðingur í plasti, sem kallaður var til, eiga heiðurinn að honum. Jón bendir á að þeim feðgum hafi verið bent á að slík hönn- un væri klúður, flöskurnar myndu falla saman þegar þeim væri hlaðið mörgum upp í gáma til útflutnings. Sú varð ekki raunin. Enda hefur flaska Icelandic Glacial hlotið verðlaun fyrir meistaralega hönnun. Fyrstu verðlaunin féllu fyrirtækinu í skaut í harðri vatnskeppni í Dúbaí ári síðar og þar með birtust flöskurnar á radarnum. Varningurinn var tilbúinn tíu dögum fyrir kvikmyndahátíðina í Cannes í Frakklandi. Jón var öllum hnútum kunnugur eftir ára- tuga starf í afþreyingargeiranum og setti stefnuna þangað. Þar var markhópurinn. „Við vorum tilbúnir með allt og hugsuðum: „Hvað eigum við að gera?“ Við ætluðum beint á toppinn og fórum auðvitað til stjarn- anna,“ segir Jón, en eitt af þremur heimil- um hans er þar í borg. Hin í Reykjavík og Lundúnum. Að fengnu samþykki lögreglustjóra borg- arinnar útbjuggu feðgarnir hjólreiðavagn sem flutti farþega eftir lokaðri aðalgötu Cannes og fengu allir þeir sem þurftu á skutli að halda fyrstu tíu dagana gratís lind- arvatn úr Ölfusinu í flöskum. Þá vættu stjörnurnar þurrar kverkar með íslenska vatninu hvar sem þær stigu niður fæti meðan á hátíðinni stóð. Markaðssetningin tókst afar vel en helsti samkeppnisaðili Ice- landic Water Holdings í Frakklandi, þar- lendi vatnsrisinn Avian, sat eftir með sárt ennið. „Við stálum senunni í túnfætinum hjá þeim. Sagan segir að þeir hafi þurft að senda tvo gáma til baka sem þeir höfðu ráðgert að selja þarna,“ segir Jón og bendir á að mark- aðssetningin hafi vakið heilmikla lukku. Barið á dyr risans Eins og kunnugt er keypti bandaríski drykkjarvöruframleiðandinn Anhauser- Busch, sem þekktast er hér á landi fyrir bjórinn Budweiser, fimmtungshlut í fyrir- tæki þeirra Jóns og Kristjáns að undan- gengnu löngu og ströngu samningaferli. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp. En hluturinn felst í fjármögnun fyrirtækisins á nýrri og stærri átöppunarverksmiðju sem nú er verið að reisa í Ölfusinu og dreifingu á vatni Icelandic Glacial í Bandaríkjunum. Erfitt er að gera sér í hugarlund hversu stór samningurinn er í raun og veru og engin leið að draga virði hans upp úr þeim feðgum. Skiljanlega, fyrirtækið í einkaeigu að mestu og þeim frjálst að greina frá tölu- legum upplýsingum eða halda þeim út af fyrir sig. „Þetta eru „double digits“ í hverj- um mánuði,“ segir Kristján upp á ensku og bætir við að samstarfið sé svo nýtt af nál- inni að allar tölur eigi eftir að skýrast. Sölu- aukningin í hverjum mánuði nemur tveimur tölustöfum. Þó megi reikna með örum vexti á næstu mánuðum. „Við munum selja marg- falt á næsta ári miðað við síðasta ár,“ segir Jón. Svo lesendur geti glöggvað sig á umfangi Anhauser-Busch má geta þess að fyrirtækið hefur um helmingshlutdeild á bandarískum bjórmarkaði. Sem er geysimikið. Í dag starfa um þrjátíu manns hjá Ice- landic Water Holdings um heim allan en gert er ráð fyrir því að þeim fjölgi í sjötíu til áttatíu í ágúst á næsta ári. Þar af verður helmingurinn á Íslandi. Annasamt líf Kristján stýrir vatnssölunni í Bandaríkj- unum. Hann er búsettur í Los Angeles en Icelandic Water Holdings er með skrifstofu í kvikmyndaborginni Beverly Hills. Hann er fjarri Jóni föður sínum, sem búið hefur í Lundúnum í Bretlandi síðastliðin níu ár. Það er mikið að gera og þeir þurfa báðir að halda aftur af sér að svara ekki í símana. Á endan- um slökkva þeir á þeim eða setja á hljóð- laust. Eins og áður sagði býr Kristján í Banda- ríkjunum. Hann fór frá heimili sínu til fundarhalda og markaðssetningar í byrjun nóvember og stefndi að því að snúa aftur tveimur vikum síðar. En vindar breyttu för og heimferðin því ekki á dagskrá fyrr en um miðjan jólamánuðinn. Aðspurður hvort hann eigi fjölskyldu sem bíði eftir honum heima við segir hann ekki svo vera: „Þá væri ekki hægt að standa í þessu,“ segir hann. Ekki Bangkok norðursins Þeir Jón og Kristján taka undir gagnrýni Financial Times um íslenskar auglýsingar á erlendri grund þar sem gert hafi verið út á kynferði. „Kúnnahópur vatnsins er ekki að leita eftir kynferðislegri umfjöllun,“ bendir Kristján á. Faðir hans tekur í sama streng. „Við erum að kynna og selja Ísland,“ segir Jón. „Það er mjög vandasamt verk svo vel sé og lítið má út af bregða. Við stöndum ekki fyrir því að lyfta upp pilsfaldi og heilla hing- að fólk á þeim forsendum,“ bætir hann við og minnist þess að fyrir nokkru hafi Ísland verið kallað Bangkok norðursins. Hann hristir höfuðið: „Því hafna ég alfarið.“ Fyrirtæki þeirra feðga er tilbúið með aug- lýsingaherferð sem ýtt verður úr vör snemma á næsta ári. Í forgrunni eru þrjár stúlkur, þar á meðal Unnur Birna Vilhjálms- dóttir, fyrrum Ungfrú heimur. „Við stillum þeim upp eins og fjallkonunni, tignarlegar og elegant. Þær fá að njóta sín sem íslensk- ar stúlkur í náttúrufegurðinni en ekki sem kyntákn,“ segir Jón. Umhverfið hjartans mál Jón segir Icelandic Glacial hafa gengið langt í því augnamiði að tengja hreina ímynd landsins við vörumerki sitt. Í því felast skuldbindingar, nýr hugsunarháttur sem allir verða að undirgangast. „Við erum fyrsta drykkjarvörufyrirtækið sem hefur vottun fyrir því að vera kolefnis- jafnað. Með því höfum við riðið á vaðið með innleiðingu þessarar hugsunar,“ segir Jón og bendir á að öll vara Icelandic Water Hold- ings sé endurnýtanleg, allt frá flöskum til stærri kassa. Um vatnið þarf ekki að hafa mörg orð. Fleiri fyrirtæki í geiranum hafa tekið Icelandic Water Holdings til fyrir- myndar og gripið til svipaðra ráða. Hlutur feðganna felst í samstarfi við breska fyrirtækið Carbon Neutral sem fjár- festir í ýmsum verkefnum. Fyrirtækið tekur út alla starfsemi Icelandic Water Holdings einu sinni á ári og liggur öll vinnslan undir. Þar er sömuleiðis flutningur á flöskum fyr- irtækisins með skipum og bílum, meira að segja, og ferðir starfsmanna. Ferð þeirra Jóns og Kristjáns í viðtalið kallar á greina- gerð. Þeir greiða fyrir kolefnisnotkun í sam- ræmi við allt umfang sitt og stúss, allt frá fyrsta ári. Gjaldið er greitt á hverju ári. Síð- asta greiðsla var reyndar hærri en reikn- ingurinn kvað á um. „Við vildum eiga nóg inni. Þetta er sífellt verkefni sem við endur- skoðum á þriggja mánaða fresti til að bæta okkur,“ segir Jón og bendir á að Íslendingar gætu tekið hugsunarhátt sem þennan sér til fyrirmyndar. Hann eigi sér þann draum að ríkisstjórn Íslands ákveði að landið verði leiðandi í grænu samfélagi þjóðanna. Hing- að mætti jafnvel bjóða fyrirtækjum og veita skattaívilnanir fyrir græna og sjálfbæra hugsun. „Aðalatriðið er að fara alla leið,“ segir hann en Icelandic Water Holdings hlaut í september verðlaun fyrir umhverfis- stefnu sína. Greinilegt er að umhverfismálin liggja nálægt hjarta Jóns. Aðspurður hvort þetta sé ný hugsun, nýr Jón, segir hann: „Ég held að ég hafi bara alltaf verið svona síðan ég var í sveit. Ef ég sá tóma flösku í grasi í hestaferð þá tók ég hana með mér,“ segir hann. Þá er tíminn úti og Jón á hraðferð. Ætlar til fundar við ferðalanga er skipuðu hljóm- sveitina Björgvin Halldórsson Ensamble, sem Sovétmenn buðu í sex vikna sögulegan en erfiðan túr árið 1982. Bandið það fyrsta frá Vesturlöndum sem þangað kom. Með í för var Arnaldur Indriðason, nú rithöfundur en þá rétt yfir tvítugu, sem fenginn hafði verið til að rita ferðasöguna. „Þetta var fyrsta sagan hans,“ segir Jón og hlær. Þetta er 25 ára afmælið og fundarstaðurinn Óðinsvé hjá Sigga Hall. Þrátt fyrir góðan hug og stóra drauma tókst Jóni ekki að leggja óplægðan austantjaldsakurinn að fótum sér með stórband Björgvins Hall- dórssonar á þeim tíma. Aðstæður sáu til þess. En nú er Jón kominn á nýjan vettvang með vatnið á lofti og nýja sýn. STOLTUR MEÐ SKÓFLUNA Fyrsta skóflustungan að nýrri verksmiðju Icelandic Glacial var tekin í ágúst. Fyrir- hugað er að framleiðsla hefjist seint í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/SUNNLENSKA FRÉTTABLAÐIÐ VATNIÐ KYNNT Í CANNES Fyrirtæki þeirra Jóns og Kristjáns beitti óvenjulegum aðferðum við markaðssetn- ingu á fyrstu vatnsflöskum fyrirtækisins á kvikmyndahátíðinni í Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR LOGI VIGNISSON „Við erum fyrsta drykkjarvörufyrirtækið sem hefur vottun fyrir því að vera kolefnisjafnað. Með því höfum við riðið á vaðið með innleið- ingu þessarar hugsunar. FRAMHALD AF SÍÐUSTU OPNU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.