Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 44
44 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
Ég sá fyrir mér að þær kæmu bara og árituðu þetta
og búið en Einar segir bara: Nei, nei, nei, þetta verð-
ur sko forsíðufrétt! Á Mogganum! „Nylon áritar
mörg hundruð bækur“.
Þær verða á baksíðu!
Útgefandinn, Kristján B. Jónasson
Hann er einn besti
drengur sem ég hef
hitt, mjög vafninga-
laus í samskiptum og
mjög einfalt að eiga
við hann. Ég vann með
honum að útgáfu
Nylon-bókarinnar og
sjálfur hafði ég ágæta
reynslu af því að koma
bókum á framfæri og
plögga þeim í fjöl-
miðla, koma höfundum
í Kastljósið og svo
framvegis. Og það
gekk alltaf upp og
ofan. En ég man að
þegar bókin kom út
var maður algjörlega
gáttaður hversu langt
var hægt að ganga í að
koma þessari hljóm-
sveit og það sem hún
gerði á framfæri. Við
höfðum ákveðið að láta
hljómsveitarmeðlimi
árita bækur fyrir þá
meðlimi í bókarklúbbi
sem áttu að fá bókina.
Þetta voru um þrjú til
fjögurhundruð manns sem áttu að fá þessar bækur áritaðar. Ég sá
fyrir mér að þær kæmu bara og árituðu þetta og búið en Einar segir
bara: Nei, nei, nei, þetta verður sko forsíðufrétt! Á Mogganum!
„Nylon áritar mörg hundruð bækur“. Það kæmi ekki annað til
greina. Ég hélt auðvitað að þetta væri algjört rugl. Mogginn færi
ekkert að slá þessu upp á forsíðu. „Já, ef ekki forsíðan, þá baksíð-
an!“ segir Einar. Við áritunina er svo ljósmyndari mættur og jú, jú,
ég sá fyrir mér að mynd af þessu myndi birtast einhvern tímann í
næstu viku, inni í blaðinu við hliðina á tombólukrökkunum sem
safna fyrir Rauða krosinn. Svo hringir Einar þegar áritunin er búin
og segir mér að kíkja á Moggann í fyrramálið og það stóð heima.
Manni hafði ekki einu sinni dottið í hug að láta sig dreyma um þetta.
En þetta lýsir Einari mjög vel.
Einar Breik
Bróðirinn, Arngrímur Fannar Haralds-
son
Einar hefur alltaf reynst mér
góður bróður en það er fjögra ára
munur á okkur þannig að hann
var alltaf stóri bróðir fyrir mér.
Hann var mikill töffari þegar
hann var yngri og útlit hans og
klæðaburður var alltaf mín
fyrirmynd en hann var svolítið til
fara eins og George Michael. Og
þar sem stóri bróðir stofnaði
hljómsveit vildi ég líka stofna
hljómsveit. Um tíma gekk hann
undir nafninu Einar Breik á
Selfossi en þá gekk hann um í
kúkalabbabuxum og Millet-
dúnúlpu og kenndi breikdans í
Heilsusporti á Selfossi. Hann var
mjög ungur þegar hann var farinn
að kenna á breikdansnámskeiðum
og ef vel liggur á honum tekur
hann nokkur spor.
Það er svo eitt sem hefur ekki
komið fram og Einar hefur ekki
haft hátt um en hér áður var hann
einn efnilegasti borðtennisspilari
landsins og er eiginlega nýhættur
að spila borðtennis. Meira að
segja tekið þátt í Norðurlanda-
meistaramóti í borðtennis og þá í
tvíliðaleik með Vidda í Greifunum
en þeir hafa gjarnan verið teymi.
Síðan Einar hætti skíðaferlinum
um tólf ára gamall hefur hann
spilað borðtennis grimmt og hann
hætti ekki að æfa hann fyrr en
fyrir um tveimur árum. Ég veit að
hann er eitthvað reyndar að spila
úti í London og er með borð í
bílskúrnum. Ef ég er með
einhvern með mér getum við
kannski verið tveir á móti honum,
hann er svo ansi skotfastur.
200 manns urðu að 2000
Samstarfsfélaginn, Jakob Frímann Magnússon
Ég hef lesið Öll trixin í bókinni og þótt
mörg þeirra séu sannarlega færð til
bókar eru nokkur þeirra meira að segja
ennþá mér sjálfum hulin ráðgáta þótt
ég hafi verið vinur, samstarfsmaður og
sambýlingur Einars um árabil. Mér er
sérstaklega minnisstætt með hvaða
hætti hann leysti stórkostlegt vanda-
mál sem fólst í einu af hins fyrstu
tónleikaævintýrum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu þegar hann flutti inn hljóm-
sveitina Slade til landsins. Ég og ýmsir
aðrir höfðum talið það nokkuð örugga
viðskiptahugmynd en einhverra hluta
vegna náði þessi víðfræga hljómsveit,
þrátt fyrir miklar auglýsingar og
kynningarstarf, aðeins að selja
tvöhundruð miða. Á hádegi á sjálfum
tónleikadegi voru rétt um 200 miðar
seldir og það var áhyggjugretta á
annars brosmildu og pattaralegu andliti
Einars Bárðarsonar þennan dag. Hann
auðvitað hringdi og hringdi og reyndi
að fá fólk til að kaupa miða eða jafnvel
þiggja þá með afslætti. En ekkert gekk.
Mér rann blóðið til skyldunnar og
ákvað að mæta þarna svo það yrðu alla
vega 202 í salnum, ég tók konuna mína
með mér. En þegar ég mætti á staðinn
örfáum klukkutímum síðar þennan
sama dag, þá voru ekki tvöhundruð
manns í salnum heldur tvöþúsund
manns. Og ég þekki engan mann á
Íslandi eða annars staðar sem getur
breytt tvöhundruð manns í tvöþúsund
manns á einum eftirmiðdegi. Það trix
er örugglega ekki tilgreint í bókinni og
ég hef aldrei fengið það upp úr honum
hvernig hann fór eiginlega að þessu.
Þetta eru hreinir töfrar.
Kraftaverkakarlinn frá Selfossi
Umboðsmaður Íslands, Einar Bárðarson, hefur í gegnum tíðina staðið fyrir ótrúlegustu atburðum og komið fólki á framfæri
sem sjálft hefði aldrei látið sig dreyma um að verða stjörnur. Afrekaskráin er löng og margir velta því fyrir sér hvort Einar
hafi margar aukaklukkustundir í sólarhringnum sínum. Út er komin bókin Öll trixin í bókinni þar sem Einar fer í gegnum
hvað hann gerði og með hverjum. Júlía Margrét Alexandersdóttir heyrði í nokkrum af nánustu vinum og samstarfsmönnum
Einars sem hann segir meðal annars sögur af í bókinni og fékk þá til að segja sér sögur af Einari.