Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 45
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ JÓLIN KOMA O.FL.
Mini Cooper er snaggaralegur bíll, ekki síst með
blæju. Haraldur Guðmundsson, nemandi í Flug-
skólanum, ekur um á einum slíkum.
„Ég fékk dellu fyrir svona bíl þegar ég sá myndina
Italian Job,“ segir Haraldur um Mini Cooper
bílinn sem hann keyrir á. Segir slíkan bíl hafa
komið mikið við sögu í þeirri mynd og staðið sig
mjög vel. „Hann keyrði inn í hús og allan pakkann.
Þá hugsaði ég að einn svona yrði ég að fá. Ég gæti
lagt honum inni í herbergi,“ segir Haraldur
hlæjandi. Þvertekur samt fyrir allar slíkar
æfingar enn sem komið er.
Tekur líka fram að hann sé ekki löglegur eigandi
gripsins. „Pabbi er skráður fyrir honum en ég er
búinn að eigna mér hann nokkurn veginn,“ segir
hann grallaralegur.
Bíllinn er af árgerð 2005 og Haraldur segir hann
reynast mjög vel. „Þetta er fínn bíll, gott að keyra
hann. Svo eyðir hann mjög litlu. Ég hef ekki mælt
hversu litlu en veit bara að tankurinn dugar alveg
rosalega lengi. Maður er ekkert alltaf á bensín-
stöðvunum eins og á sumum bílum.“
Auk þess segir hann Cooperinn kraftmikinn.
„Hann er 115 hestöfl og léttur enda með blæju,“
útskýrir hann og bætir við að hann hafi ekki séð
aðra blæjubíla af þessari tegund hér á landi og
heldur ekki appelsínugula. Þeir geti þó leynst
einhvers staðar.
Haraldur er í Flugskólanum og segir það mjög
gaman. Þangað ekur hann á Coopernum og er
búinn að setja vetrardekk undir hann en hefur
ekki reynslu af honum í vetrarakstri því sjálfur
var hann í Bandaríkjunum í fyrravetur. „Þá var
litli bróðir minn á bílnum en var ekkert hrifinn af
honum enda er hann hausnum hærri en ég.
Hann þurfti hálfgert að troða sér inn í hann,“
segir Haraldur skellihlæjandi.
gun@frettabladid.is
Gæti lagt inni í herbergi
Haraldur sest glaðbeittur upp í Mini Cooperinn sem hann hefur eignað sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSLENSK HÖNNUN
Nokkrir ungir hönnuðir kynna
það nýjasta sem þeir eru að
gera í opnu húsi á Organ í
Hafnarstræti mánudagskvöld-
ið næsta.
TÍSKA 5
HARLEY DAVIDSON
Saga vinsælustu mótorhjóla
heims er rakin aftur til ársins
1901.
BÍLAR 3
Nýjir Suzuki Grand Vitara Luxury diesel
Á GÓÐU VERÐI
Eigum til nokkra nýja diesel bíla
með öllum aukabúnaði
til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur
s: 587-8888 og 860-1998
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
Arnar M
ár Ó
lafsson og Úlfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Fæst í helstu bókabúðum og víðar!
Verð kr. 3.490,- m/vsk