Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 46
[ ]Símahleðslutæki í bíla getur oft komið sér vel. Oftar en ekki er rafhlaðan í símanum við það að tæmast á ögurstund og getur það stundum bjargað málum að hafa hleðslutæki í bílnum.
Iceland Excursions Allrahanda
tekur í notkun nákvæmt eftir-
litskerfi með bílaflota sínum.
Ferðaþjónustufyrirtækið Iceland
Excursions Allrahanda hefur
nýlokið við að innleiða SAGA flota-
stýringarkerfi í allan bílaflota
sinn sem er um á fimmta tug bíla.
„Með kerfinu tryggjum við öryggi
og þægindi farþega okkar en það
gefur okkur kost á því að hafa
nákvæmt eftirlit með flotanum,“
segir Þórir Garðarsson, sölu- og
markaðsstjóri fyrirtækisins.
Kerfið virkar þannig að boxi með
sendi er komið fyrir í hverjum bíl.
Þannig er hægt að sjá hvar bílarn-
ir eru staddir og hversu hratt þeir
keyra. Kerfið segir einnig
nákvæmlega til um hámarkshraða
á hverjum stað. „Við vorum með
eldri útgáfu af kerfinu í mörg ár
og gaf það mjög góða raun. Nýja
kerfið býður þó upp á svokallaða
rauntímastaðsetningu og ekki þarf
að taka boxið úr bílunum til að
lesa af því. Í það eru auk þess sett-
ar formúlur varðandi góðakstur
sem er besti mögulegi akstur sem
viðskiptavinurinn getur fengið,“
segir Þórir. Hann segir kerfið
mæla of snögga hröðun, of mikla
hemlun og krappar beygjur.
„Þetta er nánast eins og svarti
kassinn í flugvélum nema kerfið
tekur ekki upp samtöl. Þegar við
innleiddum gamla kerfið kölluðu
menn það í gríni KGB þar sem
menn litu svo á að þeir væru undir
stöðugri smásjá. Í dag eru allir
mjög ánægðir með eftirlitið. Það
veitir bílstjórunum mikið aðhald
en er um leið besti vinur þeirra,“
segir Þórir. Hann segir kerfið hafa
hjálpað til við að leiðrétta menn í
akstrinum og að það hafi auk þess
dregið úr eldsneytiskostnaði. „Þá
getur kerfið staðfest hvort kvart-
anir viðskiptavina um seinkomur
eða aksturslag séu á rökum reist-
ar,“ segir hann og getur það komið
sér vel fyrir bílstjórana.
„ND á Íslandi framleiðir kerfið og
á það sér enga hliðstæðu í heimin-
um,“ segir Þórir. Það eru til kerfi
sem mæla hraða en ekkert sem
býður upp á jafn gott eftirlit með
góðakstri,“ segir Þórir. Hann segir
svipuð kerfi fáanleg í lausasölu og
hefur foreldrum verið ráðlagt að
setja það í bíla sína til að fylgjast
með akstri barna sem eru nýbúin
að taka bílpróf.
vera@frettabladid.is
Nákvæmt eftirlitskerfi
tryggir öryggi allra
Þórir Garðarsson, sölu- og markaðsstjóri Iceland Excursions Allrahanda, segir að kerfið veiti bílstjórum mikið aðhald en sé um
leið besti vinur þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þola -50 gráðu frost
HMK sleðaskórnir
Jólagjöf vélsleðamannsins
ICEHOBBY.IS
Draupnisgata 6 600 Akureyri sími 461-4848
Þola -50 gráðu frost
Hnoðuð lagkaka
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum
fyrir viðkiptavini okkar.
Auglýsingasími
– Mest lesið