Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 49
LAUGARDAGUR 8. desember 2007 5
Opið hús verður á skemmti-
staðnum Organ í Hafnar-
stræti mánudagskvöldið
næstkomandi milli 19 og 22
þar sem nokkrir ungir hönn-
uðir kynna það nýjasta sem
þeir eru að gera.
Á Organ verða til sýnis bæði föt
og fylgihlutir og geta áhugasam-
ir eignast vörurn-
ar. Auk þess verða
nýstárleg jólakort
eftir Hildi Björk
Yeoman á boðstól-
um. Hönnuðirnir
eru allir útskrif-
aðir úr Listahá-
skóla Íslands og
eiga það samm-
erkt að starfa við
sitt fag.
Bryndís Svein-
björnsdóttir er
einn hönnuðanna
og hannar hún
undir merkinu
Garmur. Hún er
með aðstöðu á
vinnustofu á
Seljavegi ásamt
13 öðrum hönnuð-
um. „Þarna er fólk
úr öllum áttum og
má nefna arki-
tekta, þrívíddar
hönnuði, grafíska
hönnuði og fata-
hönnuði. Þarna er
mjög góð aðstaða
og frábært að fá inn-
blástur frá fólki sem
er að gera mismun-
andi hluti,“ segir
Bryndís. Hún hefur
hingað til séð um að
sauma sína línu
sjálf en nú er svo
komið að hún
annar varla eftir-
spurn og nýtur því
aðstoðar sauma-
konu og klæð-
skera. „Framtíð-
arplanið er svo
að láta framleiða
línuna í útlöndum,“
segir Bryndís sem
er með ýmis spenn-
andi verkefni á
prjónunum.
vera@frettabladid.is
Kragi úr bómullarefni með
plíseruðum satínborðum
eftir Áróru Eir Traustadóttur
sem hannar undir merkinu
áRóRa.
Bryndís Sveinbjörns-
dóttir starfar í versl-
uninni Trilogiu og er
með vinnuaðstöðu
á Seljavegi ásamt 13
öðrum hönnuðum.
Helga Lilja
Magnúsdóttir
hannar undir
merkinu
Helicopter.
Þessi kjóll
tilheyrir
útskriftarlínu
hennar.
Grár kjóll úr bómullarblöndu eftir
Bryndísi Sveinbjörnsdóttir sem
hannar undir merkinu Garmur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
Ö
LU
N
D
U
R
Guðjón
Tryggvason
hannar
undir merk-
inu Go
with Jan
og er þessi
svart-hvíti
kjóll úr
bómullar-
jersey.
Hugvit og falleg hönnun
Helicopter-hálsmen úr bómullar-
efni með olíuprenti.
Viktor & Rolf og vorlínan
HOLLENSKU TÍSKUHÖNNUÐIRNIR VIKTOR OG ROLF ERU ÞEKKTIR FYRIR ÝKT
FORM OG HRESSILEGAN FATNAÐ OG ÞAÐ ER ALLTAF SPENNANDI AÐ SJÁ HVAÐ
ÞEIR BJÓÐA UPP Á NÆST.
Vorlínan þeirra fyrir 2008 sem sýnd var í París nú á dögunum, veldur ekki
vonbrigðum en þar kveður við örlítið annan tón þótt séreinkenni þeirra skíni
enn í gegn. Í línunni er að finna klæðilega stutta kjóla og pils, rómantík er í
efnisvali og perlur, pífur og einfaldir litir ráða ferðinni. Litirnir eru svart, hvítt
og bleikt og formin einföld og settleg. Demantsmunstraðir kjólar og rómant-
ískar svartar dragtir eru áberandi en helst má þekkja þá í stórum, efnismikl-
um krögum sem ramma inn andlitið annaðhvort í miklum fellingum eða
í formi fiðla í fullri stærð. Yfirbragð nýju línunnar er hljóðlátt og markaðs-
vænna en oft áður en þó skín skopskyn hönnuðanna í gegn. - rt
Efnismikill kragi með fiðlum í fullri
stærð er dæmigerður fyrir hönnun
Viktors og Rolfs.
Einfaldar og dömulegar dragtir í hefð-
bundum lit, kryddaðar með dúskum í
hálsmálinu.
undirfatnaður og náttfatnaður
í miklu úrvali
Gefðu
glæsilega gjöf
Olympía Mjódd Reykjavík Olympia Glerártorgi Akureyri olympia.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
3
3
5
Jaguar úrin fást hjá úrsmiðum