Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 52
● hús&heimili
S
íðustu mánuði, í önnum og of stuttum sólarhring, hefur heimilis-
hald hér um bil lotið sömu lögmálum og meðalgott greni á Rauð-
arárstíg. Metnaðurinn fyrir fallegu heimili hefur náð að inn-
stungunni, það er að segja, þegar allt var komið í óefni, voru
ljósin einfaldlega slökkt og kveikt á rauðum jólaseríum – í október.
Húsbóndann hef ég kallað Jóa og mig hefur hann kallað Guggu. Og við
Jói og Gugga höfum bara verið vel sátt við að sofna á Ritz-kexmylsnu
og henda einnota borðbúnaði í ruslið.
Nema hvað. Þar sem ég reyndi að skorða aðventukrans milli Nings-
boxa og dagblaðastafla varð mér ljóst að jólin voru að koma og parið
sem var búið að hafa það náðugt og flott þarna í
íbúðinni yrði að flytja út. Jóa var skipað að henda
KFC-fötunni í ruslið og henda í þvottavél og Gugga
skrúbbaði og henti sér þar næst í bakstur. Og brátt
var heimilið sem gegnt hafði hlutverki bælis síð-
ustu misserin orðið að aðventuvænum mannabú-
stað.
Lengi vel hélt ég að við Jói værum nær eina
parið í Reykjavík sem legðist í svona híði þar sem
ástandið á heimilinu verður þannig að maður verð-
ur að „þykjast vera ekki heima“ ef einhver kemur
óvænt í heimsókn. Ég hef án gríns – þegar ég bjó að
vísu neðar en á fjórðu hæð – þurft að fleygja mér
í gólfið og skríða eins og hermaður í runnagróðri
þegar dyrabjallan hringdi óvænt. En þetta virðist
gerast á bestu bæjum.
Vinafólk mitt trúði mér fyrir því um daginn (fyrirmyndar Saltfé-
lags-heimili) að þegar ástandið yrði verst tækju þau upp á því að þykj-
ast vera að „endurskipuleggja skápana“ ef einhvern bæri óvænt að
garði á róna-tímabilinu í heimilishaldinu. Atburðarásin er þá svona:
A) Dyrabjallan hringir. B) Hjónin opna alla skápa upp á gátt og
hrúga glösum og einhverjum dóti úr þeim á borð og gólf, setja á sig
opinmynnt framkvæmdabros. C) Opna dyrnar og hanga svo hálf inni í
skápunum, „leikandi tiltekt“ meðan gestir staldra við.
Best er þó auðvitað að þurfa ekki að standa í einhverjum yfirhylm-
ingum og taka sig taki. Ekki lýgur maður á aðventunni?
Jói og Gugga flytja út
„Maður á svo mikið af uppáhalds-
hlutum og því valdi ég þrjá. Fyrst
ber að nefna styttu af g-lykli sem
vinkona mín gerði fyrir mig og
afhenti mér eftir að ég var búin
að taka upp fyrsta lagið sem ég
samdi. Þar er grafin á litla plötu
áletrunin „Helga Möller – fyrsta
lagið“. Þetta var í tilefni þess að
ég tók þátt í söngkeppni á Sauð-
árkróki sem Kvenfélag Sauðár-
króks hefur alltaf haldið í kring-
um Sæluvikuna sem þar er. Ég
var valin besti flytjandinn í þess-
ari keppni með þetta lag,“ út-
skýrir Helga ánægð og eru fjög-
ur ár síðan þetta var. Helgu þykir
afskaplega vænt um gjöfina og
segist hafa nýtt sér gott ráð til
að minnast hennar. „Pabbi minn
kenndi mér gott ráð til að gleyma
ekki hlutum og einhverju sér-
stöku sem gerist í lífi manns. Ég
vélritaði söguna, setti hana í plast
og límdi undir styttuna þannig
að mínir ættingjar í framtíðinni
eiga eftir að geta lesið hvað þessi
hlutur fjallar um.“
Annar hluturinn er lítill stall-
ur sem á stendur „Helga Möll-
er – hola í höggi 14. október“ en
Helga segir þennan hlut vera sér
ofarlega í huga þar sem atvik-
ið átti sér stað í október á þessu
ári. „Á stallinum hvílir golfkúlan
sem ég sló í holu í höggi á Islantia
á Spáni.
Þetta var mín fyrsta hola í
höggi og mér er alveg sama þó
þetta verði sú eina þar sem þetta
var svo frábær upplifun og á
ég eftir að lifa á henni lengi,“
segir Helga glöð í bragði en
hún hefur mikinn áhuga á
golfi og hefur stundað það í
sjö ár. „Þetta var draumahring-
ur. Ég spilaði á 84 höggum og
fékk 39 punkta og þetta var á
móti þannig að þetta gat ekki
verið fullkomnara,“ segir
Helga dreymin og má svo
sannarlega segja að þetta
hafi verið hennar dagur.
Síðast en ekki síst er það
nýr geisladiskur sem Helga
gaf út nú fyrir jólin. „Þessi
jólaplata er nýjasta barn-
ið mitt og var þetta
erfið fæðing þar
sem það er búið að taka mig
ein tíu ár að koma henni á legg
síðan hugmyndin fæddist. Á plöt-
unni má finna klassíska slag-
ara eins og Aðfangadagskvöld
og Ég kemst í hátíðarskap. Svo
er þarna afskaplega fallegt lag
sem heitir Íslensku jólin með
texta eftir Ómar Ragnarsson
og er það í miklu uppáhaldi hjá
mér. Síðan er lag eftir Magnús
Kjartansson sem Pálmi Gunnars-
son söng og heitir Náin kynni og
finnst mér það eiginlega vera
orðið mitt lag þar sem ég
er búin að syngja það í svo
mörg ár og Pálmi á ekkert
í því lengur,“ segir Helga
kímin. Þetta er fyrsta sóló-
plata Helgu þótt ótrúlegt
megi virðast og syngur
dóttir hennar, Elísabet
Ormslev, bakradd-
ir á plötunni og
þykir Helgu mjög vænt um það.
„Platan er í augnablikinu upp-
seld hjá útgefanda og er ég nátt-
úrulega í skýjunum með það. Það
var í raun ágætt að ég gerði ekki
þessa plötu fyrr en nú svo dótt-
ir mín gæti sungið með mér. Hún
er fjórtán ára gömul og þrælefni-
leg, mikil tónlist í henni og hefur
gaman af þessu.
Hún er að læra í söngdeildinni
í FÍH og ég fékk hana með mér
í þetta skemmtilega verkefni,“
segir Helga sem er mikið jóla-
barn. „Jólin eru minn tími. Mér
líður mjög vel á þessum árstíma
og finnst rólegheitastemningin
afskaplega notaleg en ég er ekki
mikið fyrir ys og þys og að vera í
mikilli mannmergð.
Heldur vil ég vera heima,
kveikja á kertum og vera með
fólkinu mínu,“ segir Helga ein-
læg. - hs
Allt er þegar þrennt er
● Helga Möller fylltist valkvíða þegar kom að því að velja uppáhaldshlutinn og endaði á því
að nefna þrjá til sögunnar. Hlutirnir hafa allir tilfinningagildi og tákna merka áfanga í lífi
eigandans.
Helga á marga uppáhaldshluti en tókst á endanum að velja þrjá úr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● Forsíðumynd: Völundur Jónsson tók þessa mynd á
heimili Jóhanns Frímanns Traustasonar verslunarstjóra í
Mótor. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir
solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@fretta-
bladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517 5724
Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
HEIMILISHALD
JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR
Húsbóndann hef
ég kallað Jóa og
mig hefur hann
kallað Guggu.
Og við Jói og
Gugga höfum
bara verið vel
sátt við að sofna
á Ritz-kex-
mylsnu og henda
einnota borð-
búnaði í ruslið.
hönnun
● BORGARMYND Á HERÐATRÉ Þetta skemmtilega herðatré
kemur frá CityScape Coat Hangers og hægt er að
velja úr fimm gerðum. Hvert herðatré táknar
eina af fimm helstu tísku- og hönnunarborgum
heims og er hægt að velja úr London, Mílanó,
New York, París og Tókýó. Hægt er panta
herðatrén á vefsíðunni: http://www.
sixixis.com/product_16,CityS-
cape+Coat+Hangers.
-hs
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Vörn gegn brunaslysum • Tvöfalt brunaöryggi
Termix hitastýring fyrir setlaugar frá Danfoss
Rafeindastýring nemur hitastig í setlauginni
Lokar fyrir innrennsli þegar óskuðu hitastigi er náð
Ódýr og hagkvæm lausn
Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður
Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður
Auðveld í uppsetningu
•
•
•
•
•
• www.stillumhitann.is
8. DESEMBER 2007 LAUGARDAGUR2