Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 56
● hús&heimili
Jóhann er mörgum að góðu kunnur vegna verslunarinnar Mótor sem hann hefur rekið
ásamt bróður sínum Páli Traustasyni í fimmtán ár. Búðin var fyrst til húsa að
Laugavegi 39 en er nú í Kringlunni. „Það er erfitt að standa í búðarrekstri þar
sem það er mikil samkeppni en mér finnst það samt gaman. Það er alltaf eitthvað
nýtt og ég hef mikinn áhuga á tísku og hönnun,“ segir Jóhann sem hefur gaman
af að skreyta í kringum sig. „Ég hef mjög gaman af krúttlegum hlutum og svo
breyti ég mikið. Þá raða ég öðruvísi upp og skipti út hlutum. Mér finnst aðal-
atriðið að heimilið sé persónulegt en ekki eins og sýningargluggi í búð,“ segir
Jóhann ákveðinn.
Jóhann hefur búið í íbúð sinni í Skuggahverfinu í rúmt eitt og hálft ár og líkar
vel. „Ég hef ekki alltaf búið miðsvæðis en ég hef mikið verið í 101,“ segir
Jóhann og bætir við: „Þrátt fyrir að þetta sé miðsvæðis þá er mjög rólegt
hérna og ég finn aldrei fyrir neinum hávaða.“ Jóhann valdi sjálfur innrétt-
ingar, hurðir, flísar og gólfefni. „Ég reyndi að hafa grunninn einfaldan
og innréttingar og þess háttar er því frekar stílhreint en svo skreyti ég
með húsgögnum og aukahlutum. Vandamálið er kannski að ég er hrifinn
af ýmsum stíltegundum. Mér finnst allt gamalt fallegt en þó líka nýtt og
ég reyni að blanda þessu smekklega saman. Íbúðin er lítil og því þarf að
vanda sig við að raða inn í hana,“ útskýrir Jóhann sem hefur augljós-
lega næmt auga fyrir smáatriðum. Þrátt fyrir að Jóhann segist ekki
aðhyllast neinn stíl fram yfir annan þá er íbúðin að mörgu leyti í
art deco-stíl með stórum speglum, hyrndum formum, krómi og gleri,
glansandi efnum, mótífum úr náttúrunni eins og blómum og skeljum
og leikrænum andstæðum. Má þar nefna lakkaðan við og svart lakk
með háglans í bland við loðskinn, satín og kristalljósakrónur. Einn-
ig má finna skemmtilega smáhluti eins og bílamódel, Eiffelturn-
inn og frelsisstyttuna og ýmsa hluti sem minna á sjötta og sjö-
unda áratuginn. „Ég hef alltaf verið frekar mikill dótakarl og
haft gaman af ýmsum smáhlutum. Fyrir nokkrum árum var svo
lítið til á Íslandi en ég ferðast mikið og hef því keypt mikið af
þessu úti,“ segir Jóhann kíminn. -hs
Bústaður í
bláum skugga
● Í Skuggahverfinu er lítil og notaleg íbúð sem er mikil andstæða við
drungalegt nafn hverfisins. Þar hefur Jóhann Frímann Traustason verslunar-
eigandi komið sér vel fyrir með einstaka muni sína.
Þessir voldugu amerísku lampar
voru keyptir í Marco sem heitir nú
Lystadún Marco. Myndirnar eru af
fjölskyldu Jóhanns og má þar meðal
annars finna myndir af dóttur hans,
honum sjálfum og fermingarmynd
af móður hans. Það má því segja að
þarna sé fjölskyldualtarið.
Jólatréð í stofu
stendur. Jóhann hefur
nú þegar skreytt jólatréð
til að nýta tímann en hann
er önnum kafinn í verslun
sinni fyrir jólin. Í fyrra skreytti
hann tréð í svarthvítum stíl en
fékk fljótt leiða á því og skipti nú
yfir í hefðbundnari skreytingar.
Hann minntist á að tréð væri fremur
amerískt nú enda er ekki laust við að
skreytingarnar minni á bandaríska
fánann.
Jóhann lætur fara vel um sig í bláum hægindastól upp við bláan vegg en liturinn er
í miklu uppáhaldi. Í baksýn er listaverk eftir Jón Magnússon. Lampinn var keyptur í
London.
Yfir stofunni svífur óneitanlega art deco-stemning en þar má finna rúmfræðileg form í sófum, lömpum,
speglum og málverkinu lengst til hægri auk þess sem speglarnir, svartur lakkaður skápurinn, blómin,
glerborðið, silfruðu púðarnir og aukahlutirnir ásamt loðskinninu á gólfinu tóna við umræddan stíl.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Í eldhúsinu svífur andi sjötta og sjöunda áratugarins
yfir vötnum þó svo innréttingin sé nýtískuleg.
Á baðherberginu er svart, hvítt og silfur ráðandi og
kennir þar ýmissa grasa í smekklegum smámunum.
8. DESEMBER 2007 LAUGARDAGUR6