Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 74
58 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
A
lþingismönnum finnst
gaman að tala og
hlátrasköll og mál-
rómur þeirra og ann-
arra starfsmanna
Alþingis liggur í bak-
grunni þessa viðtals, sem var tekið
undir jólatrénu í Alþingishúsinu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir er tíma-
bundin, eins og ráðherra er von og
vísa. Við spjöllum þó dágóða stund
meðan úti snjóar.
Ef þú lítur yfir feril þinn sem ráð-
herra og velur eitt verk sem þú ert
stoltust af, hvert væri það?
„Þetta hálfa ár var nú fljótt að
líða! En ég myndi þá nefna umhverf-
isþing sem við héldum í október.
Það var stærsta umhverfisþing
sem haldið hefur verið á Íslandi;
um 300 manns mættu. Þar fann ég
fyrir þeim meðbyr og grundvallar-
breytingu sem hefur orðið í afstöðu
fólks til umhverfismála. Ekki bara
hjá almenningi heldur hjá stjórn-
málamönnum líka. Það er afar
ánægjulegt að fá að starfa við þær
aðstæður.“
En hvað hefði mátt fara betur á
þessum tíma?
„Það situr eftir í mér að það þarf
alltaf að hafa vakandi auga á öllum
hliðum mála og gæta að lausum
endum. Þessi mál liggja svo víða í
stjórnkerfinu. Ég legg mikla
áherslu á samvinnu við önnur ráðu-
neyti, sveitarfélög og félagasam-
tök. Ef það má draga einhvern lær-
dóm af þessum sex mánuðum er
það að gera enn betur í því.“
Er yngsta ráðuneytið enn neðst í
goggunarröðinni?
„Hafi svo verið, finnst mér það
hafa breyst. Við stjórnarskiptin í
vor lögðum við í Samfylkingunni til
okkar umhverfisstefnu og hún er
grundvallarmál í stjórnarsamstarf-
inu. Mitt verkefni er að fylgja henni
fast eftir og ég hef til þess fullan
stuðning í stjórninni. Ég gagnrýndi
áður að umhverfisráðuneytið hefði
ekki nægilegt vægi og lít á það sem
mitt verkefni að auka þetta vægi.
Umhverfismál ganga þvert á alla
málaflokka og það segir sitt um
mikilvægi þeirra.“
Mörg sjónarmið innan stjórnar
Það hefur samt borið við að þið for-
sætisráðherra virðist tala tungum
tveim. Hver var til dæmis niður-
staðan um Norðlingaölduveitu, var
henni frestað eða hvað?
„Samfylking og Sjálfstæðisflokk-
ur hafa bundist fastmælum um að
stækka friðlandið í Þjórsárverum.
En þetta eru ólíkir flokkar með ólík
grunngildi og í umhverfismálum
komum við úr ólíkum áttum. Því er
mikilvægt að ná sátt um stærri
málin. En innan samstarfsins rúm-
ast ýmis sjónarmið.
Stjórn Landsvirkjunar hefur lagt
verkefnið til hliðar og ég lít svo á að
hún hafi engar fyrirætlanir um að
ráðast í það. Það er svo verkefni
stjórnvalda og sveitarfélaga að
ljúka við friðlýsingu Þjórsárvera
sem fyrst, þannig að hún standi
undir nafni.“
Þú gagnrýndir áður að friðlýsing
svæða hefði ekki lagagildi, heldur
mætti breyta þeim með penna-
striki. Munt þú breyta þessu?
„Við erum að endurskoða nátt-
úruverndaráætlun og á næsta ári
munum við fara í gegnum náttúru-
minjaskrá, sem er skrá yfir öll frið-
lýst svæði á Íslandi.
Ég er ekki frá því að þau svæði,
sem mest náttúruverndargildi hafa
á Íslandi, þurfi að friða með lögum.
Þetta á alls ekki við um öll svæði,
við erum nú þegar að stofna stærsta
þjóðgarð í Evrópu, Vatnajökuls-
þjóðgarð, og svæði eins og Þing-
vellir eru vernduð með lögum. Í
mínum huga eru Þjórsárver ein
þessara perlna og það kemur alveg
til greina að friða þau samkvæmt
lögum.“
Um stóra jeppa og strætó
Síðasta ríkisstjórn auðveldaði fólki
að kaupa stóra jeppa, en sjálfstæð-
ismenn í borginni gáfu frítt í stæði
fyrir minnstu bílana. Eru svona
hlutir á þínu borði?
„Algjörlega. Þetta er eitt af
mörgu sem við vinnum að vegna
áætlunar um samdrátt gróðurhúsa-
lofttegunda. Sú vinna fer fram
meðal annars í fjármálaráðuneyt-
inu með tilliti til skattlagningar.
Það er allt undir í þeirri áætlun; allt
sem mengar. Mikilvægur hluti
hennar eru hagrænir hvatar sem
beina einstaklingum og fyrirtækj-
um að leiðum sem menga minna.
Það á að borga sig að velja grænar
leiðir.“
Stjórnarformaður Strætós hefur
sagt að það kosti um 300 milljónir
að gefa öllum frítt í strætó. Væri
þetta ekki fínn hagrænn hvati?
„Mér finnst skipta miklu máli að
ríki og sveitarfélög fari yfir skatt-
lagningu almenningssamgangna og
annað sem er mikilvægt er vega-
kerfið. Til að almenningssamgöng-
ur þyki góður kostur þurfa vagn-
arnir að hafa forgang í umferðinni,
svo strætó keyri fram úr þeim sem
sitja í biðröðum.
En ég veit ekki hvort það er
úrslitaatriði að gefa frítt í strætó.
Það skiptir máli fyrir vissa aldurs-
hópa en mér finnst eðlilegt að full-
vinnandi fólk greiði fyrir að fá að
fara í strætó. Aðalatriðið er að gera
ráðstafanir fyrir þá sem eru efna-
minni.“
Tekur þú strætó? Þú veist þá að
það er varla hægt að borga í hann
þótt maður vildi, því hann tekur
ekki kort og gefur ekki til baka?
„Já, ég tek strætó. Ekki oft en
stundum. Og ég veit mjög vel að
það er ekki hægt að fá til baka!“
segir Þórunn og skellihlær. „Ég á
aldrei akkúrat og borga stundum
meira, bara til að sleppa inn!“
Hvað er ráðherra?
Fyrir kosningar töluðuð þið um
beint lýðræði, til að koma í veg fyrir
deilur um framkvæmdir. Verður
þetta tekið upp í þinni tíð?
„Já. Skipulagsmál eru grundvöll-
ur sáttar um framkvæmdir og ég
mun leggja fram tillögu um breyt-
ingar á skipulagslögum. Í henni
verður meðal annars lagt til að svo-
kallað landskipulag verði sett í lög.
Það er mikilvægt samræmingar-
tæki sem tekur til almannahags-
muna.“
Það þýðir að þú hefðir úrslitavald
um skipulagsmál?
„Um ákveðin atriði. Skipulags-
valdið er hjá sveitarfélögunum og
landskipulag verður að gera í
náinni samvinnu við þau. Slagurinn
sem hefur staðið um einstakar
framkvæmdir hefur ekki síst verið
vegna þess að menn hafa ekki unnið
langtímaáætlanir, til dæmis um
orkunýtingu. Það hefur verið unnið
að rammaáætlun um verndun og
nýtingu náttúrusvæða síðan 1999
og við iðnaðarráðherra höfum
ákveðið að ljúka henni á tveimur
árum. Hún er lykillinn að því að
þessum deilum linni. Þetta hefði
kannski átt að gerast fyrir löngu en
þannig er þetta bara.“
En þegar tvö sveitarfélög deila,
eins og Hveragerði og Ölfus út af
Bitruvirkjun. Mun ráðherra geta
skorið úr slíku?
„Það er auðvitað á ábyrgð sveit-
arfélaga að ná saman. En já, það er
gerð tillaga um það í nýja frum-
varpinu að þegar tvö sveitarfélög
geta ekki komið sér saman um
svona grundvallaratriði þá megi
skjóta málinu til ráðherra.“
Með breyttum lögum um umhverf-
ismat er allt virkjunarvald í raun
komið til sveitarstjórna og orkufyr-
irtækja …
„Leyfið er hjá iðnaðarráðherra
en það er alveg ljóst að sveitarfé-
lögin hafa úrslitavald, já.“
Það stendur ekki til í væntanleg-
um lögum að umhverfisráðherra
geti bara veifað hendi til að hindra
framkvæmdir?
„Nei,“ segir ráðherrann og hlær.
„Ég hef nú ekki orðið vör við mik-
inn vilja til að umhverfisráðherra
verði alvaldur! Það má líka spyrja
sig hvort skynsamlegt sé að einn
ráðherra hafi svo mikið vald.“
Bitra og álver á Bakka
Hvernig líst þér á Bitruvirkjun?
„Hún er í ákveðnu ferli og ég get
ekki tjáð mig um hana því ég gæti
þurft að fjalla um hana seinna. En
almennt séð get ég sagt að það eru
gríðarlega miklar framkvæmdir
búnar að vera í gangi á Hellisheiði
og líka mikil andstaða við þær. Það
er því mikil ábyrgð á herðum Orku-
veitu og Sveitarfélagsins Ölfuss að
taka mið af því sem hefur komið
fram í ferlinu.“
Er rétt skilið að búið sé að ákveða
að álver rísi á Húsavík?
„Nei, það er ekki rétt skilið. Það
er búið að undirrita viljayfirlýs-
ingu um þetta milli sveitarfélags-
ins og Alcoa og orkurannsóknir eru
í gangi og það er það eina sem er að
gerast í því máli.“
Hvaða ný álver sérð þú fyrir þér
næstu tuttugu árin?
„Ég sé fyrir mér að þegar við
höfum lokið vinnu við rammaáætl-
un, orkustefnu og orkulög og nátt-
úruverndarlög hafa verið styrkt,
þá höfum við í höndunum tæki til
að hafa stjórn á þessari þróun. Það
hefði verið gott að hafa þau áður, en
nú erum við bara að vinna í kappi
við tímann.“
Ráðherrann sem tekur strætó
UMHVERFISRÁÐHERRA Í JÓLASKAPI Það er gott að geta skroppið til indónesísku andfætlinganna á Balí í skammdeginu. Þórunn fær þó lítinn tíma til að sóla sig á ströndinni.
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar bíður hennar þar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórunn heldur á morgun á loftslagsþing Sameinuðu
þjóðanna á Balí. Meðal markmiða Íslands er að losun
gróðurhúsalofttegunda í iðnríkjum minnki um 25 til 40
prósent og að ríki geti keypt sér losunarheimildir, meðal
annars með þátttöku fyrirtækja í verkefnum sem stuðla að
nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
Stjórnarandstæðingar hafa talað um að þú hafir mátt
lúffa fyrir sjálfstæðismönnum við stefnumótun fyrir Balí?
„Að ég hafi lúffað fyrir einhverjum? Nei!“ segir ráðherra
og hlær dátt.
„Ríkisstjórnin samþykkti markmiðin í samningavið-
ræðunum í Balí í upphafi vikunnar. Þau markmið eru í
fullu samræmi við efni og tilgang ráðstefnunnar og líka í
samræmi við stefnu þeirra landa sem fara fremst í flokki
fyrir því að ná þar samningum. Markmiðin eru áþekk þeim
sem jafnaðarmenn og vinstri grænir í ríkisstjórn Noregs
hafa sett fram.
Aðalatriðið er að senda út pólitísk skilaboð um að við
viljum gera okkar til að koma í veg fyrir að hlýnun loft-
hjúpsins verði meiri en tvær gráður á Celsíus. Meiri hitun
gæti haft ógnvænlegar afleiðingar fyrir mannkynið.“
Þurftirðu að hafa mikið fyrir því í nefnd fjögurra ráð-
herra að fá þessi markmið samþykkt?
„Nei, alls ekki. Þetta gekk vægast sagt mjög vel í ráð-
herrahópnum. Við viljum að iðnríkin dragi sem mest úr
sinni losun fyrir 2020 og með því að leggjast á árarnar í því
máli erum við að segja við þróunarlöndin að þau þurfi að
vera með. Við getum ekki lagt sömu byrðar á þeirra herðar,
en það skiptir máli að þau taki þátt. Það eru þessi skilaboð
sem skipta mestu máli og fundurinn þarf að vinna úr. Balí
snýst um að samningar náist um að semja, því ef ekki
næst samkomulag um það á næstu tveimur árum þá er
allur loftslagssamningurinn í uppnámi. Og þá tæki við
erfitt samningaferli fram að fundi í Kaupmannahöfn 2009.“
Íslenska sérákvæðið, er það enn þá inni?
„Það verður ekki rætt um neitt slíkt á Balí, heldur að ríku
löndin leggi sitt til málanna. Balí snýst um að ná samstöðu
um að fylgja leiðsögn Vísindanefndarinnar, þannig að
svokallað íslenskt ákvæði er ekki uppi á borðinu.“
Sveigjanleikaákvæðin, þau eru ekki af svipuðum meiði?
„Nei, það er einhver misskilningur í gangi um þau.
Sveigjanleikaákvæðin hafa verið inni í Kyoto síðan 1997
og fjalla um að til verði markaður með kolefni og viðskipti
með losunarheimildir. Til þess að svo megi verða eru sett
upp ýmis verkefni, til dæmis um hreina þróun.“
Er engin hætta á því að stærstu fyrirtækin eignist allar
heimildirnar en þau minni sitji á hakanum?
„Ég fæ ekki séð að kerfið virki þannig og það er ekki sett
upp til þess, heldur til að setja verðmiða á losunina. Þau
borgi sem menga. Það er í samræmi við Ríó-samninginn
og alveg sama hver á í hlut. Kerfið þarf að virka þannig að
þeir sem menga meira, greiði meira.“
Ráðuneytið er sautján
ára gamalt og Þórunn
Sveinbjarnardóttir
hefur verið kölluð fyrsti
alvöru umhverfisráð-
herrann. Hún fór á
sínum tíma mót flokks-
forystu sinni þegar hún
greiddi atkvæði gegn
Kárahnjúkavirkjun. Á
morgun fer hún til Balí
að semja fyrir Íslands
hönd um loftslagsmál.
Hún sagði Klemensi Ólafi
Þrastarsyni frá virkj-
unum, landslögum og
strætó.
➜ LÚFFAÐI EKKI FYRIR GEIR VEGNA BALÍ
Ég hef nú ekki orðið vör við mik-
inn vilja til að umhverfisráðherra
verði alvaldur!