Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 76
60 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
➜
OG FLEIRI SKEMMTILEG SJÓNARHORN..
Friðarsúlan með augum fólksins
Fréttablaðið stóð fyrir ljósmyndakeppni í nóvembermánuði um bestu myndirnar af Friðarsúlu listakonunnar Yoko Ono í Viðey.
Næstum hundrað myndir bárust til blaðsins og augljóst að Friðarsúlan hefur fangað ímyndunarafl og hjörtu borgarbúa. Hér eru
vinningsmyndirnar auk annarra ljósmynda sem vöktu athygli dómnefndar.
Fyrstu verðlaun fær Snæþór Sigurbjörn
Halldórsson fyrir mynd sem hann tók 21.
nóvember frá Hafravatni. „Myndin er tekin
á Canon 350D, rétt rúmlega ellefu um
kvöldið. Hún er tekin á 30 sekúndum á
ljósopi 4.0 með 16 mm brennivídd á
Canon L 16-35 mm linsu,“ útskýrir
Snæþór. Myndin hreif dómnefnd
vegna vetrarkyrrðarinnar sem er
að finna í myndinni og fallegs bláma
súlunnar sem endurspeglast í frosinni
jörð og stjörnubjörtum himni. Einnig þótti
sjónarhornið óvenjulegt en myndin er tekin
úr fjöru Hafravatns með Úlfarsfellið í
baksýn. Snæþór hlýtur í verðlaun myndavél-
ina Ixus 70 frá Canon en hún er með 7,1
megapixla CCD myndflögu, búin leiðandi
tækni frá Canon og klassísku útliti. Ljós-
mynd Snæþórs var þar að auki valin
„OSRAM-myndin“ í tilefni af því að það eru
OSRAM-perur sem knýja Friðarsúluna í
Viðey. Það er VOLTI hf., umboðsaðili Osram,
sem veitir Snæþóri 30 þúsund króna úttekt í
verslun Volta hf.
Í dag, áttunda desember, eru 27 ár liðin frá dánardegi
Johns Lennon og þá verður slökkt á súlunni sem hefur frá
9. október síðastliðnum lýst langar leiðir frá eyjunni
sögufrægu í Kollafirði. Vinsældir Viðeyjar hafa aukist
mikið með tilkomu Friðarsúlunnar en hún er hugarfóstur
Yoko Ono, ekkju Johns Lennon. Friðarsúlan sést greini-
lega vel frá ýmsum áttum innan og utan höfuðborgarinn-
ar og ótalmargar skemmtilegar myndir komu fyrir augu
dómnefndar en í henni sátu þau Páll Stefánsson ljósmynd-
ari, Pjetur Sigurðsson, yfirmaður ljósmyndadeildar
Fréttablaðsins, og Anna Margrét Björnsson, umsjónar-
maður helgarefnis á Fréttablaðinu. Verðlaunin eru öll frá
Ný herja, umboðsaðila Canon á Íslandi. Í dag stendur yfir
fjölbreytt dagskrá í Viðey, þar á meðal listasmiðja og
tónleikar. Næst verður kveikt á súlunni á áramótum, hinn
31. desember.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Kyrrð og friður
Blossi á Bessastöðum.
Þessi skemmtilega mynd með ljós beint upp úr kirkjunni er eftir
Ólaf Magnússon.
Skammdegisblámi
Dularfull stemning eftir Telmu Hlín Helgadóttur.
Norðurljós, tungl og stjörnur
Friðarsúlan skín hér meðal allra náttúrufyrirbrigða á himnum.
Mynd eftir Elsu Björg Magnúsdóttur.
1