Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 84

Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 84
68 8. desember 2007 LAUGARDAGUR Í sbjörninn Knútur fagnaði afmælinu sínu í vikunni í dýragarðinum í Berlín í Þýskalandi þar sem hann fæddist 5. desember fyrir einu ári. Óhætt er að segja að Knútur hafi fangað athygli umheimsins á þessu eina æviári sínu. Meðal annars var fjölmiðla- herferð hrundið af stað fyrir því að ekki ætti að aflífa Knút eftir að móðir hans afneitaði honum við fæðingu. Þá vakti náið samband hans og dýrahirðisins Thomas Dörflein mikla athygli. Gerald R. Uhlich, forstjóri dýragarðsins, telur þessar sérstöku aðstæður skýra heimsfrægðina sem Knútur öðlaðist. Fárið hófst 23. mars „Tilkynnt var um fæðingu Knúts líkt og gert er með allar fæðingar í dýragarðinum. Svo þegar hann var þriggja mánaða fékk þýsk sjón- varpsstöð að taka af honum mynd- ir og þegar þær voru sýndar varð hann strax þekktur meðal almenn- ings. Hinn 23. mars byrjuðum við að sýna hann í dýragarðinum og þann dag má segja að æðið hafi byrjað.“ Aðsókn í dýragarðinn næstu mánuði jókst um 50 prósent, að sögn Uhlich. Rætt um að deyða Knút Stjórnendur dýragarðsins gerðu sér grein fyrir að Knútur yrði hugsanlega frægari en önnur afkvæmi í dýragarðinum vegna þess að móðir hans hafnaði honum, að sögn Uhlich. Þá hafi atvik sem átti sér stað í dýragarði í Leipzig sérstaklega ýtt undir athygli í garð Knúts. „Þar gerðist það að letibjarnarhúni var hafnað af móður sinni og stjórn- andi dýragarðsins ákvað að drepa húninn. Ég hef enga hugmynd um af hverju hann ákvað það og ég skil það ekki. Eftir á gaf hann í skyn að húnninn gæti hafa verið veikur, þegar hann lenti í miklum vandræðum með dýraverndunar- samtök. Þetta varð til þess að dýra- verndunarsinni sneri sér til tíma- ritsins Der Spiegel og í grein þar sagði hann að ef það hefði verið í lagi að drepa letibjarnarhúninn þá ætti með réttu einnig að drepa ísbjarnarhúninn Knút. Ég held að þetta hafi verið upphafspunktur- inn af fárinu í kringum Knút.“ Herferð fyrir lífi Knúts Uhlich segir stærsta dagblað Þýskalands, Bild Zeitung, hafa gert mikið úr þessum umræðum og hóf það herferð til að reyna að bjarga Knúti. „Þar sagði að þessi dýraverndurnarsinni vildi láta drepa Knút þó að það hafi aldrei verið hans hugmynd heldur var hann einungis að benda á að ef að það hafi verið rétt að drepa leti- bjarnarhúninn í Leipzig þá væri rétt að drepa Knút einnig á sömu forsendum. Hann var aldrei á þeirri skoðun að það ætti í raun að drepa Knút og dýraverndunarsam- tökin myndu aldrei tala fyrir slíkri skoðun.“ Þetta varð það frægt mál í Þýskalandi að fjölmiðlar í öðrum löndum tóku við sér og fóru að veita Knúti athygli. „Það getur enginn lagt á ráðin um svona mark- aðssetningu.“ Knútur skráð vörumerki Þegar ljóst var hve frægur Knút- ur var að verða ákváðu dýragarð- syfirvöld að grípa til ráðstafana. Uhlich segir að fyrsta daginn sem Knútur birtist fyrir augu almenn- ings í dýragarðinum hafi 500 fjöl- miðlamenn hvaðanæva að úr heiminum og myndatökumenn frá hundrað sjónvarpsstöðvum verið á staðnum. „Við höfðum aldrei séð neitt þessu líkt áður. Þarna varð mér ljóst hvað væri á seyði og að nauðsynlegt væri fyrir okkur að vernda okkar rétt. Þennan sama dag, 23. mars, skráðum við Knút sem vörumerki og er það í fyrsta skipti í sögu dýragarðsins sem við gerum slíkt. Síðan byrjuðum við að bjóða upp á ýmsan söluvarning merktan Knúti á borð við boli, póstkort, bangsa og margt fleira.“ Dýragarðurinn hóf einnig sam- starf við þýska umhverfisráðu- neytið um að gera Knút að ímynd umhverfisverndar og er Sigmar Gabriel umhverfisráðherra guð- faðir Knúts. Meginástæðan fyrir því var að sögn Uhlich sú að marg- ir töldu að ímynd dýragarðsins væri að breytast yfir í að vera gróðafyrirtæki vegna velgengn- innar í kringum Knút. „Þess vegna taldi ég að við þyrftum að setja ímyndina í umhverfisvænt sam- hengi. Verkefnið snýst aðallega um verndun svæða sem dýr lifa á í náttúrunni.“ Dýrahirðir í móður stað Dýrahirðirinn Thomas Dörflein öðlaðist heimsfrægð samhliða Knúti vegna sambands þeirra. Segja má að hann hafi gengið honum í móðurstað eftir að móðir Knúts afneitaði honum við fæð- ingu. Afleiðing þess var sú að ekki var hægt að hafa Knút ásamt hinum ísbjörnum dýragarðsins þar sem móðirin var ekki lengur fær um að vernda hann fyrir hinum ísbjörnunum sökum áhuga- leysis. Því má segja að Dörflein hafi gengið Knúti í móðurstað. „Þar sem Knútur var einn á sýningarsvæði þar sem eru vatn og klettar þurfti Dörflein að vera með honum til að gæta hans. Áhorfendur höfðu unun af að fylgjast með þeim tveimur leika sér saman og þannig varð þetta samband svona frægt. Það áhuga- verðasta við alla þessa sögu er sambandið milli Knúts og Dörf- lein að mínu mati.“ Í júlí var til- kynnt að Knútur og Dörflein myndu hætta að koma saman fram og í fjölmiðlum var ástæðan sögð sú að Knútur, sem var orðinn 70 kíló, væri orðinn of stór og að dýragarðurinn vildi ekki hætta á að hann réðist á Dörflein frammi fyrir áhorfendum. Þetta segir Uhlich rangt. „Ástæðan var sú að margir töldu að við værum að reyna að hagnast á sambandi þeirra sem var alls ekki raunin. Þetta er enginn sirk- us. Og Dörflein leikur enn við Knút baksviðs og getur líklega gert það í hálft ár í viðbót ef hann er varfærinn.“ Þarfnast samneytis við aðra Spurður um framtíð Knúts segir Uhlich að hún sé enn óljós. „Við höfum ekki ákveðið hvort hann verður áfram í Berlín eða færður í annan dýragarð. Það er mjög mik- ilvægt að hann hafi samskipti við aðra ísbirni en við getum ekki sett hann í hóp ísbjarnanna hér þar sem móðir hans getur ekki varið hann en faðir hans gæti ráðist á hann og drepið. Því erum við núna að leita úti um allan heim að dýra- garði sem hefur fáa litla ísbirni þar sem hann gæti verið með.“ Knútur eins árs Eftir að hafa verið hafnað af móður sinni vann þýski ísbjarnarhúnninn Knútur hug og hjarta fólks úti um allan heim. Á eins árs ævi sinni hefur Knútur dregið um tvær milljónir manna að dýragarðinum í Berlín, hann skráður sem vörumerki, heit umræða skapast um að aflífa hann og fjölmiðl- ar háð baráttu fyrir lífi hans. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir ræddi við for- stjóra dýragarðsins sem hefur fylgst með stuttri en viðburðaríkri ævi Knúts. GERALD R. UHLICH FORSTJÓRI DÝRA- GARÐSINS Segir Knúts-æðið hafa byrjað sama dag og byrjað var að sýna hann í dýragarðinum. NORDICPHOTOS/AFP AFMÆLISBARN Knútur fagnaði árs afmælinu sínu með því að gæða sér á afmælistertu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP THOMAS DOERFLEIN OG KNÚTUR Tilviljun réð því að Doerflein gekk Knúti í móð- urstað. Dýrahirðar skiptast á að hugsa um afkvæmi sem þurfa sérstaka athygli og í tilviki Knúts var röðin einfaldlega komin að Doerflein. NORDICPHOTOS/AFP TÝNDUR! Það er engu líkara en að Knút- ur sé að reyna að fela sig þar sem hann hallar sér upp að klettavegg og tekur fyrir augun. Þarna er hann sjö mánaða. NORDICPHOTOS/AF UPPRÉTTUR Eins árs gamall hefur Knútur laðað um tvær milljónir gesta að dýragarðinum í Berlín. NORDICPHOTOS/AFP Fr um OPIÐ HÚS NORÐURBAKKI 5 Sími 520 2600 Sími 520 7500 Sími 565 5522 Kíktu í heimsókn til okkar að Norðurbakka 5, laugardaginn 8. eða sunnudaginn 9. desember, frá kl. 14-17. Komdu og skoðaðu glæsilegar íbúðir í nýju lyftuhúsi á frábærum stað við sjávarsíðuna. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri. Sjón er sögu ríkari.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.