Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2007, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 08.12.2007, Qupperneq 90
74 8. desember 2007 LAUGARDAGUR HLJÓÐFÆRI HUGANS Njörður P. Njarðvík skrifar um íslenskt mál HELGARKROSSGÁTAN GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA Fjarlægjast landið Þeir leggjast á árarnar og fjar- lægjast landið. Það getur verið sárt að fjarlægjast land, það er eins og maður rói í átt að ein- semdinni. Strákurinn horfir á fjöllin minnka, þau virðast sökkva í hafið. Fjöllin ógna okkur þegar við erum í landi, safna að sér ill- viðrum, drepa manneskjur með grjótkasti, þurrka út bæi með snjóflóðum og aurskriðum, en fjöllin eru líka verndandi lófi, þau fóstra okkur og halda utan um bátana inni á fjörðunum, en ekk- ert verndar sjómenn sem róa langt, nema bænin og hugvitið. Jón Kalman Stefánsson: Himnaríki og helvíti (2007) Allir þessir aðilar Elsta dæmi um no. aðili í í ritmáli er frá síðari hluta 18du aldar. Orðið merkir að eiga aðild að ein- hverju, vera þátttakandi. svo sem aðilar vinnumarkaðarins. Einnig er talað um opinbera aðila, þ.e. ríki og sveitarfélög og embættis- menn þeirra og stofnanir. En nú er þetta orð svo ofnotað, einkum í fleirtölu, að það er orðið hrein plága, og ýtir burt góðum og gild- um og einföldum orðum. Hér koma nokkrir „aðilar“ sem ég hef rekist á nýverið: byggingaraðilar (byggjend- ur), framkvæmdaraðilar (fram- kvæmendur), flutningsaðilar (flytjendur), deiluaðilar (deilend- ur), samningsaðilar (semjend- ur), samstarfs aðilar (samstarfs- menn), sóknaraðilar (sækjendur), söluaðilar (seljendur), varnarað- ilar (verjendur), umsjónaraðilar (umsjónarmenn). Er þessi „aðila- árátta“ orðfærissmit eða partur af fáyrðistísku? Margt og mikið Áður hefur verið minnst á mun- inn á notkun orðanna margt og mikið. Ungur lærði ég þá einföldu reglu að margt væri haft um það sem telja má, en mikið um magn. Því blöskraði mér nýverið þegar ég heyrði talað í útvarpi um „mikið af bönkum“ og í sjónvarps- þætti um „mikið af spurningum“. Álver í uppnámi? Að vera í uppnámi er að vera í mikilli geðshræringu (þessi athugasemd kemur honum í upp- nám) eða í vandræðum (málið er í uppnámi). En skrítið er að heyra það sagt um álver (Ekkert bendir til þess að álver þar sé í uppnámi (Stöð 2, 15.11.)). Í sama fréttatíma var rætt um mann sem tók sitt eigið líf (aulaþýðing úr ensku: took his own life). Við tölum um að svipta sig lífi. Þá var þar einn- ig sagt að fara fram úr hávaða- toppnum (vegna hávaða í leik- skólum) og er furðu smekklaust. Ganga göng vel? „Héðinsfjarðargöng ganga vel“ segir í fyrirsögn í 24 stundum 24. nóv. og er auðvitað ekki rökrétt. Þarna er væntanlega átt við að vinnan við göngin gangi vel, en göngin ganga varla langt sjálf. Braghenda Hvað finnst þér um hugarástand heillar þjóðar, er sér lætur einlægt bjóða afglöp sinna verstu slóða? Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@ vortex.is Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur 99 k r. sm si ð Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón: Þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON Þú gætir unnið Næturvaktina á DVD! Leystu krossgát una! Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐ á númerið 1900! Góð vika fyrir ... ... hrekkjalóma Vífill Atlason, 16 ára framhaldsskólanemi á Skaganum, var á allra vörum undir lok vik- unnar eftir að honum tókst að panta símavið- tal við George Bush Bandaríkjaforseta. Vífill þóttist vera for- seti Íslands og minnstu munaði að hann fengi áheyrn hjá valdamesta manni heims. Í Bandaríkjunum er þetta vitaskuld litið alvarlegum augum en hérlendis hlæja allir að uppá- tækinu og fagna áræðni Vífils og félaga. ... ungan forstjóra Hinn 29 ára Jón Sig- urðsson fékk stöðu- hækkun í vikunni og var gerður að forstjóra FL Group. Þeir eru ekki margir sem kom- ist hafa jafn hratt upp metorðastigann, en forstjórinn ungi þykir hafa alla burði til að standa sig. Hann ætti nú sömu- leiðis að slá flesta jafnaldra sína út hvað laun varðar. Sem aðstoðarforstjóri var Jón með fjórtán milljónir á mánuði í fyrra. Sú upphæð lækkar alla vega ekki þegar hann er orðinn forstjóri. ... ástfanginn fegurðarkóng Keflvíkingurinn Ólafur Geir Jónsson baðst afsökunar á gerðum sínum og bað kærustu sína fyrirgefningar á bloggi sínu í vikunni. Ástarjátn- ing Ólafs fór víða í netheimum og hluti hennar birtist hér í Frétta- blaðinu. Einlægni Ólafs virðist hafa virkað því í gær mátti lesa um það í 24 stundum að kærastan hefði tekið aftur við honum. Slæm vika fyrir ... ... einkaþotuforstjóra Ólíklegt verður að teljast að Hannes Smárason verði í sama hlutverki í Ára- mótaskaupi Sjón- varpsins í ár og í fyrra. Þá var upplegg- ið að allir ættu að vera eða vildu vera eins og hann. Hrun á gengi hlutabréfa í FL Group og innkoma Baugs í vikunni hafa algjörlega sett Hannes út af sakramentinu. Spurning hvort hann ferðast áfram á einkaþotum hér eftir? ... íslenska menntakerfið Íslendingar eru fyrir neðan meðal- tal þjóða í Pisa-könnuninni. Ungl- ingum okkar fer aftur í lestri og stærðfræði og þannig hefur þróunin verið frá aldamótum. Menntamálaráðherra heitir að sjálfsögðu úrbótum. Við bíðum spennt eftir þeim. ... stolta Íslendinga Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri voru meðal þeirra íslensku framámanna sem „teknir“ voru í vik- unni. Norsk sjón- varpskona, eins konar Silvía Nótt þeirra Norðmanna, plataði þá í viðtal á þeim for- sendum að nú væri orðið betra að búa á Íslandi en í öðrum löndum. Þjóðarstoltið kitlaði okkar menn en þeir hafa væntanlega dauðséð eftir þessu öllu saman. Enda sjónvarpskonan afar fær í að láta jafnvel klárustu menn líta kjánalega út.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.