Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 92
8. desember 2007 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Sjald-
séðir eru
hvítir
hrafnar...
Mamma þín
er að fara að
leggja á.
Okkur
vantar svo
ADSL.
Halló, símstöð? Þetta
er Filippus, viljið þið
gefa mér samband við
Amazon.com?
Þessi var
fyrir Jóa!
Húha!
Ekki bara fallegt andlit!
Jú, en sko...
Býrðu með Jóa
eða ekki?
Hvað
meinarðu?Kjaftæði! Mér skilst að þú hafir verið
með öðrum manni
meðan ég lá í dái!
Hvað? Er einhver annar
á línunni? Takk, ég reyni
aftur síðar.
Heimska
gæs.
Maaammma!
Skelltu skuld-
inni bara á
sérfræðinginn.
... ljótum
bræðrum
Út af...
Af hverju eru
augu þeirra
eiginlega alltaf
lokuð?
Allt
mögulegt.
Hvað veistu
meira um börn?
voff voffbíbb bíbb
Hrekkjalómar hafa
látið töluvert að sér
kveða undanfarið.
Skemmst er að minn-
ast sextán ára Skaga-
manns sem hringdi í
Hvíta húsið, kynnti sig
sem Ólaf Ragnar Grímsson forseta
Íslands og vildi fá viðtal við Bush.
Hann lét ekki staðar numið þar og
sendi vin sinn í viðtal á Stöð 2 í stað
þess að mæta sjálfur. Vinurinn lét
dæluna ganga í aðalfréttatíma
stöðvarinnar undir nafninu „Vífill
Atlason“ en hét auðvitað eitthvað
allt annað. Skömmu áður birtist hér
í Fréttablaðinu frétt af hópi vina
þar sem hver hrekkir annan sér til
skemmtunar. Í nýjasta tilfellinu
auglýsti einn frosna brjóstamjólk í
hálfslítra flöskum til sölu á Barna-
landi. Lúxusvaran átti að kosta
1.000 krónur flaskan og undir
kvittaði Bergþóra. Meðfylgjandi
símanúmer var hins vegar í eigu
Bergþórs, vinar hrekkjalómsins,
sem fékk fjölmörg símtöl frá
hneyksluðum mæðrum.
Mér finnst hrekkir oft fyndnari
eftir því sem lengra er gengið þótt
línan sé vissulega hárfín. „Forseta-
málið“ finnst mér til dæmis mein-
fyndið. Það hefði náttúrlega verið
ennþá fyndnara ef Bush hefði hringt
um kvöldmatarleytið á mánudag til
þess að spjalla við sextán ára sölu-
mann hjá Hive um heimsmálin. Ég
kann að meta það þegar menn leggja
metnað í hrekki sína og hugsa fyrir
öllu. Fyrrnefndur hrekkjavinahópur
stal til dæmis stýri úr bíl félaga
síns. Þeir unnu heimavinnuna sína,
komust að því hvernig þeir gætu
komist inn í læstan bílinn án þess að
skilja eftir ummerki og fengu
vinnuveitanda fórnarlambsins með
sér í lið. Ég vildi óska þess að ég
byggi sjálf yfir stórkostlegu hug-
myndaflugi þegar kemur að
hrekkjum en svo er ekki. Eiginlega
er það svo átakanlega lélegt að við
vinkonurnar gerðum nánast alltaf
sams konar símaat. Það fólst í því
að hringja í bændur og spyrja: „Er
Skjalda á bás 4 við?“ Svo engdumst
við um af hlátri burtséð frá því
hvert svarið var. Mér til varnar
vorum við tólf ára og ég hef látið
aðra um símahrekkina síðan þetta
var.
STUÐ MILLI STRÍÐA Bush og brjóstamjólkin
SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR SKEMMTIR SÉR YFIR HREKKJUM ANNARRA
Tilvitnanir í
heimsþekkta húmorista
frá Shakespeare til
okkar daga.
Þorsteinn Eggertsson
tók saman.
Bók sem grípa má til
við öll tækifæri!
FYRSTA FLOKKS GRÍN!
KRAFTMIKIL SKÁLDÆVISAGA
Afar lifandi myndir
frá litríkum
æskuárum í
Keflavík. Bókin
er skrifuð af
miklum krafti,
atburðarásin er
hröð og textinn
geislar af
frásagnargleði.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Áleitin og angurvær
Reykjavíkursaga
um gráa fiðringinn,
vændi og draumana
sem rætast ekki.
ÁSTIN OG KYNLÍFIÐ
„Annað sem verður svo
sláandi við lestur Hliðar-
spors er hið gráa svæði á
milli siðlegra og ósiðlegra
hluta. Hvenær eru menn
örugglega komnir yfir á
hvítan eða svartan reit?“
– andriki.is
NÝ SÖNGBÓK GUNNARS
Árið 2005 kom út
bók með 40 vinsælum
lögum Gunnar
Þórðarsonar og seldist
fyrsta prentun upp
á skömmum tíma.
Nú hefur Gunnar
valið 40 lög til
viðbótar og birtast
þau í þessari bók.
BÓK FYRIR ALLA
TÓNLISTARMENN!