Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 96

Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 96
 8. desember 2007 LAUGARDAGUR Alltaf er nóg um að vera í Þjóð- minjasafni Íslands og desember er einn viðburðaríkasti mánuður ársins. Jóladagskráin hefst á morgun kl. 14 með opnun jólasýn- ingarinnar Sérkenni sveinanna. Á sýningunni er sett upp lítið jólahús með alls konar forvitnilegum gripum sem tengjast jólasveinun- um. Þar eru til dæmis askur fyrir Askasleiki, hrossabjúga handa Bjúgnakræki og skyr handa Skyrgámi. Börnin mega handleika gripina að vild og fá þannig tækifæri til að kynnast jólasvein- unum og átta sig á því hvað hin skrýtnu þjóðlegu nöfn þeirra þýða. Grýla og Leppalúði koma í heimsókn og segja frá sonum sínum, jólasveinunum. Heiða í Unun syngur ljúflega með börnunum og Guðni Franzson kemur fram sem Hermes. Fjölskyldur geta svo reynt hina sígildu ratleiki Þjóðminjasafnsins. Jólaleikurinn heitir Hvar er jólakötturinn? og snýst um að finna litla jólaketti sem hafa verið faldir innan um safngripina. Fleiri fjölskylduleikir eru í boði. Þetta er þó aðeins upphafið á líflegri jóladagskrá Þjóðminja- safnsins því líka er hægt að fá að hitta jólasveinana sjálfa. Sá fyrsti kemur af fjöllum miðvikudaginn 12. desember og mætir klukkan 11 í safnið. Síðan þramma þeir til byggða einn af öðrum, heilsa upp á börnin og krækja í það sem þá langar í. Þeir koma í Þjóðminja- safnið klukkan 11 á hverjum morgni fram að jólum og verður jafnvel opið á sjálfan aðfangadag milli 11 og 12 til að taka á móti þeim síðasta, Kertasníki. - pbb Jóla hvað? JÓLIN KOMA Jóladagskrá Þjóðminja- safnsins hefst á morgun. Björgvin Halldórsson æfði sig í Laugardalshöllinni í gær en hann heldur tvenna jólatónleika í Laugardalshöllinni í dag. Þeir fyrstu hefjast klukkan fjögur en þeir seinni klukkan átta en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er fyrir löngu orðið uppselt. Þriðju tónleikarnir verða síðan á morgun og er einnig uppselt á þá fyrir löngu. Bó nýtur liðsinnis góðra gesta en meðal þeirra sem koma fram eru Svala Björgvinsdóttir og Garðar Thor Cortes. Allt kapp verður lagt á að hafa umgjörðina sem flottasta og áhorf- endur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að missa af einhverju enda verður öllu sem fram fer á sviðinu varpað á tvö risastór tjöld. Djass- tríó, skipað þeim Sigurði Flosa- syni, Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni, tekur á móti prúð- búnum gestum, seldar verða piparkökur og heitt kakó til að ná fram réttu stemningunni og alls verða sextíu jólatré, skreytt í öllum regnbogans litum. - fgg Bó syngur inn jólin FRÁ ÆFINGU Björgvin Halldórsson tók létta æfingu í gær fyrir jólatónleikana sem verða í kvöld í Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 7. og 8. des uppselt 30. des SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS græn tónleikaröð í háskólabíói Hljómsveitarstjóri ::: Ernst Kovacic Einsöngvari ::: Auður Gunnarsdóttir FIMMTUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 NOKKUR SÆTI LAUS Það er hefð hjá mörgum að byrja árið með hátíðar- brag á Vínartónleikum Sinfóníunnar. Þó er vissara að hafa hraðar hendur ef fólk vill tryggja sér miða á þessa sívinsælu tónleika, því þegar nær dregur tónleikadagsetningum verða þeir ófáanlegir. tónleikar utan raða í háskólabíói FÖSTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 21.00 LAUS SÆTI Vínartónleikar fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands Aðventan í Norræna húsinu Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík, sími 551 7030 Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi í notalegu umhverfi Norræna hússins. Dagskrá helgina 8. og 9. desember Girnilegt norrænt jólahlaðborð í Alvar A – matur og drykkur Lifandi jóladagatal í glugganum í dag? María Pálsdóttir leikkona les jólasögur á íslensku úr norrænum barnabókum. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og söngvari flytur fjölbreytta dagskrá fyrir börnin. Hönnunar – og handverksmarkaður í sýningarsal í kjallara hússins. Jólaglögg, eplaskífur og aðrar léttar veitingar seldar á staðnum. Enginn aðgangseyrir er að dagskrá hússins. Sjá nánar: 12.00 Jólahlaðborð 12.34 13.00 Barnadagskrá í bókasafninu Laugardag 8. des. Sunnudag 9. des. 12.00 – 17.00 Jólamarkaður Hvað er www.nordice.is Jólatónleikar Kyrjanna Árlegir jólatónleikar Kyrjanna verða laugardaginn 8. desember nk. kl. 17:00 í Fella- og Hólakirkju. Yfirskrift jólatónleikarnna í ár er „Sú vonanna sól, verði stjarnan um jól.“ - innlend og erlend jólalög. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari kórsins er Halldóra Aradóttir einnig spilar Agla Eir Sveinsdóttir á þverflautu. Miðasala við innganginn og er miðaverð kr. 2.000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.