Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 98
82 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Nú fer jólaveisluvertíðin að ganga í hönd og
tískudrósir um allt land farnar að plana ára-
mótafatnaðinn. Það er vert að fá innblástur
frá sýningunum í París fyrir vor og sumar
því þar gaf að líta gimsteinaliti, pallíettur.
silki og fjaðurskraut á kvöldkjólum, hvort
sem þeir voru síðir eða stuttir. Hjá Dior og
Alexander McQueen var lögð áhersla á hand-
saumað skraut, fjaðrir og bróderingar
og hjá Chanel, Gaultier og Lanvin
voru pallíettur í ljósum og draum-
kenndum tónum allsráðandi. Það er
líka bráðsnjallt að poppa upp einlit-
an og einfaldan kjól með falleg-
um fjaður- eða pelskraga og
nota pallíettur sparlega, eins
og til dæmis einlitan topp með
einföldu pilsi eða buxum. - amb
FJAÐRIR, GLIMMER OG GLANS HJÁ HÖNNUÐUM
Í PARÍS FYRIR VOR OG SUMAR 2008
SPARI SPARI...
Íslensk veðrátta getur farið skelfilega með húðina, sérstaklega á
veturna þegar skiptast á rigning og raki og frost og þurrt loft. Vetrar-
húð á þó að geta verið einstaklega falleg, og um að gera að splæsa í
fallegan rósrauðan kinnalit til að líta út eins og rússnesk ævintýra-
prinsessa. En hvað er besta leiðin til að vernda húðina á þessum
árstíma? Vaidya Rama Kant Mishra er nýjasti heilsugúrúinn vestan-
hafs og aðhyllist hin indversku „ayurveda“-fræði sem snúast um
jafnvægi á líkama og sál. Hún varar við því að hafa of mikinn hita á
ofnum innandyra en mælir með því að nota loftrakatæki til þess að
fyrirbyggja að húðin skrælni. Einnig mælir hún ekki með mjög heitu
baðvatni heldur bara mátulega volgu og að fara í sturtu í mesta lagi
einu sinni á dag til þess að halda raka í húðinni. „Húðin er mun
móttækilegri fyrir rakagefandi kremum á veturna,“ útskýrir hún.
Mishra mælir með að borða fullt af fersku grænmeti og ávöxtum til að
vega upp á móti salt og sykuráti, og að drekka fullt af soðnu vatni og
jurtate yfir daginn. „Notaðu krydd óspart,“ bætir hún við. „Kúmen er
til dæmis bráðhollt og hjálpar líkamanum til þess að losa sig við
eiturefni.“ Og síðast en ekki síst, nældu þér í nægilegan svefn.
„Svefnleysi er versti óvinur húðarinnar, því þá fær maður bauga og
húðin missir allan frískleika sinn“.
Rósrauður vetrarbjarmi
> TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR
TÓNLIST OG TÍSKA Það verður fjör á Laugaveginum í
dag þegar hátískubúðin KronKron heldur upp á opnun
heimasíðnanna www.kron.is og www.kronkron.com.
Hljómsveitin vinsæla Sometime mun svo koma og
gleðja gesti með skemmtilegum tónum klukkan 15.
Verslunin er á Laugavegi 63b.
Ofurskvísulega ökklaskó
frá franska tískuhúsinu
Sonia Rykiel. Trés chic! Fást
í KronKron, Laugavegi.
Jólakortin í ár eru frá hönnuðin-
um Hildi Yeoman og eru ótrúlega
smart. Fást í KronKron.
Hlýja kanínuhanska. Hver segir
að maður eigi að vera púkalegur í
kuldanum? Frá Sand, Kringlunni.
OKKUR
LANGAR Í
…
STJÖRNUDÝRÐ
Gylltur pallíettu-
toppur við hvítar
sokkabuxur frá
Jean-Paul Gaultier
fyrir vor og sumar
2008.
FJÓLUBLÁ FEGURÐ
Ótrúlega fallegur
og sparilegur
kokkteilkjóll í
eggaldinbláum
tón frá Lanvin.
MIÐNÆTURBLÁR
Gullfallegur dimm-
blár og stuttur kjóll
með risastórum
fjaðurkraga frá
Lanvin fyrir vor og
sumar 2008.
KANARÍFUGL Fyrir-
sæta í fagurgulum,
fjaðurskreyttum
og stuttum kjól á
tískusýningu
Lanvin í París
fyrir vor og sumar
2008.
ÆVINTÝRALEGUR Lillablár kjóll
með víðu pilsi og krínólinu
minnir á álfaprinsessu í Shake-
speare-leikriti. Frá Giles Deacon
fyrir vor og sumar 2008.
Jólagjöfin hennar
smáralind
www.coast-stores.com