Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 100
84 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Mæðgurnar Helga Möller og Elísabet Ormslev syngja saman á fyrstu
sólóplötu Helgu, Hátíðarskap. Hin fjórtán ára Elísabet, sem er nýbyrjuð
að læra söng, syngur allar bakraddir á plötunni og stendur sig með mikilli
prýði. „Þetta er í fyrsta skiptið sem við störfum saman og vonandi ekki
það síðasta því hún er mjög efnileg,“ segir Helga. „Það er mikið
tónlistargen í hennar blóði, ekki bara frá mér því afi hennar, sem er því
miður dáinn, var Gunnar Ormslev, einn mesti saxófónsnillingur Íslands-
sögunnar. Hann var þekktur fyrir að læra allt strax og þaðan hefur hún
það því hún lærir allt strax sem fyrir hana er lagt,“ segir Helga.
Hún segir að núna hafi verið hárréttur tími til að gefa út þessa fyrstu
sólóplötu. „Þegar ég hugsa til baka er margt búið að gerast undanfarið í
mínu lífi. Ég fór á síðasta ári í söngnám fyrir atvinnusöngvara sem skil-
ar sér með prýði á plötunni því það var ýmislegt sem ég lærði þar,“ segir
hún og bætir við: „Platan er hlý og notaleg, alveg eins og ég vildi hafa
hana. Hún er góð bæði með rauðvínsglasinu og kakóbollanum.“
Alls eru tólf jólalög á plötunni, þar á meðal hið sígilda Í hátíðarskapi.
„Þetta er mjög persónuleg plata og ég stend og fell með henni. Ég valdi
lögin ásamt Magnúsi Kjartanssyni og við vildum hafa hljóminn frekar
einfaldan og ekki of mikið af röddum og hljóðfærum. Ég tel að það hafi
tekist mjög vel.“ - fb
Mæðgur á jólaplötu
TÓNELSKAR MÆÐG-
UR Mæðgurnar Helga
Möller og Elísabet
Ormslev starfa
saman í fyrsta sinn á
plötunni Hátíðarskap.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Páll Óskar Hjálmtýsson
hefur gefið út dagatal
í 1.000 eintökum sem
hann ætlar að gefa sínum
dyggustu aðdáendum um
helgina.
„Það má segja að þetta sé mín
leið til að þakka fyrir mig,“ segir
tónlistarmaðurinn Páll Óskar
Hjálmtýsson. Allir þeir sem gera
sér ferð í verslanir Hagkaupa og
Max um helgina og kaupa áritaða
plötu Páls Óskars, Allt fyrir ást-
ina, munu fá sérstakt dagatal í
kaupbæti þar sem Páll Óskar er
sjálfur í aðalhlutverki. Tónlistar-
maðurinn prýðir sjálfur þær tólf
myndir sem eru í dagatalinu, en
þær voru teknar af ungum og
upprennandi ljósmyndara sem
kallar sig Oddvar.
„Þessi strákur er einstakur lista-
maður og myndirnar sem eru í
dagatalinu eru frábærar. Ég er
mjög ánægður með útkomuna,“
segir Páll Óskar, en með uppá-
tækinu segist hann vera að verð-
launa þá sem nenna að bíða
löngum stundum í biðröð eftir að
fá áritaða plötu.
„Dagatalið er prentað í þúsund
eintökum og ég ákvað að vera
ekki að selja það. Þess í stað
verður þetta svona auka jólagjöf
til aðdáenda minna,“ segir Páll
Óskar, sem verið hefur mjög
duglegur að árita plötu sína frá
því hún kom út. „Ég hef aldrei
sagt nei við áritun og fyrir mig er
það einfaldlega frábært að hitta
fólkið sem er að kaupa plötuna
mína auglitis til auglitis. Fyrir
mig er þetta partur af jólastemn-
ingunni.“ vignir@frettabladid.is
Palli gefur aðdáendum dagatal
PÁLL ÓSKAR Í NÝJU LJÓSI Dagatalið sem þúsund aðdáendur Páls Óskars fá í
hendurnar um helgina gefa nýja sýn á tónlistarmanninn, eins og glögglega má sjá á
þessum myndum. MYNDIR/ODDVAR
AUKA JÓLAGJÖF Dagatal Páls
Óskars er auka jólagjöf til aðdá-
enda hans.
Leikfélagið Peðið sýnir um þessar mund-
ir jólaleikritið Tröllaperu eftir Jón Benja-
mín Einarsson í leikstjórn Guðjóns Sig-
valdasonar. Sýningin fer fram á
skemmtistaðnum Grand Rokki en Peðið
er áhugaleikhús sem varð til meðfram
árlegri menningarhátíð Grand Rokk.
Tröllapera er fimmta leikverkið sem
Peðið setur upp og hafa fyrri sýningar
hlotið einróma lof. „Þetta er önnur jóla-
sýningin sem við setjum upp. Í fyrra
sýndum við verk um Jesú og jólanóttina
sem fékk mjög góðar viðtökur. Í ár er
fjallað um íslenska jólamenningu,“ segir
Kolbeinn Óttarsson Proppé, fram-
kvæmdastjóri Grand Rokk.
Tröllapera gerist á heimili Grýlu og
Leppalúða. Jólin eru í nánd, fyrsti jóla-
sveinninn á leið til byggða og allir í
hátíðarskapi. Vandamálin knýja þó að
dyrum hjá tröllum sem öðrum og hvers
kyns jólastress og fjölskylduflækjur
setja svip sinn á hátíðarnar.
„Það er svo gaman að fara í leikhús á
aðventunni, sér í lagi í miðbænum. Hér
geta menn sest inn, haft það huggulegt á
sýningunni og stokkið svo út að kaupa
jólagjafirnar,“ segir Kolbeinn og bendir á
að sýningin er fjölskylduvæn. „Verkið er
skemmtilegt og mikið um tónlist. Ekki
forðast að taka börn með þótt sýningin sé
á skemmtistað. Enda fjallar hún um
íslensku jólasveinana sem börnin eiga að
þekkja,” segir Kolbeinn.
Síðustu forvöð eru um helgina að sjá
leikverkið og má nálgast miða á sýning-
una á Grand Rokki. - eá
Tröllapera sýnd á Grand Rokki
LEIKFÉLAGIÐ PEÐIÐ Útvarpskonan Lísa Páls-
dóttir við æfingar á jólaleikritinu Tröllaperu.
Leikkonan fagra, Eva Mendes, lætur fátt angra sig
meira en leikkonur sem kvarta yfir því að vera of fal-
legar til að landa bitastæðum hlutverkum. „Þvílíkur
hroki! Ég er ekki ofbeldisfull manneskja en mig lang-
ar hreinlega að kyrkja þær,“ segir Eva og vill að stöll-
ur sínar þakki frekar fyrir útlit sitt. „Nei, það er erfitt
að vera of þungur í þessum bransa, tilheyra minni-
hlutahópi eða vera haldinn líkamlegum eða andlegum
annmörkum. Auðveldast af öllu er að vera falleg leik-
kona,“ hefur Eva að segja við þessar ólánsömu konur.
Ekki erfitt að vera fögur
EVA MENDES Ósátt
við kvart leikkvenna
yfir útliti þeirra.
> KONUR SJÁ UM BÖRNIN
Ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegg-
er segir eiginkonu sína, Mariu Shri-
ver, hafa nóg á sinni könnu. „Hún ber
mikla ábyrgð sem ríkisstjórafrú, skrif-
ar bækur og sér um mig
og fjölskylduna. Konur
enda alltaf á að
hugsa miklu meira
um börnin en karlar,“
segir vöðvatröllið og
finnst greinilega óþarfi
að uppræta úrelt hlutverk
kynjanna.
L I S T V I N A F É L AG H A L LG R Í M S K I R K J U - 26. S TA R F S Á R
Jólatónlistarhátíð
Hallgrímskirkju
DESEMBER 2007
9. desember
sunnudagur
17.00
B A C H O G J Ó L I N
Björn Steinar Sólbergsson
organisti og SCHOLA CANTORUM
undir stjórn Harðar Áskelssonar
flytja jólatónlist eftir J. S. Bach.
Miðaverð: kr. 2000.-
www.listvinafelag.is
MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU
S. 510 1000 H A L L G R Í M S K I R K J A
MENNINGAR- OG
FERÐAMÁLARÁÐ