Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 106
90 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Það verða eftirmálar af
stórleik Fram og Stjörnunnar í
N1-deild kvenna. Báðir þjálfarar
fóru mikinn í fjölmiðlum eftir
leikinn og vönduðu dómurunum
ekki kveðjurnar og þá sérstaklega
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, sem sagði að bestu
vinir þjálfara Fram, Einars Jóns-
sonar, hefðu dæmt leikinn. Aðal-
steinn stendur við orð sín eftir
leikinn og breytir engu þó máli
hans verði klárlega skotið inn á
borð aganefndar HSÍ.
„Ég sé ekki eftir orðum mínum
og stend við þau. Það er staðreynd
að þetta eru vinir Einars og þeir
eru saman niðri í bæ á hverju
einasta laugardagskvöldi,“ sagði
Aðalsteinn ákveðinn en hann telur
dómarana hafa átt stóran þátt í því
að hans lið tapaði leiknum.
„Dómgæslan hefur stórkostleg
áhrif á leikinn. Einar fær að öskra
og sparka í stóla en ég fæ spjald
fyrir það eitt að spjalla við dómar-
ana. Einar græddi á því að orga á
dómarana og þeir afgreiða leikinn
á síðustu mínútunum. Einar er
alltaf svona á leikjum og ef það
hefðu verið aðrir dómarar á
leiknum hefði hann fengið spjöld
og tvær mínútur en vinir hans
fóru vel með hann og leyfðu
honum mikið.“
Dómarar leiksins voru þeir
Ómar Ingi Sverrisson og Magnús
Björnsson en Aðalsteinn segir
eitthvað meira en lítið óeðlilegt að
þetta par hafi dæmt þennan
stórleik.
„Mér finnst þetta bara vera
spilling. Mér finnst það spilling að
bestu vinir dómarans dæmi leik-
inn, mér finnst það spilling að það
sé ekki eftirlitsmaður á toppleik
úrvalsdeildar kvenna og að það sé
sett par á leikinn sem er ekki einu
sinni á meðal fimm bestu dómara-
para landsins. Það eru forkastan-
leg vinnubrögð hjá dómurum að
mæta í leiki þar sem þeir eru áber-
andi tengdir. Hann Ómar Ingi
dæmir úrslitaleik hjá meistara-
flokki karla hjá Fram fyrir tveim
árum síðan og mætir svo í partí
hjá liðinu eftir leikinn,“ sagði
Aðalsteinn hvass.
Einar Jónsson, þjálfari Fram,
gefur lítið fyrir gagnrýni Aðal-
steins og segir síst hafa hallað á
Stjörnuna í dómgæslunni.
„Ég er búinn að horfa á leikinn
aftur og það hallar á okkur ef eitt-
hvað er enda fjöldi dóma sem féllu
gegn okkur sem eru alveg glóru-
lausir. Ummæli hans um tengsl
mín og dómaranna eru líka fárán-
leg. Annar dómarinn er ágætis
félagi minn eins og margir í hand-
knattleikshreyfingunni. Samt
ekkert meira eða minna en margir
aðrir.
Ég og Anton Gylfi erum til að
mynda meiri félagar en ég og
þessi dómari en samt vildi Aðal-
steinn fá hann til þess að dæma,“
sagði Einar og skilur ekki í orðum
Aðalsteins að hann sé niðri í bæ
með dómurunum öll laugardags-
kvöld. „Ég hef lítið verið í miðbæ
Reykjavíkur um helgar það sem
af er vetri og enn síður með
dómurum. Þessi ummæli eru
fáranleg.“
Einar fór mikinn á hliðarlínunni
á fimmtudag, hoppaði og skoppaði
milli þess sem hann hellti sér yfir
dómarana. Hann játar að hafa
farið yfir strikið.
„Mín hegðun var langt frá því að
vera til fyrirmyndar og ég þarf að
vinna í því sjálfur. Það er ýmislegt
sem gerist í hita leiksins sem á
ekki að gerast,“ sagði Einar.
Dómaranefnd HSÍ bar ábyrgð á
því að setja þá Ómar Inga og
Magnús á leikinn og Guðjón L.
Sigurðsson, formaður dómara-
nefndar, segir ekkert óeðlilegt við
það en segir þó að vissulega hefði
mátt vera eftirlitsmaður á
leiknum.
„Þessir strákar hafa verið að
standa sig vel í vetur og voru verð-
launaðir með því að vera settir á
þennan leik. Það var gert því við
töldum þá tilbúna í slíkt verkefni,“
sagði Guðjón, sem var staddur í
Kaupmannahöfn og sá ekki leikinn.
„Ég hefði haldið að það ætti að
vera eftirlit á leiknum og ég veit
ekki hvort það hafi ekki fengist
maður í það. Ég skal samþykkja að
það sé dapurt að það hafi klikkað.“
henry@frettabladid.is
Ummæli Aðalsteins eru fáranleg
Einar Jónsson, þjálfari Fram, blæs á þau ummæli Aðalsteins Eyjólfssonar, þjálfara Stjörnunnar, að hann sé
niðri í bæ öll laugardagskvöld með dómurum leiks Fram og Stjörnunnar og að þeir séu bestu vinir hans.
Aðalsteinn kallar þetta spillingu en formaður dómaranefndar segir eðlilegt að viðkomandi par hafi dæmt.
Í HÁR SAMAN Einar Jónsson, þjálfari Fram (til vinstri), og Aðalsteinn Eyjólfsson eru
lentir í deilu á ný. Aðalsteinn segir að dómarar leiks Fram og Stjörnunnar séu bestu
vinir Einars en því vísar Einar á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM & ALEKSANDAR DJOROVIC
Sigurvin Ólafsson, miðjumaður hjá bikarmeisturum FH,
hefur ákveðið að skrifa ekki undir nýjan samning við liðið,
en núverandi samningur rennur út um áramótin.
„Ég er eiginlega fremur óákveðinn um framhaldið hjá
mér í boltanum og gat því ekki með góðri samvisku
skrifað undir nýjan samning við FH. Ég ætla að taka mér
smá pásu núna og hætta aðeins að hugsa um boltann
í bili,“ sagði Sigurvin í samtali við Fréttablaðið í gærdag.
Sigurvin útilokar þó ekki að spila aftur næsta sumar, en
líklega ekki með FH-liðinu.
„Ég er enn á fínum aldri og ef neistinn kviknar að nýju
treysti ég mér alveg til þess að spila í efstu deild næsta
sumar. FH er náttúrlega topplið með toppmannskap og
ef ég ætla að spila þar verð ég að halda mér í góðu formi
og æfa vel, þeir hafa ekkert að gera með miðaldra feitabollu,“
sagði Sigurvin í léttum dúr og útilokaði því alls ekki að hann
kynni að leita á önnur mið.
„Ég tækla þetta bara þegar þar að kemur, það er að segja
ef að mig langar til þess að spila aftur. Ég ætla því ekki loka
á neitt að svo stöddu og er bara að sjá til og bíða eftir gamla góða
fiðringnum,“ sagði Sigurvin, sem státar af frábærum árangri á ferli
sínum í efstu deild á Íslandi.
„Það spilar kannski líka aðeins inn í að maður hefur fórnað
ansi miklu síðustu tíu ár fyrir boltann, en vissulega fengið það
sem maður keppti að. Þannig að sú hvatning, að vinna eitthvað,
er ef til vill ekki eins mikil og ef ég væri ekki búinn að vinna
neitt,“ sagði Sigurvin, sem hefur orðið Íslandsmeistari með
þremur mismunandi liðum; árin 1997 og 1998 með
ÍBV, árin 2002 og 2003 með KR og árið 2006 með
FH. Enn fremur var Sigurvin bikarmeistari með
FH í ár og það virðist því vera ávísun á árangur að
hafa hann innanborðs. Sigurvin deilir meti sínu, að
hafa orðið Íslandsmeistari með þremur mismunandi
liðum, með Kristni Hafliðasyni sem náði þeim sama árangri með
ÍBV, KR og nú síðast með Val í sumar.
„Kiddi náði að jafna metið og ég þyrfti eiginlega að leita mér að
nýju liði til að verða Íslandsmeistari með til þess að sitja einn að
þessu meti,“ sagði Sigurvin hlæjandi.
SIGURVIN ÓLAFSSON, FH: SKRIFAR EKKI UNDIR NÝJAN SAMNING VIÐ FH-LIÐIÐ OG GÆTI HÆTT ALVEG Í BOLTANUM
Er bara að bíða eftir gamla góða fiðringnum
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson lék
mun betur á öðrum hringnum á
Alfred Dunhill-mótinu í Suður-
Afríku en það dugði honum ekki
að bæta sig um níu högg frá
fyrsta degi og er úr leik. Hann lék
seinni hringinn á tveimur
höggum undir pari og endaði í 84.
sæti. Birgir Leifur verður áfram í
Suður-Afríku því fram undan er
opna suður-afríska mótið sem
fram fer í Höfðaborg og hefst á
fimmtudaginn. - óój
Birgir Leifur Hafþórsson:
Lék mun betur
en er úr leik
MIKIL BÆTING Skelfilegur fyrsti hringur
kom í bakið á Birgi Leifi Hafþórssyni.
VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN
sport@frettabladid.is
BARDAGI
Í KVÖLD KL. 02:00
MAYWEATHER
– HATTON
ÁRSINS
> Guðrún Sóley aftur í KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, landsliðsmiðvörður í
knattspyrnu, er gengin aftur til liðs við KR eftir að
hafa leikið með Breiðabliki síðustu tvö ár en hún var
fyrirliði Blikanna í sumar. Guðrún, sem
er uppalin í KR, er ellefti leikjahæsti
KR-ingurinn með 158 leiki og hefur
leikið 42 A-landsleiki, þar á meðal alla
leiki ársins. Markvörðurinn María Björg
Ágústsdóttir hefur einnig tekið fram
skóna á nýju eftir að hafa tekið sér frí
frá fótboltanum árin 2006 og 2007
en hún er í hópi sterkustu markvarða
landsins. Samningur beggja er út
keppnistímabilið 2008 en KR gerði í gær
einnig þriggja ára samning við mark-
vörðinn Írisi Gunnarsdóttur.