Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 113
98 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. viðlag 6. belti 8. kæla 9. pfn. 11.
íþróttafélag 12. trappa 14. eggjarauðu
16. málmur 17. nægilegt 18. ung
stúlka 20. stöðug hreyfing 21. murra.
LÓÐRÉTT
1. mats 3. golf áhald 4. inúíti 5. fley 7.
litaskipti 10. gljúfur 13. gláp 15. sóða
16. tunnu 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stef, 6. ól, 8. ísa, 9. mig,
11. kr, 12. stigi, 14. blóma, 16. ál, 17.
nóg, 18. mær, 20. ið, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. dóms, 3. tí, 4. eskimói,
5. far, 7. litblær, 10. gil, 13. gón, 15.
agða, 16. ámu, 19. rr.
„Ég er að hugsa um að senda henni
bréf og segja henni að skilja við
kallinn sinn sem fyrst. Það
er honum að kenna hvern-
ig komið er fyrir þessari
söngkonu sem ég vil
meina að sé sú besta sem
komið hefur fram á sjón-
arsviðið í áratugi,“ segir
útvarps- og tónlistarmaður-
inn Magnús Einarsson,
helsti aðdáandi ensku
söngkonunnar Amy
Winehouse hér á
landi.
Amy hefur verið
mikið í fréttum að
undanförnu fyrir
eitthvað allt annað
en afrek sín á tón-
listarsviðinu en hún hefur verið
djúpt sokkin í eiturlyfjaneyslu allt
frá því að hún kvæntist vand-
ræðagemlingnum Blake Field-
er-Civil.
Magnús segir það sorgar-
sögu hvað komið
hafi fyrir Amy og
vonast innilega til
þess að hún nái
sér upp úr ruglinu.
„Þetta er mikil
synd því sem lista-
maður hefur Amy Winehouse allt
sem þarf. Hún er ekki nema 24 ára
gömul en lög hennar og textar eru
fáránlega góðir,“ segir Magnús og
sparar ekki stóru orðin.
Hann kveðst hafa orðið hugfang-
inn af Amy um leið og hún gaf út
sína fyrstu plötu árið 2003. „Ég
held að ég hafi verið sá eini sem
spilaði hana á þeim tíma og var
alltaf að segja öðrum að kíkja á
þessa stelpu. En það var ekki hlust-
að á mig,“ segir Magnús.
Amy var nýlega tilnefnd til sex
Grammy-verðlauna og segir
Magnús það undirstrika í hversu
miklum metum hún sé hjá Kanan-
um. „Hún hefur gríðarlega hæfi-
leika en þarf fyrst og fremst að
losa sig við þennan ónytjung.“ - vig
Magnús vill að Amy sæki um skilnað
MIKILL
AÐDÁANDI
Magnús
segir
að Amy
Winehouse
syngi eins
og djasssöng-
kona af bestu
gerð og að
hún búi yfir
ótrúlegu
raddsviði.
AMY WINEHOUSE Þrátt
fyrir að hún hafi verið
dugleg við að koma
sér í vandræði á hún
sér stóran aðdáanda
hér á landi í Magnúsi
Einarssyni.
PERSÓNAN
Svavar Knútur Kristinsson
Aldur: 31 árs.
Starf: Frístundaráðgjafi og tónlist-
armaður.
Fjölskylda: Á eina dóttur.
Foreldrar: Kristinn Jónsson, sjó-
maður (látinn) og Sigríður Ásbjörns-
dóttir, kennari.
Búseta: Í Hlíðunum.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Svavar Knútur keppir í úrslitum
lagakeppni BBC á morgun með
hljómsveit sinni Hraun.
Leikarinn Gunnar Hansson, betur
þekktur sem ólíkindatólið Frímann
Gunnarsson, hefur ásamt bróður
sínum, Árna Pál Hanssyni stofnað
fyrirtækið Hanssyni ehf. en það
mun á næstu misserum hefja inn-
flutning á Piaggio-vespum frá
Ítalíu. Að sögn Gunnars er þetta
eitt þekktasta vörumerki Ítalíu og
hann er bjartsýnn á að farartækin
leggist vel í Íslendinga.
Leikarinn viðurkennir að hafa
haft brennandi áhuga á þessum
farartækjum frá fjórtán ára aldri
þegar hann heimsótti Ítalíu. „En þá
mátti ég ekki leigja mér svona
vespu en varð alveg hugfanginn af
þeim,“ segir leikarinn sem tók
nýverið mótórhjólapróf og hefur
spænt upp götur borgarinnar á
mótorfák vinar síns síðan í haust.
Gunnar og Árni verða að öllum lík-
indum með aðstöðu í Saltfélaginu
og er leikarinn ákaflega spenntur
yfir þessum nýja starfsvettvangi.
Gunnar komst í kynni við fyrir-
tækið þegar öll fjölskyldan hélt til
Suður-Evrópu í tilefni af sextugsaf-
mæli móður hans. Og segir að þetta
sé tilkomið vegna týpískrar,
íslenskrar athafnasemi. „Ég fór og
heimsótti heimshöfuðstöðvarnar í
Pontedera að gamni mínu, í stutt-
buxum og skyrtu. Og áður en ég
vissi af var ég kominn á fund með
hæstráðendum. Þeir voru mjög
hrifnir af því að selja þær á Íslandi
enda hefur vespan selst vel í Skand-
inavíu og er auk þess ákaflega vin-
sæl í Bretlandi,“ útskýrir Gunnar.
Og leikarinn er ekki í nokkrum
vafa með að vespurnar eigi eftir að
slá í gegn. Þær séu nógu kraftmiklar
til að komast upp erfiðustu brekk-
urnar og þá skemmi ekki fyrir að
þær eru falleg hönnun. Leikarinn
telur jafnframt að kvenkynið eigi
eftir að falla fyrir þeim í hrönnum
enda hafi þær upphaflega verið
hannaðar með konur í huga. En
hann óttast heldur ekki fyrir hönd
kynbræðra sinna að verða skot-
spónn þeirra sem keyra um á stóru
hjólunum. „Nei, nei, ég þarf ekkert
að sanna karlmennskuna fyrir
þeim,“ segir Gunnar og hlær og
bætir því við að það sé líka mun
hentugra að keyra vespurnar, menn
þurfi ekki að vera klæddir í ein-
hvern drakúla-búning heldur geti
bara þeyst um í jakkafötunum.
Gunnar segir jafnframt að þetta
geti slegið á umferðarþungann í
höfuðborginni auk þess sem
vespurnar séu mun umhverfis-
vænni en heimilisbíllinn og eyði
minna. Hann óttast ekki að þetta
setji strik í leikara ferilinn. „Nei,
nei, við fáum fólk til að vera okkar
innan handar. Það besta er samt að
þetta verður aldrei nein kvöð að
sinna þessu því ég lít á það sem
mitt hlutverk að frelsa fólk til lífs-
stíls Piaggio.“ freyrgigja@frettabladid.is
GUNNAR HANSSON: ÓTTAST EKKI UM KARLMENNSKUNA
Leikari flytur inn vespur
FÉLL FYRIR ÞEIM FJÓRTÁN ÁRA Gunnar
segist fyrst hafa heillast af Piaggio-
vespunum fjórtán ára gamall á ferð
sinni um Ítalíu.
FLYTUR INN VESPUR Gunnar Hansson hyggst ekki leggja leiklistina til hliðar þótt
hann ætli að fara að flytja inn vespur.
„Vífill fullyrðir að lagt hafi verið
að honum, að fara ekki á aðrar
sjónvarpsstöðvar. Hann sam-
þykkti það. Guðjón var kominn
langleiðina upp á Skaga, þeir vildu
ekki vera með nein „leiðindi“ og
ákváðu þá að svissa. Sé þetta rétt
er þetta enn eitt dæmið um mis-
notkun Þórhalls Gunnarssonar,
ritstjóra Kastljóss, á yfirburðum í
krafti Ríkissjónvarpsins. Sem er
ólíðandi,“ segir Steingrímur
Sævarr Ólafsson fréttastjóri
Stöðvar 2.
Í gær lagði Guðjón Helgason,
fréttamaður Stöðvar 2, inn upp-
sagnarbréf eftir viðtal sem hann
tók við Ingvar Þórisson sem Vífil
Atlason – sá hinn sami og komst í
fréttir vegna gabbsímtals við
Hvíta húsið. Grátt gaman að mati
Steingríms sem neitaði að taka
við uppsagnarbréfinu. Segist líta
þetta alvarlegum augum enda
Guðjón tekið málið nærri sér og
telur vegið að starfsheiðri sínum
sem fréttamanns.
Vífill staðfesti í samtali við
Fréttablaðið að honum hafi verið
gert af Kastljósi að fara ekki í
önnur sjónvarpsviðtöl og þeir því
gripið til þessa ráðs. „Hún hringdi,
Ragnhildur Steinunn, þarna Kast-
ljósgellan, og sagði það bara regl-
ur að ef maður fer í Kast- ljósið
þá fer maður alls ekki á aðrar
sjónvarpsstöðvar.“
„Á ég að bera ábyrgð á röngum
fréttum og fréttaklúðri Stöðvar 2?
Er það mér að kenna að þeir
baktékki ekki viðmælendur sína?“
spyr Þórhallur Gunnarsson, rit-
stjóri Kastljóss, sem telur þó
alvarlegt þegar fólk blekkir fjöl-
miðil. Aðspurður um ásakanir
Steingríms þess efnis að hann mis-
noti aðstöðu sína og banni fólki að
tala við aðra miðla segir Þórhallur
drengnum ekki hafa verið hótað.
„Þetta snýst um að ef þú hefur
sagst vera í Kastljósi stendur þú
við það. Við beinum þeim tilmælum
til fólks að það láti okkur vita,
verði menn úti um allt hlýtur
fréttamat okkar að miðast við
það.“ - jbg
Kastljós sakað um tuddaskap
STEINGRÍMUR SÆVARR Segir
misnotkun Þórhalls á ríkisreknum
yfirburðum sínum ólíðandi.
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON Neitar
alfarið að gangast við því sem hann
kallar „fréttaklúður Stöðvar 2“.
Sigríður Beinteinsdóttir var
síðasti gestur hins stórskemmtilega
útvarpsþáttar A-J sem
sendur er út á Rás 2.
Sigríður gaf hristu
sem hún notaði öll
Stjórnarárin og sló
taktinn í Stjórnar-
samstarfinu og
fór þetta ágæta
hljóðfæri á
litlar fimm
þúsund krónur á vikulegu uppboði í
þættinum.
En það er ögn stærra tækið sem
næsti gestur hyggst láta bjóða upp.
Og það er heill bíll. Sá sem gefur er
enginn annar en þúsund-
þjalasmiðurinn Ómar
Ragnarsson og bíllinn
sem um ræðir er Dai-
hatsu Cuore, árgerð
1987 með
bílnúmerinu
Y7754. Ómar
hefur nýtt
bílinn mikið
og farið upp um fjöll og firnindi
og meðal annars alla leið upp á
Kárahnjúka. Hann er þess þó fullviss
að ökutækið hafi sjaldan eða aldrei
verið í betra formi þótt kílómetra-
mælirinn sýni litla 79 þúsund ekna
kílómetra. Ágóðinn af söluvirðinu fer
til vatnssöfnunar Hjálparstofnunar
kirkjunnar í Afríku.
Og meira af bílamálum því hand-
knattleiksmaðurinn Logi Geirsson
upplýsir á bloggi sínu að hann
sé að reyna festa kaup á forláta
Ferrari GTS Targa 355 bifreið. Logi er
þekktur smekkmaður og hefur alla
jafna gætt þess vel og vandlega að
aka um á flottum og rennilegum
bifreiðum, jafnvel áður en hann hélt
í atvinnumennskuna í Þýskalandi.
Logi er sökum starfs síns á miklum
þeysingi og hyggst því láta það eftir
sér að uppfylla gamlan
draum og keyra hrað-
brautir Þýskalands á
þessum
þekktasta
sportbíl
allra tíma.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
TIL SÖLU GRÍÐALEGA VEL BÚINN BÍLL
LÍTIÐ BROT AF BÚNAÐI ER EFTIRFARANDI
1. NÁLGUNARVÖRN AÐ FRAMAN OG AFTAN.
2. DEKKTAR HLIÐARRÚÐUR.
3. RAFKNÚIN SÓLLÚGA.
4. BI-XENON ÖKULJÓS MEÐ SPRAUTU/ÞURKU
ÁSAMT AUKALÝSINU TIL HLIÐAR.
5. POWER LIFTGATE (OPNANLEGUR AFTURHLERI M/FJARST.)
6. DRÁTTARKÚLA (AFTENGJANLEG)
7. HRAÐANÆMT AFLSTÝRI (servotronic)
8. TIPTRONIC S-SJÁLFSKIPTING/HANDSKIPTING/BEINSKIPTING.
9. SKI BAG.
10. SJÁLFVIRK LOFTRÆSTIKERFI.
11. HITUN Í FRAMSÆTUM AUK HITA Í STÝRI.
12. BOSE DIGITAL SURROUND HLJÓMKERFI 250 WÖTT MEÐ
14 HÁTÖLURUM.
Porsche Cayenne
á götuna apríl 2007 , ekinn 17þús km,
18Ӈlfelgur , sumar og vetrardekk
VERÐ: 8,590,000- ( NÝ VIRÐI 9,630,000-)
Ekkert áhvílandi / en hagstæðir lánamöguleikar
Ath. Skipti á ódýrari bíl mögulegt.
Frekari upplýsingar veitir Vignir Arnarson í síma 897-0999